Fréttatíminn - 08.03.2013, Blaðsíða 68
Helgin 8.-10. mars 2013
Fallegar neglur
Nokkur auðveld skref
fyrir betri neglur
Til að byrja með
1. Losaðu naglaböndin frá yfirborði naglanna og klipptu
burt alla lausa húð í kring. Þetta er eitthvað sem mörg
okkar freistast til að naga eða rífa í svo myndast lítil
þrálát sár. Ef naglaböndin eru fast gróin upp á nöglina
sjálfa er hægt að setja naglabandaeyði á þau.
2. Snyrtu neglurnar í þá lengd og lögun sem þú vilt hafa
þær í. Það er best að gera með naglaþjöl. Til að jafna
lengdina pússaðu framan af henni og til að móta
lögunina ferðu með þjölina frá hliðinni og inn að miðju. Það er mjög
mikilvægt að gera ekki bara fram og til baka.
3. Handabað er algjör nauðsyn. Það er frískandi og endurnærandi
að leggja hendurnar í volgt vatn í fimm mínútur. Bættu nokkrum
dropum af ilmolíu og annarri feitri olíu eins og ólívuolíu saman við
hafir þú þurrar hendur. Einnig getur verið gott að setja örlítið Epsom
salt í handabaðið.
4. Ýttu varlega niður naglaböndunum. Taktu því næst marghliða
bónþjöl til þess að jafna áferðina á sjálfri nöglinni. Notaðu fyrst
grófu hliðina til þess að gera hana alveg jafna, ekki of lengi samt því
þá getur hún þynnst um of. Þessa hlið ætti ekki að nota oft. Næst
notar þú miðlungsgrófu hlið þjalarinnar og nuddar hratt fram og til
baka til að örva blóðflæði. Að lokum pússar þú yfir með fínustu hlið
þjalarinnar, allt þar til nöglin er farin að glansa.
5. Nuddaðu handáburði vandlega á hendur og alla fingur. Nuddaðu
sérstaklega áburðinum á naglaböndin.
Að setja á naglalakk
1. Eftir að hafa leyft handáburðinum að setjast vel inn í
húðina er komin tími til að fituhreinsa nöglina. Það er
best að gera með naglalakkeyði. Þerrið vel. Gott er að
nota eyrnapinna til þess að gulltryggja að enginn raki
sé eftir við naglabönd og í hliðum.
2. Notaðu glært undirlakk í fyrstu umferð. Það lengir líf-
tíma lakksins og einnig kemur það í veg fyrir að nöglin
dragi í sig lit.
3. Gangtu úr skugga um að undirlakkið sé þornað áður en
þú berð aðallitinn á. Það er ekkert að því að leyfa sköpunargleðinni
að brjótast út við lökkunina. Hafðu marga liti, búðu til mynstur eða
málaðu mynd ofan á litaða nögl. Það er gert með litlum pensli og/
eða tannstöngli.
4. Settu eina umferð af yfirlakki „top coat“ til að lengja endingar-
tímann.
5. Haltu naglaböndunum þínum rökum og heilbrigðum með því að
bera reglulega á þig handáburð. Þannig heldurðu að nöglunum
næringu sem er nauðsynlegt, sér í lagi ef þú ert oft með naglalakk.
Einnig getur það virkað streitulosandi að nudda áburðinum á milli
handanna. Prófaðu handáburð með lavender eða öðrum ilmjurtum.
Það er mikil prýði af vel
snyrtum höndum. Fæst okkar
gefa sér þó tíma til þess að
sinna nöglum og naglabönd-
um sem skyldi. Öll getum við
þó skartað fallegum nöglum
með nokkrum einföldum
ráðum, sem ekki þarf að
endurtaka nema einu sinni til
tvisvar í mánuði. Fréttatíminn
tók saman nokkur.
Naglalökkun
þarf ekki að
einskorðast
við einn lit.
Það má prófa
sig áfram við
hinar ýmsu
útfærslur.
Handaböð
eru frískandi
og endur-
nærandi.
Eftir erfiðan
vinnudag er
fátt betra en
að dekra við
hendur og
flikka aðeins
upp á neglur í
leiðinni.
BOURJOIS
er 150 ára
á þessu ári,
af því tilefni
gefa þeir
50% afslátt
af öllum
naglalökkum
í mars
Upplýsingar um útsölustaði á Forval Facebook
Nú fáanleg í
Lyfjaveri Suðurlandsbraut
á 25% kynningarafslætti
út mars