Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.02.2013, Qupperneq 50

Fréttatíminn - 22.02.2013, Qupperneq 50
RúmGott · Smiðjuvegi 2 (við hliðina á Bónus) · Kópavogi · Sími 544 2121 Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-16 · www.rumgott.is þitt rúm eftir þínum þörfum fagleg ráðgjöf og frí Legugreining Mesta úrval landsins af heilsudýnum. Heilsudýnur í öllum stærðum - úr öllum efnum. rúmgott er eini aðilinn á íslandi sem býður uppá legugreiningu. dr au m ar úm 30-50% afsláttur af öllum heilsurúmum FERMINGARTILBOÐ 120 x 200 cm rúm á fermingartilboði. Legugreining - betri svefn - betri heiLsa 12 mánaða vaxtalaus VISA / EURO greiðsludreifing* Tilboð á arineldstæðum 20-65% afsláttur Verð: 34.900 Verð: 44.900 Verð frá 79.442 * Ei nu ng is er g re itt 3 ,5 % lá nt ök ug ja ld Á sýning- unni Silfur Íslands eru silfur- gripir sem smíðaðir voru af íslenskum lista-og hagleiks- mönnum allt frá síð- miðöldum fram á fyrri hluta 20. aldar. Niðurstaða: Vel heppnuð hátíð en ekki gallalaus fram- kvæmd. Innlendu listamennirnir voru engir eftirbátar erlendu gestanna í Hörpu, sem er frábær vettvangur fyrir svona hátíð. Vonandi er Sónar komin til að vera hér á landi.  Sónar  TónliSTarháTíð Sónar í hörpu Trylltur taktur í Hörpu S ónar hátíðin var haldin í fyrsta skipti hér á landi um síðustu helgi í tónlistarhúsinu Hörpu. Harpa er að mínum dómi alveg hreint frábær vettvangur fyrir tónlistarhátíð af þessu tagi. Undirrituð var haldin mikilli til- hlökkun fyrir hátíðinni, allt frá því að tilkynnt var um hana á síðasta ári. Margir þekktir listamenn settu svip sinn á hátíðina og var tilhlökkunin óneitanlega mest fyrir því sem þeir erlendu höfðu fram að færa. Það kom mér hins vegar á óvart að þeir lista- menn sem upp úr stóðu voru innlendir, enda kannski á heimavelli. Ghostigital og Pedro Pilatus er vert að nefna, en þó var álit margra að tón- leikar Ghostigital hefðu verið heldur of hátt stilltir, en þeir reyndu sem hægt var á hljóðkerfið. Systurnar þrjár og Oculus í hljóm- sveitinni Sísý Ey eru með efnilegri poppsveitum landsins. Hljóðheimur þeirra minnir um margt á eldra efni GusGus með Urði Hákonardóttur í for- svari. Sísý Ey hafa vakið nokkra athygli á skömmum tíma enda eru þær ferskar og frábærar söngkonur. Dillandi „oldschool“ hústaktur Oculus spilar þar stóran þátt einnig, en hann hélt síðar uppi heilmiklu partíi á fyrstu hæðinni. Ef eitthvað mætti út á bandið setja er það helst sviðsframkoman sem er ein- kennilega vandræðaleg á köflum. Þar má nefna veru auka einstaklinga á svið- inu, sem ekki virðast hafa neitt hlutverk og skemma svolítið heildarlookið. Tónleikar Modeselektor voru með þeim allra bestu. Sjálf hafði ég séð hann áður á strönd utan Berlínar- borgar fyrir tveimur sumrum og var upplifunin í þetta skipti því gjörólík. Silfurbergið nötraði í takt við tindrandi sjónarspil ljósa, salurinn var troðinn allan tímann og virtist ekkert lát á upp- klappi partíþyrstra gestanna við lok tónleikanna. Hinir goðsagnakenndu félagar í GusGus stigu næstir á svið. Þeir vita nákvæmlega hvað þeir eru að gera enda miklir reynsluboltar og ég mikill aðdáandi. Þó náðu þeir mér ekki í þetta sinn, hvort það var vegna þess að þeir komu á eftir Modeselektor eða bara fyrir það að ég saknaði Urðar. Ég yfirgaf því Silfurberg og til þess að hlýða á Retro Stefson í Norðurljósa- sal og því sá ég ekki eftir. Þvílík fag- mennska. Tónleikarnir einkenndust af mikilli gleði og innlifun hljómsveitar- meðlima sem taka áhorfendur með í skemmtilegt ferðalag allt frá upphafi til enda. Á laugardaginn lét ég mig vanta á tónleika James Blake einfaldlega vegna þess að tónlistin höfðar lítt til mín. Einnig virtust allir vera þar og troðn- ingurinn virtist óyfirstíganlegur, í það minnsta með fyrsta drykk. Ég var þó hvergi svikin því allir bestu tónleikar kvöldsins voru niðri á fyrstu hæð, þar sem Úlfur, Kippi Kaninus og Sing Fang stóðu sig með prýði á skemmtilegasta tónleikasvæði hátíðarinnar. Þar sem hægt var að sitja, standa og kaupa öl. Hátíðin var í heild sinni öll hin áhugaverðasta. Að henni var nokkuð vel staðið, svona ef tekið er tillit til þess að þetta var sú fyrsta. Það sem setti samt óneitanlega leiðinlegan svip á hátíðina var augljós og mikil eiturlyfjaneysla hluta tón- leikagesta, sem þó var meira áberandi fyrri daginn. Einnig voru þar mörg ungmenni undir lögaldri og langar bið- raðir sem voru að er virtist fullkomlega óþarfar. Í sumum tilfellum voru salirnir hreinlega tómir. Það var til að mynda pínlegt upp á að horfa þegar að félagarnir í bresku poppsveitinni Simian Mobile Disco stóðu á sviði. Þar voru aðeins örfáar hræður inni á tónleikunum sjálfum, svo fáar að ræstingafólk sá sér leik á borði og hóf þrif á salnum á meðan á tónleikum stóð. Á meðan voru samt raðir upp á aðra hæð Hörpu. Þetta bauð aðeins upp á óþarfa pirring á meðal gesta sem ráfuðu um fyrstu hæðina í reiðileysi og jafnvel slagsmál á göng- unum. Þrátt fyrir þetta var Sónar flott tón- listarhátíð í Hörpu, frábær viðbót við menningarlífið og vonandi er hún komin til að vera. María Lilja Þrastardóttir marialilja@frettatiminn.is Elín Eyþórsdóttir og systur hennar í Sísý Ey eru með efnilegri popp- sveitum landsins. Það sannaðist á Sónarhátíðinni í Hörpu. Ljósmynd/Hari Fjölbreytt dagskrá og tvær sýningar á 150 ára afmæli Þjóðminjasafnsins Í tilefni 150 ára afmælis Þjóðminjasafns Íslands verður fjölbreytt dagskrá fyrir fólk á öllum aldri frá klukkan 11-22 á sunnu- daginn, 24. febrúar. Á milli klukkan 11 og 14 verður dagskrá ætluð börnum og foreldrum. Formleg opnun afmælissýninga í Bogasal og í Horni verður klukkan 15 en klukkan 18.30 hefst dagskrá fyrir unglinga og ungt fólk sem stendur til klukkan 22. Nokkur börn verða í hlutverki leiðsögu- manna og segja gestum frá uppáhaldsgrip- unum sínum á milli klukkan 11 og 12. Litlar ballerínur frá Ballettskóla Eddu Scheving dansa klukkan 12 fyrir gesti í Myndasal. Milli klukkan 12.30 og 14 verður Lista- smiðjan – Teiknaðu uppáhaldsgripinn þinn! Myndirnar verða hengdar upp fyrir framan Myndasal. Sigurvegarar Dans dans dans sýna sigurdansinn sinn í anddyri safnsins klukkan 13. Fjöldi ungra fiðluleikara úr Suzukitónlistarskólanum í Reykjavík spilar og syngur afmælissönginn með gestum í Myndasal klukkan 13.30. Opnun afmælis- sýninga í Bogasal og í Horni verður klukkan 15. Þar verða sýningarnar Silfur Íslands í Bogasal og Silfursmiður í hjáverkum í Horni opnaðar. Ávörp flytja Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður, Vigdís Finnbogadóttir, formaður Afmælisnefndar, Katrín Jakobs- dóttir menntamálaráðherra og Sverrir Kristinsson, formaður Minja og Sögu, vinafélags Þjóðminjasafnsins. Kvennakór Háskóla Íslands syngur ásamt táknmáls- túlki við opnunina. Óvænt uppákoma á grunnsýningu verður klukkan 18.30. Klukkan 19-20.30 munu ungir tónlistarmenn spila víðsvegar um safnið. Kammerhópar frá Tónlistarskólan- um í Reykjavík og söngtríóið Mr. Norrington skemmta gestum og skapa stemningu í kringum safngripi. Hljómsveitin Ylja spilar í Myndasal klukkan 20.30-21 og klukkan 21-21.30 spilar hljómsveitin Hjaltalín í Myndasal. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. Aðgangur að safninu verður einnig ókeypis vikuna 26. febrúar til 3. mars. Á sýningunni Silfur Íslands getur að líta silfurgripi sem smíðaðir voru af íslenskum lista-og hagleiksmönnum allt frá síð- miðöldum fram á fyrri hluta 20. aldar. Á 150 ára afmæli safnsins er sjónum beint að þessum einstaka menningararfi enda eru silfurgripir meðal fegurstu muna sem Þjóðminjasafnið varðveitir. Gripirnir sem sýndir eru voru smíðaðir á Íslandi, þeir elstu á 16. eða 17. öld, hinir yngstu á miðri 20. öld. Sýningin stendur út árið 2013 í Bogasal Þjóðminjasafnsins. Á sýningunni Silfursmiður í hjáverkum má skoða verkstæði silfursmiðs, búið þeim verkfærum sem notuð voru í kringum aldamótin 1900. Uppistaða sýningarinnar er verkstæði Kristófers Péturssonar, silfur- smiðs á Kúludalsá við Hvalfjörð, sem varð- veitt er í Þjóðminjasafninu. Verkstæði Krist- ófers er dæmigerð aldamótasmiðja, þar sem mörg verkfæranna eru heimasmíðuð og silfrið kveikt við olíulampa. Sýningin stendur út árið 2013 í Horni á 2. hæð Þjóðminjasafnins. - jh 50 menning Helgin 22.-24. febrúar 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.