Fréttatíminn - 11.10.2013, Blaðsíða 52
52 matur & vín Helgin 11.-13. október 2013
Bjór Sigurður Bragi er höfundur OktóBer kalda
SÁRAEINFALT
OG UNAÐSLEGA GOTT
Frostpinnar að hætti Andrésar
Kristín Eik og Katrín Ösp eru eigendur Allt í köku. Þær sjá um ritstjórn og
stíliseringu Afmælisveislubókarinnar. Ljósmyndir/Gassi
Bækur afmæliSveiSluBókin inniheldur 123 diSney-uppSkriftir
Litríkar kræsingar í barnaafmælin
Afmælisveislubókin kom út á
dögunum en í henni er að finna
123 uppskriftir sem gagnast þeim
sem eru að fara að halda barna-
afmæli. Útgefandi er Edda en það
eru þær Kristín Eik og Katrín Ösp
Gústafsdætur, sem getið hafa sér
gott orð fyrir vefinn alltíköku.is,
sem sjá um ritstjórn og stíliser-
ingu. Fréttatíminn birtir hér tvær
einfaldar uppskriftir úr bókinni.
a fmælisveislubókin er fjár-sjóðskista fyrir þá sem hafa gaman af að halda litrík barna-
afmæli. Í bókinni er hægt að finna
uppskriftir á borð við Hunangsköku
Bangsímons, Sundlaugatertu Anda-
bæjar, Ljósáraormur Bósa, Nemóköku,
Bílabollakökur, Hnetubita Dúmbós og
svo mætti lengi telja. Hér fylgja með
tvær laufléttar uppskriftir sem allir
ættu að geta spreytt sig á.
200 ml vatn
2 msk agavesíróp
2 dropar tutti frutti bragðefni
frá LorAnn Oils
2 dropar bleikur matarlitur
Aðferð
1. Setjið allt saman í skál
og hrærið saman þar til vel
blandað.
2. Hellið í íspinnamót og
frystið.
Prófið að nota önnur
bragðefni, t.d. hindberja- og
bananabragðefni.
É g var tvítugur þegar ég bjó til uppskrift-ina,“ segir Sigurður
Bragi Ólafsson, bruggari
hjá Bruggsmiðjunni á Ár-
skógssandi. Bruggsmiðjan
framleiðir sem kunnugt er
hinn frábæra bjór Kalda og
Sigurður er höfundur Októ-
ber Kalda sem nú er til sölu í
Vínbúðunum.
Í bjórnum frá fimmtán
ára aldri
Sigurður er sonur hjónanna
sem stofnuðu Bruggsmiðj-
una, þeirra Agnesar Sig-
urðardóttur og Ólafs Þrastar
Ólafssonar. Hann byrjaði
að brugga í verksmiðjunni
þegar hann var sautján ára.
„En ég var yngri þegar ég
byrjaði að vinna þar. Ætli
ég sé ekki búinn að vera að
vinna þarna í sjö ár, frá því
ég var fimmtán ára,“ segir
bruggarinn ungi.
Október Kaldi var fyrsti
bjórinn sem Sigurður bjó til
en hann kom fyrst á markað
Ungur verðlaunabruggari fyrir norðan
Sigurður Bragi Ólafsson er
einungis 22 ára en hefur, þrátt
fyrir ungan aldur, starfað sem
bruggari í fimm ár. Hann er
höfundur hins ágæta Október
Kalda sem notið hefur mikilla
vinsælda og hyggst leggja
fyrir sig starf bruggarans.
í fyrra. Hann er einungis til
sölu í um mánuð, eða á með-
an hinu svokallaða Október-
fest-tímabili stendur. Bjórinn
hlaut afar góðar viðtökur í
fyrra og útlit er fyrir að neyt-
endur taki honum fagnandi
sömuleiðis í ár.
Október Kaldi er öl. Hvers
vegna valdirðu að brugga öl
en ekki lagerbjór?
„Ég var búinn að vera að
brugga öl og lagerbjóra í
Kalda og valdi einfaldlega
þar á milli. Mér finnst yfir-
leitt meiri karakter í öli,
maður getur náð fram mörg-
um skemmtilegum brögðum.
Svo langaði mig að gera
bjór sem mér finnst sjálfum
skemmtilegt að drekka,
sem mér finnst góður, en að
sjálfsögðu fyrir neytandann
líka.“
Verðlaunaður á Hólum
Októberkaldi fékk frábærar
viðtökur þegar hann kom
á markað í fyrra. „Já, hann
seldist upp mjög hratt,“ segir
Sigurður. „Bæði í Ríkinu og á
börum, hann seldist upp fyrr
en maður hefði getað vonast
eftir. Svo var hann auk þess
valinn besti bjórinn á einu
íslensku bjórkeppninni sem
haldin er að Hólum í Hjalta-
dal. Þarna mættu allir ís-
lensku framleiðendurnir með
allflestar tegundir sínar en
við mættum bara með þessa
einu tegund og höfnuðum í
fyrsta sæti.“
Ætlaði að verða íþrótta-
kennari
Sigurður var í framhalds-
skóla þegar hann féll fyrir
starfi bruggarans. „Ég ætlaði
Október Kaldi
5,2%
33 cl.
398 krónur.
„Þetta er millidökkt
öl sem er humlaríkt
en hugsað þannig
að allir geti drukkið.
Það er ávaxtakeimur
af bjórnum sem
kemur með gerinu.
Hann er töluvert
mildur en samt
karakterríkur,“
segir Sigurður.
Sigurður Bragi Ólafsson er stoltur
af sínum fyrsta bjór, Október Kalda,
sem fengið hefur góðar viðtökur og var
valinn besti bjórinn á bjórhátíð á Hólum.
Ljósmynd/Þröstur Viðarsson