Fréttatíminn - 08.03.2013, Page 9
Norðmenn borga mest
fyrir lambið
Norðmenn borga mest allra þjóða fyrir
íslenskt lambakjöt og hefur útflutningur
á lambakjöti stóraukist frá árinu 2009, að
því er fram kom hjá Þórarni Inga Péturs-
syni, formanni Landssambands sauðfjár-
banda, í Bændablaðinu. Heildarverðmæti
úflutnings á liðnu ár nam 3,1 milljarði. Nor-
egur er sem fyrr dýrmætasti markaðurinn
og gefur hæsta verð fyrir afurðina en
Bretland kemur þar á eftir. Þórarinn sagði
Evrópumarkað mjög dapran um þessar
mundir vegna efnahagslægðar en Banda-
ríkjamarkaður væri verðmætur og myndi
eflaust stækka til framtíðar litið.
-sda
Óveðrið veldur
vandræðum
Íbúar á sunnanverðu landinu hafa án efa
orðið varir við mikil óhreinindi síðustu
daga. Öskufjúk og moldviðri hefur gert
höfuðborgarbúum lífið leitt og víða
orðið til vandræða. Loka þurfti nokkrum
sundlaugum á svæðinu á meðan hreins-
unarstarf fór fram. Þegar starfsmenn Ár-
bæjarlaugar mættu til vinnu í gærmorgun
voru bæði laugin og laugarsvæðið þakin
óhreinindum. Laugin var lokuð fram yfir
hádegi á meðan starfsmenn luku hreins-
unarstarfi. Anna Magnúsdóttir, starfs-
maður Árbæjarlaugar, segir ástandið hafa
verið mjög slæmt þegar hún kom til vinnu
í gærmorgun. „Laugin var full af ösku,
mold og ógeði. Við erum búin að vera að
þrífa í allan morgun. Við byrjuðum á því að
reyna að þrífa pottana án þess að tæma
þá en það gekk ekki. Við tæmdum því bæði
pottana og laugina, það var eina leiðin til
þess að þrífa þetta allt.“ Hreinsunarstarfið
gekk vel og laugin var opnuð fljótlega eftir
hádegið í gær. -bpj
4BLS
BÆKLIN
GUR
16BLSBÆKLINGUR
STÚTFULLUR AF PÁSKALEGUM MARS
TILBOÐUM
Tölvutek • Reykjavík • Borgartúni 31 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
SMELLTUÁ KÖRFUNANETBÆKLINGUR Á WWW.TOLVUTEK.IS MEÐ GAGNVIRKUM KÖRFUHNAPP
BIKINÍ-ÁSKORUN
Allar nánari upplýsingar um
námskeiðin, tímasetningu,
verð og skráningu finnur
þú á www.hreyfing.is
Innifalið í námskeiðinu:
• Þjálfun og mataræði tekið í gegn
• Sérhannað æfingakerfi sem miðar að því að komast úr stöðnun
og tryggja að þú komist í þitt allra besta form
• Auka æfingaáætlun til að tryggja þátttakendum hámarksárangur
• Aðgangur að glæsilegri útiaðstöðu – jarðsjávarpotti
og gufuböðum
• Dagleg hvatning, fróðleikur og aðgangur að uppskriftum frá
Ágústu Johnson á lokuðu heimasvæði inni á www.hreyfing.is
• Sérstakt mataræði sem dregur úr sykurlöngun og stuðlar
að því að þú náir varanlegu þyngdartapi
• Mælingar – vigtun og fitumælingar – fyrir og eftir
• Kvöldstund í Blue Lagoon spa
Taktu áskorun og vertu í þínu allra besta
formi í sumar. Vertu léttari á þér, léttari
í lund, sterkari og flottari!