Fréttatíminn - 08.03.2013, Side 22
V
ala Garðarsdóttir
fornleifafræðingur
fékk hugmyndina að
þáttunum Ferðalok
fyrir all nokkrum
árum en í þáttunum eru Íslendinga-
sögurnar skoðaðar út frá fornminj-
um sem í einhverjum tilfellum geta
rennt stoðum undir að sumt sem
þar á sér stað hafi gerst í raunveru-
leikanum.
Þættirnir sem eru sex talsins
hefja göngu sína í Sjónvarpinu á
sunnudaginn en hreyfing komst á
gerð þeirra þegar Vala fór með hug-
myndina til vinkonu sinnar Rakelar
Garðarsdóttur í Vesturporti.
„Við Vala erum saman í fótbolta-
liðinu FC Ógn. Stelpuliðinu sem
er frægasta liðið í bænum,“ segir
Rakel. „Hún kom einhvern tíma
með þetta til mín eftir að hafa unnið
að þessu í mörg, mörg ár. Hana
langaði svo að gera sjónvarpsþætti
úr þessu og mér leist strax mjög vel
á efnið.“
Rakel segist ekki síst hugsa þætt-
ina sem ákveðna upprifjun fyrir fólk
sem hefur ekki litið lengi í sagna-
arfinn. „Ég held að þetta séu fínir
þættir fyrir fólk eins og mig. Ég
las kannski Íslendingasögurnar í
menntaskóla fyrir próf og hef síðan
eiginlega ekkert rifjað þetta upp
síðan. Þannig að ég kann þær eigin-
lega ekki lengur. Svo er maður allt-
af í útlöndum, eitthvað að hreykja
sér af Íslendingasögunum og út-
lendingarnir eru eiginlega betur að
sér í þeim en maður sjálfur.“
Rakel segist því hafa talið löngu
tímabært að vinna myndrænt með
sögurnar og gera þeim skil í sjón-
varpi. „Fyrir utan það sem Björn
Brynjúlfur Björnsson gerði með
Njálu fyrir nokkrum árum og fór
ekki mjög hátt er þetta eiginlega
ekki neitt nema bara Útlaginn.“
Leitin að sannleikanum
Í Ferðalokum er leiknum atriðum
úr Íslendingasögunum fléttað sam-
an við viðtöl við fræðafólk og fleiri
sem hafa skoðanir á sögunum og
fornleifafræðin er lögð til grundvall-
ar. „Við erum líka að reyna að festa
hendur á því hvort einhver sann-
leikskorn séu í sögunum eða hvort
þetta séu allt bara bókmenntir. Það
er stóra spurningin og eiginlega
rauði þráðurinn í þáttunum. Við
blöndum saman alls konar sér-
fræðingum, rithöfundum og öðrum
spekúlöntum og erum að reyna að
finna út hvort sögurnar séu sannar
eða hreinn uppspuni.“
Sjálf telur Rakel nokkuð víst að
í sögunum leynist sannleikskorn
hér og þar en þó sé búið að færa
vel í stílinn og skálda í eyður. „Ég
held að eitthvað af þessu fólki hafi
verið til en að sögurnar og hetju-
bardagarnir séu vel kryddaðir.
Ekki ósvipað og í Biblíunni en ég lít
svolítið á Íslendingasögurnar eins
og Biblíuna. Þetta er ritað mörg
hundruð árum eftir að atburðirnir
gerast þannig að eitthvað hlýtur
að hafa skolast til. Ég man varla
hvað ég var að gera í síðustu viku til
dæmis.“
Í þáttunum kemur þó fram að
víða leynist fornleifar sem renni
stoðum undir suma atburði í sögun-
um. „Í þáttunum finnum við fullt af
stöðum sem renna stoðum undir að
margt sé satt í þessu og við drögum
fram fornleifar sem passa við ýmsa
atburði. Þetta var svolítið eins og að
vera í spæjaraleik.“
Persónur lifna við
Rakel segir að í þáttunum sé teflt
fram úrvalsdeild íslenskra leikara
og það hafi verið mikið fjör á töku-
stöðum og gaman að sjá vel þekktar
persónur, sem hafa lifað með þjóð-
inni í gegnum aldirnar, lifna við.
„Þetta eru margar rosalega
flottar og stórar senur og það var
skemmtilegt að sjá þessar mögn-
uðu persónur úr bókunum lifna
við. Þetta var frábært og maður
hefði bara viljað gera meira. Það er
alltaf þannig,“ segir Rakel og úti-
lokar ekki að framhald verði á ef vel
gengur.
„Við erum byrjuð að fá fyrir-
spurnir frá útlöndum þannig að
áhuginn á efninu er mikill. Ekki
síst vegna þess að það hefur ekki
mikið verið gert af þessu fyrir þenn-
an miðil þannig að þetta er mjög
spennandi.“
Rakel segir hópinn sem vann
þættina hafa verið lítinn sem hún
telur óumdeildan kost. „Við unnum
þetta mjög náið saman í litlum hópi
sem mér fannst mjög þægilegt. Það
var vel valinn maður í hverri stöðu
en engum ofaukið. Við ferðuðumst
um allt landið og það var mjög
skemmtilegt.“
Björn Hlynur Haraldsson tók
að sér leikstjórn heimildarhluta
þáttanna en þegar honum bauðst
hlutverk í sjónvarpsþáttunum The
Borgias varð hann frá að hverfa og
Ragnar Hansson kom í hans stað og
leikstýrði öllum leiknu atriðunum í
þáttunum.
Brjálað að gera
Rakel og Vala lögðu upp í leiðangur
sinn með lítið fé en eftir því sem á
leið stækkaði verkefnið í höndum
Íslendingasögurnar
eru okkar Shakespeare
Sjónvarpsþættirnir Ferðalok fara yfir valda atburði úr Íslendingasögunum og tengja þá við forn-
minjar og gripi sem enn eru til. Hugmyndin að þáttunum er komin frá Völu Garðarsdóttur forn-
leifafræðingi sem skrifar handrit þeirra. Rakel Garðarsdóttir, vinkona Völu, framleiðir þættina
sem hefja göngu sína í Ríkissjónvarpinu á sunnudagskvöld. Rakel segir löngu tímabært að gera
Íslendingasögunum myndræn skil í sjónvarpi og finnur fyrir áhuga á þáttunum í útlöndum.
Hallgerður er svo
flókin og það er
margt sem fer
mikið í taugarnar á
mér í fari hennar.
Gegn krabbameini í körlum
Nicotinell er
samstarfsaðili
Krabbameinsfélagsins
®
Nicotinell Fruit lyfjatyggigúmmí, inniheldur 2 eða 4 mg . nikótín. Til meðferðar á tóbaksfíkn en lyfið dregur
úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum og það auðveldar þar með reykingarfólki sem vill hætta að reykja,
að hætta og auðveldar þeim sem ekki geta hætt, eða eru tregir til þess, að draga úr reykingum. Ekki má
nota Nicotinell Fruit ef þú reykir ekki og ekki má reykja samhliða notkun Nicotinell Fruit. Ráðlagður
skammtur fer eftir því hversu háð/-ur þú ert reykingum. Þú skalt nota Nicotinell Fruit 4 mg ef þú ert með
mikla nikótínþörf, reykir fleiri en 30 sígarettur/sólarhring eða ef þér hefur ekki tekist að hætta að reykja
með notkun 2 mg lyfjatyggigúmmís. Annars skaltu nota Nicotinell Fruit 2 mg ef reykt er minna en 20
sígarettur á sólarhring. Ef þú færð aukaverkanir við notkun stærri skammtsins skaltu íhuga minni skammt
í staðinn. Tyggið hægt þar til finnst sterkt bragð, látið tyggigúmmíið hvíla á milli kinnar og tannholds,
tyggið aftur þegar bragðið dofnar, endurtakið í um 30 mínútur. Ekki má kyngja lyfjatyggigúmmíinu. Í
upphafi meðferðar skaltu venjulega nota eitt stk á 1 2 klst. fresti þegar þú finnur fyrir reykingaþörf.
Venjuleg notkun er 8-12 stk í á sólarhring. Þú mátt ekki nota fleiri en 25 af 2 mg eða meira en 15 af 4 mg
lyfjatyggigúmmí á sólarhring. Lengd meðferðar er einstaklingsbundin en varir yfirleitt í a.m.k. 3 mánuði, þá
skal draga úr fjölda stk. smám saman. Meðferð skal hætt þegar neyslan er komin niður í 1-2 stk á
sólarhring og er ekki mælt með notkun lengur en í 1ár. Sumt reykingafólk gæti þó þurft lengri meðferð til
þess að forðast að byrja aftur að reykja. Leitaðu faglegrar ráðgjafar hjá lækni eða lyfjafræðingi ef þú getur
ekki hætt að nota lyfið eftir eitt ár eða ef þér tekst ekki að fækka fjölda reyktra sígaretta eftir 6 vikur.
Reykingum skal hætt um leið og einstaklingurinn er tilbúinn til þess, þó ekki síðar en eftir 6 mánaða
meðferð. Leita skal faglegrar ráðgjafar ef ekki hefur tekist að hætta reykingum eftir 9 mánaða meðferð.
Ráðfærðu þig við lækni eða lyfjafræðing áður en þú notar Nicotinell því ekki er víst þú megir nota lyfið ef
þú hefur: ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefna lyfsins,fengið einhverja hjarta eða æðasjúkdóma, sykursýki,
ofvirkan skjaldkirtil/nýrnahettur, ert með alvarlega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi, með magasár eða
gervitennur. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í
fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lítið magn af nikótíni er hættulegt börnum og getur
valdið alvarlegum einkennum eða dauða. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A.
Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
N
IC
13
01
02
Í mars renna 100 kr. af hverjum
seldum pakka af Nicotinell beint
til átaksins Mottumars.
Mundu að það eru bláu pakkarnir
frá Nicotinell sem styrkja gott
málefni.
100 KRÓNUR
22 viðtal Helgin 8.-10. mars 2013