Fréttatíminn - 11.10.2013, Qupperneq 71
SLÖKKTU MEIRA
EN ÞINN
EIGIN ÞORSTA
Í hvert skipti sem þú
kaupir flösku af Toppi,
gefur þú 3 LÍTRA af
hreinu vatni til Afríku.
To
pp
ur
is
a
re
gi
st
er
ed
tr
ad
em
ar
k
of
T
he
C
oc
a-
C
ol
a
C
om
pa
ny
©
2
01
3.
1 TOPPUR3 LÍTRAR AF VATNI TIL AFRÍKU
Nánari upplýsingar á:
facebook.com/toppur
Jeppi á FJalli að hætti Benedikts erlingssonar
Gömul leiðindi á röngunni
frásögn, eilítið grín og nokkrir
galdrar. Og án nokkurs vafa munu
næstu sýningar verða þéttari og
styttri – og enn betri.
Það er dásamlegt fyrir foreldra
að fá að sitja með börnunum sínum
í ró og fegurð á brúðuloftinu og fá
smá frí frá þeirri yfirkeyrslu sem
einkennir því miður of mikið af
barnaefni – og þá ekki síst á stóru
sviðum leikhúsanna. Þótt börnum
þyki gaman að láta hossa sér þá
njóta þau þess miklu fremur að láta
gæla við sig.
Bernd Ogrodnik er mikið og fag-
urt leikhús. Hann semur leikritið
og tónlistina, smíðar brúðurnar
og leikmyndina, stýrir brúðunum
og talar fyrir sumar þeirra. Allt er
þetta gert af svo mikilli natni og
smekkvísi að það er ekki annað
hægt en að halla sér aftur og njóta,
þakka fyrir sig og klappa.
Gunnar Smári Egilsson
gunnarsmari@frettatiminn.is
Þrátt fyrir
að Benedikt
Erlingsson breiði
út leikhúsvængi
sína, Megas
semji lögin, Bragi
Valdimar þenji
íslenskuna sína og
Ingvar E. Sigurðs-
son gefi allt í
Jeppa; þá stelur
Arnmundur Ernst
Bachman Björns-
son senunni í
Jeppa á Fjalli.
Sýningin var alltaf
skemmtilegri og
meira spenn-
andi þegar hann
og Bergur Þór
Ingólfsson voru
inni á sviðinu.
hjóli og jafn getulaus til að brjótast
út úr þeim vítahring og alkóhól-
istinn Jeppi, sem kemst ekki út
úr vítahring neyslu, fráhvarfa og
fíknar. Þótt Benedikt gæti eflaust
fjallað betur um óréttlæti og and-
styggð stéttaskiptingar með öðru
verki þá fannst mér þetta ganga
ágætlega upp í sýningunni.
Enn eitt sem er ekki boðlegt
frá hendi Holberg er þetta eina
litla kvenhlutverk. Og mér fannst
Benedikt og Ilmi ekki takast að
endurskapa það og stækka. Hún er
óttaleg tuska, hún Ninna.
Eitt sem Benedikt skilur eftir
ósnert frá Holberg er umbreyting
Jeppa úr beygðum alþýðumanni í
grimman harðstjóra þegar hann
fær völd. Benedikt tekur því undir
með Holberg (og Davíð Oddssyni,
svo hann fái að fljóta með) að vara-
samt sé að gefa götustrákum mikil
völd. Þá sé illskárra að gamla elít-
an haldi áfram að kúga alþýðuna
á sinn dannaða hátt. Þetta er sami
boðskapur og kom út úr síðustu
alþingiskosningum; að alþýðan
kunni best við forna kúgun og
þjóðlega.
Þar sem þetta er ekki gagnrýni
á sýninguna ætla ég ekki að fara
út frammistöðu einstakra leikara,
hljóðfæraleikara eða annarra að-
standenda. Þetta var lífleg, fjörug
og skemmtileg sýning sem ég sá.
Og ég er þó viss um að hún á eftir
að batna mikið á næstu vikum.
Gunnar Smári Egilsson
gunnarsmari@frettatiminn.is
Öngvir fordómar – en vont samt
Maður að mínu skapi – stofuleikur eftir Braga Ólafsson er umtöluð leiksýning þessa dagana
– ekki síst meðal þeirra sem hafa ekki séð hana. Sýningin hefur ómaklega verið dæmd fyrir
að bera út fordóma gagnvart samkynhneigðum og/eða skápahommum og fyrir að velta sér
upp úr einkahögum Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar. Af fjórum karlpersónum leiksins er
einn skápahommi, annar samkynhneigður og gengst við því, þriðji áreitir bæði konur og karla
kynferðislega og fjórði er haldinn léttri hommafóbíu. Ég átta mig ekki á hvers vegna Bragi
vill hafa þetta svona; en ég les enga sérstaka fordóma út úr því. Það mætti sleppa öllum til-
vísunum í samkynhneigð án þess að það raskaði nokkru í leikritinu.
En þótt sýningin hafi verið ómaklega gagnrýnd fyrir fordóma þá er hún mjög gagnrýnisverð.
Hún er bæði ófyndinn gamanleikur og bitlaus þjóðfélagsádeila. Sýningin er líka undarlega
gamaldags. Um tíma velti ég því fyrir mér hvort hún væri konseptverk; hvort Bragi hefði
fundið gamla revíu og eignað sér hana sem einskonar tilvísun í ritþjófnað aðalpersónunnar.
Synd þessarar sýningar er ekki óforskömmustuheit eða smekkleysi heldur miklu fremur
grunnhyggni og kraftleysi.
Sem er miður. Nú þarf einhver að taka sig til og skrifa hressilegt og nútímalegt leikrit um
Hannes Hólmstein og félaga hans. Þeir eiga betra skilið blessaðir – og ekki síður við hin. -gse Maður að mínu skapi er líklega að fárra skapi.
menning 71 Helgin 11.-13. október 2013