Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.10.2013, Síða 56

Fréttatíminn - 11.10.2013, Síða 56
56 heilsa Helgin 11.-13. október 2013  Heilsa Hreinn matur í stað blekkingar Vilja greiða leið fyrir íslenska lífræna framleiðslu É g vil hafa áhrif á fólk og vinna við eitthvað sem gefur til samfélagsins,“ segir Arndís Thorarensen, framkvæmdastjóri Lifandi Markaðar frá árinu 2009. Arndís hafði ekki endilega hug á því að vinna í heilsugeir- anum en hún er menntaður stærðfræðingur og vann við kennslu í fjölda ára við Háskól- ann í Reykjavík. „Ég ætlaði að verða stærðfræðiprófessor en hef alltaf verið náttúrubarn og haft áhuga á almennri skynsemi og rökhugsun. Það tengist ef til vill með einhverjum hætti stærðfræðinni,“ segir Arndís. „Ég var líka með það að leiðar- ljósi þegar ég var að kenna full- orðnum að stærðfræði væri skemmtileg og það væri hægt að læra hana og ég tel mig hafa náð því,“ segir Arndís. „Þegar ég var búin að eiga tvö börn og var orðin eldri fór ég að hafa mikinn áhuga á mataræði og heilsu og þannig þróaðist það að ég fór að vinna við rekstur Lifandi Markaðar,“ segir Arndís Þegar Arndís flutti heim eftir að hafa búið í Bandaríkjunum fjögur ár tók hún eftir því hvað vöruúrvalið hér var lítið og einhæft. „Ég er mikill talsmað- ur hreins mataræðis og mat- vælaiðnaðurinn er orðinn alveg ótrúlegur. Ég tel það einfald- Leitið upplýsinga á auglýsingadeild Fréttatímans í síma 531 3310 eða á auglysingar@frettatiminn.is Fréttatímanum er dreift á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri auk lausadreifingar um land allt. Dreifing með Fréttatímanum á bæklingum og fylgiblöðum er hagkvæmur kostur. Ert þú að huga að dreifingu? LAGERSALA Lagersala Lín Design Laugavegi 178 & Glerártorgi 40-80% afsláttur Reykjavík: Laugavegi 178 Rúmföt, handklæði barnavörur, púðar Akureyri: Glerártorgi dúkar, löberar og fleira Opið laugardag & sunnudag 11-16 Rúmföt - margar gerðir og stærðir Laugardag & sunnudag Opið laugardag 10-17 & sunnudag 13-17 140x200, 140x220 200x200 & 220x200 Mikið úrval af hágæða handklæðum Baðhandklæði Stærð 70x140 1.990 kr 50% afslá ttur Stærðir Arndís Thorarensen, framkvæmdastjóri Lif- andi Markaðar, segir hópinn sífellt stækka sem hugar að heilsu og fræðist um hollan lífsstíl. Segir hún Svíþjóð standa sig vel í líf- rænni framleiðslu í samanburði við Ísland og að stjórnvöld þurfi að taka málefnið alvar- lega enda mikil tækifæri til staðar. lega almenna skynsemi að borða óunninn mat og það er í raun- inni það sem Lifandi Markaður stendur fyrir,“ segir Arndís. Arndís nýtur þess að vera í stjórnendahlutverki, leiðbeina fólki og láta gott af sér leiða. „Ég held að konur séu ragar við að taka að sér stjórnunarstörf en ég held að þessi umræða öll um kvóta í stjórnum hvetji konur áfram,“ segir Arndís og telur að karlar hafi risið upp sem feður og komi meira að heimilinu og hlutir séu í réttum farvegi. Arndísi gengur vel að samhæfa vinnu og einkalíf enda eigi hún góða að. Fleiri huga að heilsunni Arndís segir Lifandi markað leggja mikið upp úr því að þjón- usta þá sem hafi sérþarfir eða vilji borða til dæmis glútenlaust lágkolvetna fæði og sykurlaust og segir hópinn alltaf að stækka. „Fyrst og fremst einbeitum við okkur að lífrænum vörum og viljum hafa breiðasta úrvalið. Við viljum að fólk geti komið hingað án þess að þurfa að lesa vörulýsingar,“ segir Arndís. Viðskiptavinahópur Lifandi Markaðar er sífellt að breytast en í byrjun var meirihluti við- skiptavina konur. „Bara frá því að ég byrjaði þá hefur það aukist verulega að karlmenn komi á veitingastaðina,“ segir Arndís. Segir hún að alltaf séu fleiri komnir í hóp þeirra sem vilja borða óunninn mat. „Það er líka hópur sem keyrir innkaupakerruna í gegnum mat- vöruverslanir og mikill meiri- hluti af því sem er keypt er unnið og inniheldur enga lifandi fæðu. Fólk gerir sér ekki grein fyrir þessu því að vörur eru seld- ar sem matur en eru ekki matur. Það er mikil blekking í gangi,“ segir Arndís Arndís telur að áherslur séu að breytast og greinilega hægt að sjá breytingar til batnaðar í lágvöruverslunum sem eru sífellt að auka rýmið fyrir líf- rænan mat sem og hollari mat- vörur. „Við viljum vera leiðandi á þessum markaði og greiða leið þeirra sem vilja framleiða lífræn- ar íslenskar vörur sem of lítið er til af,“ segir Arndís. Hún segir ásókn í lífrænar vörur mjög mikla og framboðið allt of lítið. „Okkur finnst því jákvætt þegar aðrir verslanir taka upp að selja meira af lífrænum vörum.“ Fólk nýtir lífrænan mat betur Arndís segir að þeir sem velji lífrænan lífsstíl nýti matinn sinn mjög vel og beri virðingu fyrir þeim vörum sem eru keyptar á heimilið en talið er að um 40% af mat sem framleiddur sé í heim- inum rati í ruslatunnur. „Það er algengt vandamál að margir borða of mikið og þess vegna getur það jafnvel verið ódýrara að borða minna af hollari mat,“ segir Arndís. „Stjórnvöld gætu gert margt til þess að liðka fyrir þessum iðnaði eins og til dæmis með lægra rafmagnsverði til þeirra sem eru að rækta lífrænt,“ segir Arndís. Fulltrúar fyrirtækisins Whole Foods hafa áhuga á að selja fleiri íslenskar vörur, að sögn Arndísar, en eins og staðan er þá er framleiðsla lífrænna vara ekki einu sinni nægileg fyrir íslenska markaðinn. „Það er hópur fólks sem bíður reglulega eftir því að fá íslenska lífræna grænmetið,“ segir hún. Svíþjóð er framarlega á svið lífrænnar mjólkurframleiðslu en þar í landi, segir Arndís, hafi verið lögð mikil áhersla á að kanna áhrif erfðabreyttra mat- væla á fólk. „Ef þú færð þér „cap- puchino“ í Stokkhólmi ertu ekki spurður, þú færð lífræna mjólk,“ segir Arndís. Hún hefur áhyggj- ur af því að ekki séu til upp- lýsingar um hvaða erfðabreyttu matvæli skepnur á Íslandi fái og sé það mjög alvarlegt mál. María Elísabet Pallé maria@frettatiminn.is Arndís Thorarensen framkvæmdastjóri Lifandi Markaðar nýtur þess að hafa góð áhrif á samfélagið. Ljósmynd/ Hari

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.