Fréttatíminn - 08.03.2013, Page 6
V anræksla er langstærsta og algengasta vandamálið sem við stöndum frammi fyrir í ofbeldi gegn börnum,“ segir
Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri
Unicef. Í nýútkominni skýrslu samtakanna er
farið ítarlega í gegnum fimm flokka ofbeldis
sem börn verða fyrir. Skýrslan var kynnt í
gær, fimmtudag, á fundi ráðherra, fjölmiðla og
barna sem hjálpuðu til við vinnslu hennar.
Í skýrslunni segir að þegar fjallað sé um
ofbeldi og illa meðferð á börnum gleymist oft
að fjalla um vanrækslu. Vanræksla er á margan
hátt ólík öðrum tegundum ofbeldis því of-
beldið sem um ræðir er í formi athafnaleysis.
Athafnaleysi uppalenda er líklegt til að skaða
barnið með einum eða öðrum hætti.
Vanrækslan er samkvæmt skýrslunni sá
þáttur í ofbeldi barna sem er hve algengastur.
Nærri þrjú þúsund tilvik um vanrækslu eru til-
kynnt til barnaverndaryfirvalda ár hvert. Það
er mun hærra hlutfall en í hinum flokkunum.
„Mjög erfitt er að skilgreina þetta ofbeldi og
til þess þurfum samstillt átak og umræðu svo
hægt sé að móta haldbæra stefnu í málaflokkn-
um. Vanræksla snýst nefnilega ekki um gjörðir
heldur skort á þeim. Það má líta á það sem svo
að það sé ofbeldi þegar að foreldrar missa tökin
á foreldrahlutverkinu,“ segir Stefán.
Hann bendir á að umræðan um vanrækslu
barna sé komin skammarlega skammt á veg
miðað við umfang. „Umræðan um einelti er
komin lengst. Umræðan um heimilisofbeldi
og kynferðisofbeldi er komin af stað og við
fögnum því að sjálfsögðu. En vanrækslan hefur
að mestu setið á hakanum. Það er auðvitað
ótækt þar sem þetta er gríðarstór vandi,“ segir
Stefán og bendir á að gott dæmi um það sé
skortur á tölulegum heimildum og mælingum
frá hinu opinbera um afleiðingar langvarandi
vanrækslu.
Hann bendir jafnframt á að á meðan ekki sé
rætt um vandann út á við og hann sé ekki uppi
á yfirborðinu sé erfiðara að leita leiða við að
uppræta hann. Á þessu vekur Unicef athygli
með birtingu kaflans í skýrslunni.
Í aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar 2007-
2011 til að styrkja stöðu barna og ungmenna
var að finna tillögu um foreldrafærniþjálfun.
Tillaga þessi gekk ekki eftir nema að hluta og í
örfáum sveitarfélögum.
„Við höfum verið að fara fram á úrræði fyrir
foreldra í formi námskeiða og það gekk eftir
í einhverjum sveitarfélögum. Við köllum því
eftir úrlausnum á nýjan leik,“ segir Stefán og
bendir á mikilvægi þess að styðja við þá for-
eldra sem hafa misst hafa, eða eru við það að
missa tökin á foreldrahlutverkinu. Hann segir
jafnframt að á foreldrafærninámskeiðunum
myndi fara fram fræðsla um vanrækslu, ofbeldi
og umönnun barna. „Slík fræðsla hefur mikil-
væg forvarnaráhrif gegn vanrækslu barna.“
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
SkýrSla Unicef Um ofbeldi gegn börnUm kynnt
Þúsundir barna vanrækt ár hvert
Skýrsla Unicef um ofbeldi gegn börnum var kynnt almenningi í gær. Skýrslan er ítarlegt yfirlit um helstu tegundir ofbeldisins
og einnig hugmyndir um úrbætur. Athygli vekur að minnst hefur verið fjallað opinberlega um stærsta hópinn sem er vanrækt
börn. Tilkynningar um slíkt ofbeldi eru tæplega þrjú þúsund ár hvert.
Skýrsla Unicef um
ofbeldi gegn börnum
var kynnt almenningi í
gær. Það vekur athygli
að algengasta gerð
ofbeldis er vanræksla.
Brýn þörf á úrbótum
segir Stefán Ingi Stef-
ánsson, framkvæmda-
stjóri samtakanna.
Líkamleg vanræksla:
Fæði ábótavant
Klæðnaði ábótavant
Hreinlæti ábótavant
Húsnæði ábótavant
Heilbrigðisþjónustu ábótavant
Vanræksla varðandi umsjón og eftirlit:
Foreldri fylgist ekki nægilega vel með
barni sínu
Barn er skilið eftir eitt án þess að hafa
aldur og þroska til þess
Barn er skilið eftir hjá hæfum aðila en
óeðlilega lengi
Barn er skilið eftir hjá óhæfum einstak-
lingi sem ýmist beitir það ofbeldi eða ekki
Barn er ekki verndað og jafnvel í hættu
vegna annarlegs ástands foreldris, s.s.
vímuefnaneyslu
Tilfinningaleg/sálræn vanræksla:
Foreldri vanrækir tilfinningalegar þarfir
barns
Foreldri örvar hugrænan þroska barns
ekki nægilega
Foreldri vanrækir félagsþroska barns
Foreldri setur barni ekki eðlileg mörk og
beitir það ekki nauðsynlegum aga
Vanræksla varðandi nám:
Mætingu barns í skóla ábótavant án inn-
grips foreldra
Barn er ekki skráð í skóla eða missir mikið
úr skóla vegna ólögmætra aðstæðna
Foreldrar sinna ekki ábendingum skóla
um sérfræðiaðstoð fyrir barnið
Barn skortir ítrekað nauðsynleg áhöld til
skólastarfs, t.d. bækur, leikfimiföt eða
sundföt
Meðal þess sem flokkast undir vanrækslu
Vanræksla varðandi nám: 119
Líkamleg vanræksla: 174
Tilfinningaleg vanræksla: 197
Þar af foreldrar í áfengis- og fíkniefnaneyslu: 676
Vanræksla varðandi umsjón og eftirlit: 2.353
Fjöldi tilkynninga vegna vanrækslu
Ármúla 30 | 108 Reyk jav í k | S ími 560 1600 | w w w.borgun . i s
Með Borgun tekur þú
við öllum kortum
– hvar og hvenær sem er
J
ó
n
s
s
o
n
&
L
e
’m
a
c
k
s
•
jl
.i
s
•
s
Ía
Inngangur
að lögfræði
Ketilbjöllur
3.350 kr.
8.390 kr.3 nætur
á Mývatni 46.370 kr.
Vefverslun á að
virka alls staðar
Meira en helmingur Íslendinga notar netið með farsímum
og spjaldtölvum. Er þín vefverslun tilbúin?
Fáðu frekari upplýsingar á borgun.is/vefgreidslur eða í síma 560 1600
6 fréttir Helgin 8.-10. mars 2013