Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.03.2013, Page 28

Fréttatíminn - 08.03.2013, Page 28
É g fann ekki fyrir móður- ást. Ég horfði á barnið og hugsaði: Hver er þetta? Hvaðan kemur þetta barn?“ segir móðir um ungbarn sitt og hefur þurft á aðstoð að halda við að tengjast barninu sínu, stúlku sem nú er rúmlega hálfs árs. „Ég sat stundum og hélt fyrir eyrum þegar hún grét því ég vissi að ég gat ekkert gert fyrir hana. Ég vissi ekkert hvað hún vildi og mér fannst sama hvað ég gerði, hún hætti aldrei að gráta. Mér fannst ég ekki skilja hana. Ég sat því og taldi mínúturnar þangað til pabbi hennar kæmi heim. Hann gat hjálpað henni, en ekki ég,“ segir hún. Konan er á þrítugsaldri og vill ekki láta nafns síns getið af tillitssemi við barn sitt. Saga hennar er ekkert eins- dæmi. Hún er ein níutíu mæðra sem fékk hjálp frá sérfræðingum Mið- stöðvar foreldra og barna, MFB, á síðasta ári. Fréttatíminn hitti þrjá af stofnendum MFB, þær Helgu Hinriks- dóttur, hjúkrunarfræðing og ljós- móður, Stefaníu Arnardóttur heilsu- gæsluhjúkrunarfræðing og Sæunni Kjartansdóttur sálgreini. Fjórði stofnandinn er Anna María Jónsdóttir geðlæknir. Algerlega fráleit hugmynd Konan lýsir því að erfiðleikarnir varðandi tengslamyndun við barnið hafi hafist á meðgöngu. „Mér fannst óhugsandi að ég væri að fara að eignast barn, meira að segja þegar fæðingin var byrjuð. Ég gat ekki einu sinni rembst í fæðingunni því mér fannst jafn líklegt að ég væri að fara að fæða barn og að ég væri að fara að fæða ljósastaur. Þetta var algerlega fráleit hugmynd,“ segir hún. Fyrir vik- ið þurfti að taka barnið með töngum og sogklukku og reyndi fæðingin því mikið á móður og barn. Við hittumst í meðferðarstöð MFB, í herbergi sem er sérútbúið fyrir for- eldra með ung börn. Þar hitta sér- fræðingarnir foreldrana með börnin sín. Herbergið er hlýlegt og notalegt, þykkar mottur á gólfum svo vel fari um börn og fullorðna, sem sitja eða liggja á gólfinu hjá börnum sínum á meðan meðferðinni stendur. Þörfin fyrir hjálp er mun meiri en stöðin nær að sinna og áætlar Stefanía Arnardóttir að alls eigi um tvö hundr- uð mæður í tengslaerfiðleikum hér á Þurfa hjálp við að elska börnin sín Hundruð mæðra hér á landi þurfa hjálp við að mynda tengsl við börn sín eftir fæðingu af ýmsum ástæðum. Þær finna ekki fyrir væntumþykju í garð barnsins síns og geta jafnvel ekki brugðist við þörfum þeirra. Dæmi eru um að þriggja mánaða barn geti ekki horfst í augu við móður sína af ótta við höfnun. Ég fann ekki fyrir móður- ást. Ég horfði á barnið og hugs- aði: Hver er þetta? Hvað- an kemur þetta barn? landi og eru í brýnni þörf fyrir hjálp. Sérfræðingar MFB hafa einbeitt sér að foreldrum með börn á fyrsta æviárinu og fá til sín báða foreldrana í meðferð ásamt barninu sínu ef báðir foreldar eru til staðar. Ein af ástæðunum fyrir því að móðir á erfitt með að tengjast barni sínu er vanlíðan móðurinnar, til að mynda vegna þunglyndis eða annarra geðsjúkdóma, þunglyndis, kvíða eða vegna þess að hún hefur sjálf ekki alist upp við eðlilega tengslamyndun í æsku. Einnig getur hún komið úr of- beldissambandi eða átt við aðra erfið- leika að etja. „Við höfum horft upp á svokallað millikynslóðasmit,“ segir Helga, „þar sem móðir hefur greinst með fæðingarþunglyndi og 18 árum síðar þarf barn hennar að leita sér hjálpar vegna fyrsta þunglyndiskasts- ins. Það er grátlegt að horfa upp á þetta, sérstaklega í ljósi þess hve það Framhald á næstu opnu www.odalsostar.is Nýjasti meðlimur Óðals fjölskyldunnar er framleiddur í Skagafirði enda nefndur eftir fjallinu Tindastól. Tindur er einstakur ostur sem fengið hefur drjúgan þroskunartíma til að ná hinu einkennandi þétta bragð. Óðals Tindur er sérstaklega bragðmikill, hæfir við ýmis tækifæri en er einnig dásamlegur einn og sér. Hann parast vel með sterku bragði þar sem hann lætur fátt yfirgnæfa sig. TINDUR NýR osTUR úR skagafIRDINUm NýJUNg Lj ós m yn d/ H ar i 28 úttekt Helgin 8.-10. mars 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.