Fréttatíminn - 11.10.2013, Page 76
AppAfengur
Endur
vinnslukortið
Í tAkt við tÍmAnn Hildur kristÍn stefánsdóttir
Skrifaði BA-ritgerð um japanska krúttmenningu
Hildur Kristín Stefánsdóttir er 25 ára tónlistarkona í hljómsveitinni Rökkurró. Sveitin vinnur nú að þriðju plötu sinni sem kemur út á næsta ári en nýtt lag fer í
spilun fyrir Airwaves-tónlistarhátíðina um næstu mánaðamót. Hildur er skrifstofustjóri hjá Plain Vanilla og tekur þátt í Meistaramánuði. Hún elskar Tokyo.
Iceland Airwaves-tónlistarhátíðin fer fram dagana 30.
október til 3. nóvember næstkomandi. Ein af þeim sveitum
sem þar troða upp er Rökkurró. Hildur Kristín segir að
sveitin spili alls á fimm tónleikum yfir hátíðarhelgina.
Þar mega tónleikagestir eiga von á að heyra nýtt efni frá
sveitinni sem meðlimir hennar vinna nú að undir stjórn
Helga Hrafns Jónssonar. Nýtt lag verður sett í spilun fyrir
hátíðina en platan kemur út á næsta ári.
Staðalbúnaður
Fatastíllinn minn er blanda af krútti og rokki. Ég fer oft í
búðir á Laugaveginum en enda svo á að finna sömu hlut-
ina á netinu. Ég er ótrúlegur eBay-fíkill og versla eigin-
lega bara á netinu. Nema auðvitað í Hjálpræðishernum og
Rauða kross búðinni. Annars finnst mér gaman að fylgjast
með tísku og spái mikið í hana, les tískublogg og fleira. Ég
er með fjögur tattú sem eru frekar áberandi og fólki finnst
þau mjög áhugaverð þegar það sér þau.
Hugbúnaður
Þegar ég fer út að skemmta mér fer ég á Dollý, Harlem og
Kaffibarinn. Nú er ég hins vegar í Meistaramánuði og held
mig því frá þeim. Ég mæti þrisvar í viku í Víkingaþrek
hjá Mjölni klukkan 6.40, maður er svo mikill meistari ef
maður gerir það að dagurinn getur ekki klikkað. Ég er
svolítill þáttafíkill, var að klára House of Cards sem voru
geðveikir og svo er ég að horfa á Orange is the New Black.
Ég hef gaman af japönskum kvikmyndum og sæki frekar
í þenkjandi kvikmyndir en Hollywoodmyndir. Mér finnst
til að mynda mjög gaman að fara á kvikmyndahátíðir. Mér
finnst frábært að fara á tónleika en það hafa verið færri
tónleikar undanfarið eftir að Faktorý og Nasa lokuðu.
Ég syrgi þá mikið. Ég vona bara að einhver taki sig til og
hristi upp í þessari tónleikastaðamenningu.
Vélbúnaður
Ég er Apple „All The Way“, er með iPhone,
Macbook Pro heima og stóra Apple-tölvu
í vinnunni. Ég nota iPhone-inn mjög
mikið. Það er orðið að fíkn hjá mér að
tékka á hlutum á netinu, nú þarf ég
alltaf að vera með allt á hreinu þegar
ég er að tala við fólk. Mér finnst
alveg nauðsynlegt að vera alltaf í
sambandi og að fylgjast með, ég er
hálfgerður fréttafíkill. Svo finnst
mér Instagram mjög skemmtilegt.
Aukabúnaður
Ég er með BA-gráðu
í japönsku og bjó í
Tókýó í eitt ár meðan
ég var í námi. BA-
ritgerðin mín var
um japanskt krútt
og krúttmenn-
ingu. Ég elska
Tókýó og mæli
með því fyrir alla að fara þangað, þó ekki nema til að sjá
hvað heimurinn getur verið brjálaður. Mér finnst gaman
að elda og hef verið að prófa að elda skrítna japanska
rétti sem vilja reyndar brenna við hjá mér. Það er hluti af
Meistaramánuðinum að fara ekki út að borða en ég geri
jafnan mikið af því. Ég er alger alæta, einn daginn borða
ég „slísí“ hamborgara og hinn daginn sushi. Matur
er mjög stórt áhugamál hjá mér. Ég hef gaman af
að mála mig, það er stelpa inni í mér sem finnst
gaman að hafa sig til. Það er mjög gott að vera
tónlistarmaður því þegar maður stígur á svið má
maður vera allskonar, þá get ég leyft mér ýmsar
tilraunir með útlitið. Mamma mín er dáleiðari
og henni mistókst að dáleiða úr mér hræðslu
við hunda þegar ég var lítil. Í staðinn fékk
ég algert æði fyrir hundum og ég tel það til
áhugamála hjá mér að skoða myndir af sæt-
um dýrum á netinu. Það er besta meðalið ef
maður er í vondu skapi.
25 ára afmælistónleikar
í Háskólabíói 25. október
Gamla góða Stjórnarstemningin!
Tryggðu þér miða í tíma!
Miðaverð 6.500 kr.
Miðasala á www.midi.is
Hljóðfæraleikur og söngur
Sigríður Beinteinsdóttir
Grétar Örvarsson
Friðrik Karlsson
Jóhann Ásmundsson
Sigfús Óttarsson
Einar Bragi Bragason
Eiður Arnarsson
Jón Elvar Hafsteinsson
Þorsteinn Gunnarsson
Þórir Úlfarsson
Bakraddir
Friðrik Ómar
Regína Ósk
Erna Hrönn
Endurvinnslukortið
er einfalt app þar
sem nálgast má
upplýsingar um
flokkun og endur-
vinnslu. Appið er
gert af Náttúran.is
en meðal samstarfs-
aðila eru Sorpa,
Úrvinnslusjóður og
Gámaþjónustan.
Með appinu er
hægt að skoða mis-
munandi flokka
úrgangs og fá leið-
sögn um á hvaða
mótttökustöð er
tekið við honum.
Þá er einnig val
um að gefa appinu
aðgang að stað-
setningu þinni og
finnur appið þá þær
stöðvar sem eru
þér næstar. Ekki
nóg með það heldur
getur þú einnig
valið hvort þú vilt
skoða allar stöðvar
eða bara þær sem
eru opnar á einmitt
þeirri stundu.
Nú þegar hætt er
að tæma venju-
legar ruslatunnur
í Reykjavík ef þær
innihalda pappír
er eins gott að vera
með á nótunum.
Þeir sem eru að
stíga sín fyrstu
skref þegar kemur
að endurvinnslu
geta í appinu lesið
sér til um nauðsyn
þess að endurvinna
og fá leiðsögn um
hvernig sé best að
byrja að flokka.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Hildur tekur þátt í Meistaramánuði
og mætir í Víkingaþrek klukkan 6.40
þrisvar í viku. Ljósmynd/Hari
76 dægurmál Helgin 11.-13. október 2013