Fréttatíminn - 08.03.2013, Side 50
50 bíó Helgin 8.-10. mars 2013
Í Rear Window
skapar Hitchcock
dásamlegan heim
sem hann þjappar
saman í einu fjöl-
býlishúsi.
HitcHcock-Hátíð SpennumeiStarinn Hylltur
a lfred Hithcock státar af mörgum bestu spennumyndum sögunnar og áhrif hans voru og eru slík að
en er vitnað og vísað í sígildar myndir
hans í kvikmyndum og sjónvarpi. Þessi
þéttvaxni Breti gerði 53 kvikmyndir á
löngum ferli og þótt hann hafi óneitan-
lega verið mistækur þá gerði hann fleiri
snilldarstykki um ævina en flestir leik-
stjórar geta látið sig dreyma um.
Rebecca, The 39 Steps, Shadow of
a Doubt og Strangers on a Train eru á
meðal þess besta sem hann gerði en þá
er upptalningin samt rétt hafin. Hitch-
cock átti farsælt samstarf með ýmsum
stórleikurum síns tíma og ber þar fyrst-
an að nefna James Stewart en þeir gerðu
fjórar myndir Vertigo, The Man Who
Knew Too Much, Rear Window og Rope.
Bíó Paradís sýnir tvær þessara mynda
um helgina, Rear Window og Vertigo en
þriðja myndin er meistarastykkið Psycho
sem Hitchcock gerði árið 1960 með Ant-
hony Perkins í hlutverki hins snarbilaða
morðingja Norman Bates. Psycho er ein
áhrifamesta hryllingsmynd sögunnar en
með henni kynnti Hitchcok búrhnífinn
til sögunnar sem hentugt drápstól og
allar götur síðan hefur þetta eldhúsáhald
verið notað grimmt til þess að salla niður
ungmenni í hryllingsmyndum en nær-
tækasta dæmið er vitaskuld Halloween-
serían. Þá þarf ekki að hafa mörg orð um
slagkraftinn í sturtuatriðinu í Psycho
þar sem Norman Bates birtist í fötum
af móður sinni, með hnífinn á lofti og
slátrar Janet Leigh þar sem hún slakar
á í steypibaði. Atriðið er svart/hvítt og
hnífurinn sést aldrei snerta fórnarlambið
en atriðið hefur engu að síður kallað
fram hroll og gæsahúð hjá áhorfendum
í áratugi.
Í Rear Window skapar Hitchcock
dásamlegan heim sem hann þjappar
saman í einu fjölbýlishúsi en ljósmyndar-
inn L.B. Jefferies fylgist með daglegu
amstri nágranna sinna með því að glápa
inn um glugga þeirra. Jeffries er bundinn
við hjólastól eftir slys og getur sig hvergi
hreyft sem kemur sér illa þegar hann
sannfærist um að einn nágranna sinna
hafi myrt eiginkonu sína. Með hjálp
unnustu sinnar og kostulegrar heima-
hjúkrunarkonu reynir hann að komast til
botns í málinu.
Eftirlætis leikkona Hitchcocks, Grace
Kelly, leikur kærustuna og samleikur
þeirra Stewarts er frábær þar sem húmor
og heitar tilfinningar ráða ferðinni.
Stewart er einnig í aðalhlutverki
sálfræðitryllisins Vertigo. Hann er fyrr-
verandi lögga sem tekur að sér að hafa
gætur á eiginkonu félaga síns. Hann
fellur fyrir henni en horfir síðan upp á
hana myrta og getur ekki komið henni
til hjálpar vegna lofthræðslunnar. Síðar
rekst hann á konu, sem Kim Novak
leikur. Hún virðist vera tvífari hinnar
látnu og eftir að þau kynnast betur fara
undarlegir hlutir að gerast.
Rear Window er sýnd á föstudags-
kvöld, Vertigo á laugardagskvöld og
Psycho á sunnudagskvöld. Allar sýning-
arnar hefjast klukkan 20.
Alfred Hichcock er einn áhrifamesti kvikmyndaleikstjóri síðustu aldar og stendur enn undir
nafnbótinni spennumeistarinn þótt hann hafi legið í gröf sinni í 33 ár. Hann gerði 53 kvikmyndir í
fullri lengd á ferlinum, vissulega misgóðar en margar þeirra eru óumdeild meistaraverk. Svartir
sunnudagar í Bíó Paradís heiðra minningu meistarans um helgina þegar þrjár af bestu myndum
hans verða sýndar. Veislan er hvalreki fyrir kvikmyndaáhugafólk enda ekki sjálfgefið að maður
geti séð Rear Window, Vertigo og Psycho á breiðtjaldi.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Gluggagægir og sturtumorðingi
James Stewart á gægjum í hinni frábæru mynd The Rear Window.
Veggspjald sem Júlía
Mai gerði fyrir Psycho-
sýninguna á svörtum
sunnudegi.
FrumSýnd oz: tHe Great and powerFul
Ævintýri hennar Dórótheu í undralandinu Oz og leit hennar að
hinum mikla galdrakarli þar er alþekkt. Galdrakarlinn reyndist ekki
allur þar sem hann er séður en í þessari nýju ævintýramynd leik-
stjórans Sams Raimi er galdrakarlinn í brennidepli og ljósi varpað á
persónu hans og forsögu.
James Franco leikur lítt þekktan og heldur vafasaman töframann
í sirkus, Oscar Diggs að nafni. Hann telur sig heldur betur í góðum
málum þegar honum er svipt frá Kansas til Oz. Á hann renna þó
tvær grímur þegar hann rekst á þrjár nornir sem efast um að hann
sé sá mikli töframaður sem hann læst vera.
Hann dregst í kjölfarið inn í erfiðleika sem steðja að Oz og þarf
að taka á honum stóra sínum, greina gott frá illu áður en það er
um seinan og taka um leið út nokkurn þroska þannig að hann geti
breyst úr loddara í hinn mikla galdrakarl í Oz.
Í öðrum hlutverkum eru Michelle Williams, Rachel Weisz, Zach
Braff, Mila Kunis, Joey King, Bill Cobbs, Bruce Campbell og Tony Cox.
James Franco leikur loddarann Oscar Giggs
sem hverfur frá Kansas til Oz þar sem honum
mæta miklir erfiðleikar.
Forsaga galdrakarlsins
Sá ágæti leikari Jason Bateman hefur gert það
býsna gott í hinum óviðjafnanlegu gamanþáttum
Arrested Development en hefur gengið brösug-
lega að fóta sig í gamanmyndum í kjölfarið. Hér
gerir hann enn eina atrennuna í Identity Thief
þar sem hann leikur prúðmenni sem lendir
í miklu klandri þegar óforskammaður svika-
hrappur stelur nafni hans og kennitölu.
Sandy Patterson er kurteis fjölskyldumaður
sem kemst að því einn góðan veðurdag að búið
er að tæma bankareikninga hans og fullnýta
kreditkortaheimildirnar auk þess sem alríkis-
lögreglan hefur lýst eftir honum. Hann áttar
sig ekki á hvað er í gangi fyrr en eftir að hann
er handtekinn og í ljós kemur að kona sem ber
sama nafn og hann hefur með svindli komist yfir
allar persónuupplýsingar hans og þykist nú vera
hann.
Sandy sér ekki fram á að kerfið verði lengi að
greiða úr flækjunni og heldur því til Flórída til
þess að hafa hendur í hári nöfnu sinnar en þá
fyrst byrja vandræðin.
Skass undir fölsku flaggi
FrumSýnd identity tHieF
Jason Bateman er í tómu tjóni í Identity
Thief.
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS MIÐASALA: 412 7711
KOMDU Í KLÚBBINN!
bioparadis.is/klubburinn
SKÓLANEMAR: 25% afsláttur
gegn framvísun skírteinis!
NÝTT Í BÍÓ PARADÍS
SJÁ SÝNINGARTÍMA Á BIOPARADIS.IS OG MIDI.IS
REAR WINDOW: 20, FÖS
VERTIGO: 20, LAU
PSYCHO: 20, SUN
MEÐLIMUR Í
MADS MIKKELSEN:
JAGTEN
Laugavegi 86 101 Reykjavík S. 511 2004 www.dunogdur.is
FERMINGARTILBOÐ
Með hverri
sæng fylgir
andadúnskoddi
Volume
Sensation
Sjampó og
hárnæring
Gefur hárinu
fyllingu og lyftingu.
Inniheldur bambus
þykkni og fljótandi
keratín sem gefa
mýkt og gljáa
án þess að
þyngja það.