Fréttatíminn - 11.10.2013, Side 68
68 bíó Helgin 11.-13. október 2013
Kynlífs-
senurnar
eru
harka-
legar,
smá-
smugu-
legar, of-
hlaðnar
og kaldar
lýsingar
á svo-
kölluðu
lessu-
kynlífi.
Frumsýnd LíF AdeLe
F ranska myndin La Vie d'Adèle vakti gríðarlega athygli á kvikmyndahá-tíðinni í Cannes þegar hún var sýnd
þar í vor. Almennt voru viðtökurnar góðar og
fólk hreifst af þessari hispurslausu, lesbísku
ástarsögu en vitaskuld gekk myndin fram af
einhverjum sem fóru ekki leynt með andúð
sína. Myndin hreppti síðan aðalverðlaun
hátíðarinnar, hinn eftirsótta Gullpálma. Auk
þess sem aðal leikkonurnar tvær deildu með
sér verðlaunum sem bestu leikkonurnar.
Sjálfur Steven Spielberg var formaður dóm-
nefndarinnar í Cannes og hann sagði La Vie
d'Adèle vera stórkostlega ástarsögu um djúpa
ást og nístandi sársauka sem áhorfendur
fylgdust með eins og fluga á vegg frá upphafi
til enda.
La Vie d'Adèle, sem er ekki síður þekkt
undir enska titlinum Blue Is the Warmest
Color, fjallar um hina fimmtán ára gömlu
Adele sem lifir ósköp venjulegu unglingslífi.
Þegar hún byrjar svo með einum vinsælasta
stráknum í skólanum áttar hún sig á að það
vantar eitthvað tilfinningalegt í sambandið.
Hún upplifir ekki þær þrár sem henni skilst
á skólafélögum sínum að hún eigi að gera og
hún spyr sig hvað sé að. Svarið fær hún óvænt
þegar hún kynnist hinni bláhærðu Emmu
sem á eftir að hafa varanleg áhrif á hana. Eftir
því sem náið samband þeirra þróast losna
þrár og tilfinningar Adele úr læðingi í ástríðu-
fullum unaðsstundum þeirra tveggja.
Eins og við var að búast vakti myndin ekki
síst athygli fyrir nærgöngular kynlífssenur
leikkvennanna tveggja, Adele Exarchopoulos
og Lea Seydoux, en atriðin þykja svo opinská
að jafnvel sjóuðustu gagnrýnendum og blaða-
mönnum á hátíðinni varð um og ó. Þrátt fyrir
það hreif myndin Spielberg og félaga og gagn-
rýnendur hrósuðu henni flestir.
Leikstjórinn, Abdellatif Kechiche, stóð
þó ekki alveg uppi með pálmann í hönd-
unum þótt hann hafi slegið í gegn í Cannes.
Skömmu eftir frumsýninguna gagnrýndu
leikkonurnar hann opinberlega fyrir að hafa
lagt á þær mikið erfiði með endalausum
tökum á kynlífsatriðum. Þær létu í það skína
að ekki hefði borið á öðru en leikstjórinn hafi
fengið eitthvað út úr því að draga tökur kyn-
lífsatriðanna sem mest á langinn.
Þá steig Julie Maroh, höfundur mynda-
sögunnar, La vie d'Adele - Chapitre 1 & 2,
sem myndin byggir á, fram og gagnrýndi
myndina og leikstjórann harkalega á bloggi
sínu þar sem hún hafnaði beinlínis þessari
kvikmyndaaðlögun verks síns. Hún sagði
meðal annars kynlífsatriði myndarinnar
„ósannfærandi“ og „fáránleg“ og að þau væru
hreinlega klám.
„Sem femínisti og lesbískur áhorfandi get
ég ekki fallist á þá stefnu sem Kechiche tók
í þessum efnum,“ bloggaði hún. „Kynlífs-
senurnar eru harkalegar, smásmugulegar,
ofhlaðnar og kaldar lýsingar á svokölluðu
lessukynlífi sem snúið er uppi í klám og létu
mér líða mjög illa.“
Þá sagði hún blasa við að fyrst og fremst
hafi vantað lesbíur á tökustað. Hún sagðist
ekki vita hvert leikstjórinn og leikkonurnar,
sem séu gagnkynhneigðar þar til annað kæmi
í ljós, hafi sótt sér upplýsingar en hún hafi
ekki verið höfð með í ráðum. Maroh sagði
helst útlit fyrir að leikararnir hafi verið látnir
undirbúa sig með því að horfa á „svokallað
lessuklám“ sem sé þó því miður sjaldnast í
raun gert fyrir lesbíska áhorfendur.
Þrátt fyrir almennt góðar viðtökur og hrós
unir leikstjórinn því hag sínum illa, segist
hafa orðið fyrir miklu áreiti og andlegt álag
á hann sé svo mikið að sér hefði þótt best ef
myndin hefði verið tekin úr dreifingu strax
eftir hátíðina í Cannes.
Aðrir miðlar: Imdb: 7,3, Rotten Tomatoes: 95%,
Metacritic. 93%
Kvikmyndin La Vie d'Adèle vakti bæði hrifningu og deilur þegar hún var frumsýnd á kvik-
myndahátíðinni í Cannes í vor. Myndin þykir ganga býsna langt í bersöglum lýsingum á kynlífs-
sambandi tveggja ungra kvenna og einhverjir svitnuðu rækilega yfir langri kynlífssenu í myndinni
sem tók, að sögn, einnig verulega á taugar leikkvennanna. Myndin var frumsýnd á Íslandi á RIFF
en er nú komin í almennar sýningar.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Umdeild og bersögul verðlaunamynd
Líf Adele tekur varanlegum breytingum eftir að hún kynnist hinni bláhærðu Emmu.
LAGERSALA
Lagersala Lín Design Laugavegi 178 & Glerártorgi
40-80%
afsláttur
Reykjavík: Laugavegi 178
Barnarúmföt, dúkar
löberar, rúmfatnaður
Akureyri: Glerártorgi
stór rúmföt og fleira.
Opið laugardag & sunnudag 11-16
Laugardag & sunnudag
Opið laugardag 10-17
& sunnudag 13-17
Margar gerðir af barnarúmfatnaði, frá 2.990 kr
Akureyri
Stærðir
70x100
100x140
Smávara fyrir heimilið og þig
Burstapoki
áður 1.990 kr, nú 990 kr
Takmarkað
nú loksins á
magn
Ökuþórarnir James Hunt og Niki
Lauda voru góðir vinir og harðir
keppinautar á kappakstursbrautinni.
Frumsýnd deLivery mAn
Ofvirkur sæðisgjafi í klandri
Leikstjórinn og handritshöfundurinn
Ken Scott er hér mættur til leiks með
bandaríska endurgerð sinnar eigin
myndar, Starbuck, sem hann gerði
í Frakklandi 2011. Þessi útgáfa ber
titilinn Delivery Man og að þessu sinni
leikur Vince Vaughn hina seinheppnu
landeyðu David Wozniak sem vaknar
upp við vondan draum þegar drjúgar
sæðisgjafir hans á yngri árum koma
harkalega í bakið á honum. David
er ósköp ljúfur náungi en gjarn á að
klúðra hlutunum. Hann skuldar mafí-
unni peninga, unnusta hans er barns-
hafandi en hversdagsleg vandamál
hans blikna þegar hann fréttir að hann
sé faðir 533 barna vegna sæðisgjafar
fyrir tuttugu árum. Það væri svo sem
í lagi ef 142 þessara barna hefðu ekki
höfðað mál til þess að fá upplýst hver
líffræðilegur faðir þeirra er.
Aðrir miðlar: Dómar ekki komnir.
Vince Vaughn leikur hinn sein-
heppna David sem kemst óvænt að
því að hann er faðir 533 barna.
Frumsýnd rush
Einvígi á kappakstursbrautinni
Leikstjórinn Ron Howard gerir ákaflega
áferðarfallegar myndir sem eru þó á
köflum frekar meinlausar. En fagmaður
er hann. Hann er á fleygiferð í sinni nýj-
ustu mynd, Rush, þar sem hann segir
sanna sögu formúlukappanna James
Hunt og Niki Lauda og metnaðarfullrar
baráttu þeirra á kappakstursbrautinni.
Chris Hemsworth leikur Bretann
James Hunt sem varð heimsmeist-
ari í Formúlu 1 árið 1976 og atti þar
meðal annars kappi við Lauda sem
var ríkjandi heimsmeistari. Hunt var
glaumgosi mikill en austurríski öku-
þórinn Lauda var snjall og skipulagður.
Daniel Brühl leikur Lauda í myndinni.
Myndin fjallar um ólíkan persónu-
legan stíl þeirra á keppnisbrautinni
og utan hennar, ástir þeirra og hið
ótrúlega keppnistímabil árið 1976 þegar
báðir bílstjórar voru tilbúnir að fórna
öllu til að verða heimsmeistarar í íþrótt
þar sem lítið svigrúm er fyrir mistök
sem voru í raun ávísun á dauða.
Utan kappakstursbrautarinnar voru
keppinautarnir miklir vinir en Lauda
ók fyrir Ferrari en Hunt keppti fyrir
McLaren.
Aðrir miðlar: Imdb. 8,3, Rotten Tomatoes:
88%, Metacritic: 75%
SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR & KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS • MIÐASALA: 412 7711
CAMILLE CLAUDEL 1915 • SJÁ SÝNINGARTÍMA Á WWW.BIOPARADIS.IS