Fréttatíminn - 08.03.2013, Qupperneq 4
fyrir fullorðna og
börn eldri en 2 ára
án rotvarnarefna
ódýrt
Stíflað nef?
Naso-ratiopharm
fæst án lyfseðils í apótekum
Nefrennsli?
xylometazolin hýdróklóríð
Naso-ratiopharm nefúði inniheldur xylometazolin sem minnkar þrota í slímhúðum í ne og hálsi, dregur úr aukinni
slímmyndun og auðveldar einstaklingum með kvef að anda í gegnum neð. Lyð er ætlað til skammtíma meðferðar við
stíu í ne, t.d. vegna kvefs. Skammtar eru 1 úðun í hvora nös, eftir þörfum, mest þrisvar á dag. Lyð má nota í mest 7 daga
í senn. Naso-ratiopharm 0,5 mg/ml: Lyð er ekki ætlað börnum yngri en 2 ára. Tíminn á milli skammta skal ekki vera
styttri en 8 klst. Naso-ratiopharm 1 mg/ml: Lyð er ekki ætlað börnum yngri en 10 ára. Tíminn á milli skammta skal ekki
vera styttri en 6 klst. Algengustu aukaverkanir eru sviði og ofþornun í slímhúð í ne. Einstaklingar sem m.a. nota
MAO-hemla, eru með þrönghornsgláku eða hafa ofnæmi fyrir xylometazolini eða einhverju hjálparefnanna skulu ekki
nota lyð, sjá nánar í fylgiseðli. Lesið vandlega fylgiseðlinn sem fylgir lynu. Nóvember 2012.
Grænn fyri
r
börnin
S aga film framleiðir kvikmyndina Fiskar á þurru landi í leikstjórn Óskars Jónassonar en til stendur að
sýna myndina í tveimur hlutum hjá Ríkis-
sjónvarpinu um páskana. Athygli vekur
að fjármálaráðgjafarfyrirtækið Sparnaður
ehf. kemur að fjármögnun myndarinnar
en kvikmyndagerð er nokkuð fjarri hefð-
bundnum viðfangsefnum fyrirtækisins
sem sérhæfir sig meðal annars í ráðgjöf við
skuldaniðurgreiðslu.
„Við höfum í gegnum tíðina reynt að
koma að góðum málefnum og þarna var
kannski hugsunin sú að styðja við íslenska
kvikmyndagerð sem hefur átt undir högg
að sækja frá hruni,“ segir Gestur Breiðfjörð
Gestsson, framkvæmdastjóri Sparnaðar.
Gestur segir Saga film hafa leitað til
fyrirtækisins með þetta tiltekna verkefni
en hugmyndir um að setja fé í kvikmynda-
gerð hafi þó verið kviknaðar hjá fyrirtæk-
inu. „Við tókum bara vel í þetta enda finnst
okkur þetta kjörið málefni til þess að styðja
við bakið á.“
Framleiðandinn, Rakel Garðarsdóttir,
segist í viðtali á blaðsíðu 22 í Fréttatím-
anum í dag gera sér vonir um að fyrirtæki
fari í auknum mæli að sjá sér hag í því að
veita fé til kvikmyndagerðar. Þættirnir
Ferðalok, sem hún framleiðir, nutu styrks
frá Tryggingamiðstöðinni. „Það er mjög
jákvæð þróun hérna að fólk sé farið að sjá
fjárfestingartækifæri í bíómyndum og sjón-
varpsefni.“
Gestur segir þó að í tilfelli Fiska á þurru
landi hafi hugmyndin eingöngu verið að
styrkja gott málefni. „Það var búið að
vera í umræðunni að innlend framleiðsla
á kvikmyndum væri orðin nánast engin,
þannig að okkur fannst þetta upplagt að
geta hjálpað til við að reyna að koma þessu
aftur í gang.“
Gestur útilokar heldur ekki að framhald
verði á þessu hjá Sparnaði. „Við erum um-
boðsaðilar Bayern-Versicherung á Íslandi
en það fyrirtæki er einnig mikið fyrir að
styðja góð málefni. Þeir eru mjög hrifnir af
þessari hugmynd að styrkja íslenska kvik-
myndagerð þannig að það getur vel komið
til greina að við gerum meira af þessu í
samstarfi við þá.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Við tókum
bara vel í
þetta enda
finnst okkur
þetta kjörið
málefni
til þess að
styðja við
bakið á.
FiSkar á þurru landi FjármálaráðgjaFar Styðja við kvikmyndagerð
Kvikmyndagerð er kjörið
málefni til að styðja við
Tökum á kvikmyndinni Fiskar á þurru landi er nýlokið en myndin verður sýnd í tvennu lagi í Ríkis-
sjónvarpinu yfir páskana. Saga film framleiðir myndina sem er tekin upp í húsnæði fyrirtækisins
og Óskar Jónasson leikstýrir. Fjármálaráðgjafarfyrirtækið Sparnaður ehf. kemur að fjármögnun
myndarinnar en á þeim bænum er mikill vilji til þess að styðja við íslenska kvikmyndagerð.
Óskar Jónasson leikstýrir Fiskum á þurru landi sem gerist á gistiheimili í litlu plássi úti á landi. Myndin byggir á leikriti eftir
Árna Ibsen en Óskar og Sjón skrifuðu handritið.
Kvikmyndahelgi
um allt land
Íslenskir kvikmyndagerðarmenn, í sam-
starfi við Kvikmyndamiðstöð Íslands,
hyggjast bjóða landsmönnum í bíó helgina
22. - 24. mars. Tilefnið er hækkun framlaga
í Kvikmyndasjóð Íslands.
Fjölbreytt úrval íslenskra kvikmynda
verður sýnt víðs vegar um land og í ein-
hverjum tilfellum verða leikstjórar eða
aðrir aðstandendur viðstaddir sýningar
og svara spurningum að þeim loknum.
Alls verða sýningar á 20 stöðum, þar af
tveimur í Reykjavík – í Háskólabíói og Bíó
Paradís. Frekari upplýsingar og dagskrá
Íslenskrar kvikmyndahelgi verður að finna
á www.kvikmyndamidstod.is þegar nær
dregur. Íslenskar kvikmyndir verða auk
Reykjavíkur sýndar á eftirfarandi stöðum:
Akranesi, Ólafsvík, Hvammstanga, Sauðár-
króki, Blönduósi, Ísafirði, Patreksfirði,
Ólafsfirði, Akureyri, Laugum, Raufarhöfn,
Vopnafirði, Egilsstöðum, Seyðisfirði, Höfn
í Hornafirði, Kirkjubæjarklaustri, Hvolsvelli
og Vestmannaeyjum.
Ósáttur við fullyrðingar Rúnars
„Rúnar talar um að hann beri hag hinna látnu og aðstandenda fyrir brjósti og það er
gott mál. Þá ætti hann kannski að huga að því að kostnaður við útfarir hefur hækkað
um 50-60% frá hruni sem er langt umfram verðlag.
Það fer ekki alveg saman hljóð og mynd þarna,“ segir
Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða Reykjavík-
urprófastdæma.
Fréttatíminn greindi frá því í síðustu viku að Kirkju-
garðarnir hafi stefnt Rúnari Geirmundssyni útfarar-
stjóra vegna vangreiddra kirkjugarðsgjalda. Þórsteinn
segir að kirkjugarðsgjald sé í raun ekki rétta orðið því
verið sé að innheimta afnotagjald fyrir húsnæði, sem
standa á straum af ræstingu, ljósi og hita. „Þetta gjald
hefur verið innheimt í flestum sóknarkirkjum á höfuð-
borgarsvæðinu í mörg ár og Rúnar hefur rukkað það án
möglunar. Svo þegar við byrjum að rukka gjaldið vegna
niðurskurðar hjá ríkinu þá rís hann upp á lappirnar og neitar að rukka fyrir okkur eins
og aðrar kirkjur,“ segir hann.
Að auki segir Þórsteinn það ekki rétt sem Rúnar heldur fram að útfararstjórar þurfi
að leggja út fyrir gjaldinu og rukka svo aðstandendur hinna látnu. Hið rétta sé að
útfararstofurnar fái vikulega yfirlit yfir athafnirnar og þá aðstandendur sem hlut eiga
að máli. Síðan sé sendur reikningur í byrjun næsta mánaðar sem er með eindaga 25
dögum síðar.
„Kirkjugarðarnir eru hálfopinbert fyrirtæki sem eiga að rekast á núllinu. Við viljum
bara frið um þessa starfsemi en ekki svona augljósa orrahríð. Það er ekki í anda
þeirrar útfararstefnu sem við viljum hafa hér á landi að menn fari í hár saman. Auð-
vitað kosta hlutirnir sitt en þetta gjald er í samræmi við það sem sóknarkirkjurnar á
svæðinu rukka. Gjaldið er rukkað vegna þess að tekjur kirkjugarðanna minnkuðu um
30 prósent vegna vandræða í ríkisbúskapnum. Þegar við ætlum að halda okkur réttu
megin við núllið þá fáum við bit aftan í hælinn.“ -hdm
Þórsteinn Ragnarsson,
forstjóri.
Ekki er ósennilegt að kvikmyndin
Löggulíf verði sýnd á Íslenskri kvik-
myndahelgi dagana 22. - 24. mars.
veður FöStudagur laugardagur Sunnudagur
A-átt, ekki hvöss. Él eðA slyddA
suðAustAn og AustAnlAnds.
höfuðboRgARsvæðið: LÍTILSHÁTTAR
RIGnInG FRAMAn AF dEGI.
AðgeRðARlítið veðuR á lAndinu, hiti
um fRostmARk og víðAst ÞuRRt.
höfuðboRgARsvæðið: Að MESTu ÞuRRT
oG yFIR FRoSTMARKI.
hægviðRi og bjARt. fRost til
lAndsins, en um núllið við sjÓinn.
höfuðboRgARsvæðið: LéTTSKýJAð
oG HITI uM FRoSTMARK.
veður róast mikið
Eftir hret og illviðri vikunnar róast um
helgina. Strekkingur á föstudag, en síðan
hægur vindur og hægviðri á sunnudag.
Lítilsháttar rigning fyrst í stað, slydda eða
snjókoma SA-lands. Helgin lofar góðu, frost
til landsins og hiti 1-3 stig við sjóinn
að deginum. Kjörið útivistar-
veður fyrir landann, ekki síst
á sunnudag þegar bæði sólin
sýnir sig og vindur verður
hægur.
3
0 -1
0
2
2
-1 -3 -2
2
1
0 -3 -5
0
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
4 fréttir Helgin 8.-10. mars 2013