Fréttatíminn - 04.05.2012, Síða 2
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
Brottför: 16. júní
Verð
6 sæti laus
384.000 kr.
Nánari upplýsingar og bókanir í síma
555 4700 og á www.sunnuferdir.is
Töfrar Ítalíu - Á söngvaleiðir Davíðs
15 dagar á Ítalíu undir fararstjórn Garðars Cortes óperusöngvara
á söngvaleiðir skáldsins Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi.
Viðburðarrík ferð til Ítalíu þar sem fetað verður í
fótspor skáldsins frá Fagraskógi alla leið frá
Flórens suður til Kaprí. Ferðin er skipulögð af
Guðna í Sunnu sem hefur um áraraðir starfað að
ferðaþjónustu. Ógleymanleg menningarferð!
U m 195 konur greinast með brjóstakrabba-mein á hverju einasta ári. Fyrir þrjátíu árum, þegar ekki var gefin viðbótar-
meðferð eftir skurðaðgerð, lifðu um 65 prósent
kvennanna fimm árum eftir greiningu eða lengur.
Nú læknast yfir 90 prósent. Hugsanlega er hlut-
fallið hærra, því við vinnum yfirleitt með lifunar-
tölur sem eru tíu ára gamlar.“
Þetta segir Halla Skúladóttir, yfirlæknir
lyflækningar krabbameina hjá Landspítalanum.
Hún segir að skimun eftir brjóstakrabbameini,
sem hófst árið 1987,
hafa skilað um 1/3 af
árangrinum, en við-
bótarkrabbameins-
meðferð, sem felst í
geislum og lyfjum,
2/3.
Miklar umræður
spunnust á vefmiðl-
um eftir að Frétta-
tíminn birti viðtal við
Hólmfríði Árnadóttur
sem ákvað að fara
gegn ráðum lækna
og sleppa geisla- og
lyfjameðferð í kjölfar
fleygskurðar í brjóst
hennar fyrir ári síð-
an. Halla segir geisla-
meðferð tilheyra
fleygskurði. „Fleyg-
skurður er gerður til
þess að varðveita brjóstið,“ segir hún og að læknar
mæli stundum með því að allt brjóstið sé tekið ef
konur ætli ekki í geislameðferð. „Það gefur ná-
kvæmlega jafngóða raun að taka allt brjóstið.“
Halla segir að svona viðtöl hafi „geysilega mikil
áhrif“ á ákvörðunartöku kvenna um það hvernig
þær eigi að takast á við brjóstakrabbamein sitt.
„En það eru engar sannanir fyrir þessu.“ Spurð
hvort hún telji að fólk sem greinist með krabba-
mein hlaupi til og nýti sér óhefðbundnar leiðir
eftir viðtal eins og það sem birtist í síðasta Frétta-
tíma svarar hún:
„Ég myndi ekki halda það. Hins vegar fallast
mörgum hendur þegar þeir heyra hvað þeir eiga
mikla meðferð eftir að lokinni skurðaðgerð. Ferðin
er bara hálfnuð. Þá hljómar svona saga ósköp vel í
hugum fólks,“ segir Halla. Og heldur áfram: „Það
er tæpt ár liðið frá skurðaðgerð hennar og þá er
ekki hægt að fullyrða að hún sé læknuð þótt ég
voni svo sannarlega að svo sé. Ég óttast hins vegar
að konur sleppi því að koma til krabbameinslækn-
is í kjölfar aðgerða þegar svona greinar birtast,
því þetta er aðlaðandi hugmynd: Að sleppa við
lyf- og geislameðferðir. En þetta skiptir
geysilega miklu fyrir batahorfur
kvenna.“
Halla gagnrýnir orð Hall-
gríms Magnússonar,
heilsugæslulæknis í
Hveragerði – sem
þekktur er fyrir
óhefðbundnar
lækningar og er
umdeildur. „Það er
haugalygi að flestir
sem deyi af völdum
krabbameins deyi af
völdum fylgikvilla
meðferðarinnar.
Ef svo væri yrði
meðferð ekki
veitt. Ég talaði
við Hallgrím og
spurði í hvaða
grein hann
vísaði. Hann fór
undan í flæmingi
og sagðist ekki
muna það.“
Halla segir ekki
marga afþakka þær ráð-
leggingar sem læknar gefi
við krabbameini. „Enda hefur
líklega engin önnur sérgrein
í læknisfræði stigið eins mörg
framfaraskref eins og krabba-
meinslækningar á síðustu
áratugum.“
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Ein milljón fyrir konur
sem vilja úr vændi
Reykjavíkurborg hefur ákveðið að verja
einni milljón króna í Kristínarhús, sem er
athvarf sem Stígamót opnaði í september
og er sérstaklega hugsað fyrir konur á
leið úr vændi og mansali. Athvarfið getur
þó einnig nýst fólki sem þarf aðstöðu og
sækir viðtöl hjá Stígamótum. Styrkurinn í
ár er helmingi lægri en í fyrra. Steinunni
Gyðu- og Guðjónsdóttir, verkefnastýra
athvarfsins, segir styrk Reykjavíkurborgar
einn af mörgum; frá ríki, sveitarfélögum,
fyrirtækjum, einstaklingum, hópum og
félögum. Ef vel ætti að vera þyrfti á bilinu
40 til 70 milljónir á ári til að reka svona at-
hvarf. Fjórtán konur hafa gist í athvarfinu
frá því í september. - gag
Lestrarvika Arion
banka og Disney
Lestrarvika Arion banka og Disney hófst á
miðvikudaginn og stendur til þriðjudags-
ins, 8. maí. Markmið hennar er að hvetja
krakka á öllum aldri til að vera duglegir
að lesa sér til fróðleiks og skemmtunar.
Krakkarnir skrá lesturinn á vef Arion
banka, en ekki skiptir máli hvað er lesið;
skáldsögur, teiknimyndasögur, skólabæk-
ur, Andrés blöð eða annað skemmtilegt
lesefni, allt telst með. Nöfn krakkanna sem
taka þátt fara í pott og í lok vikunnar verða
dregnir út yfir 100 þátttakendur sem fá
vinning. Auk þess verður dreginn út vinn-
Þrír af tíu telja sig verða
forstjórar allt til enda
Færri for-
stöðumenn
ríkis-
stofnana
búast nú
við að sitja
út starfsævi sína í starfi en var árið 2007.
Þrjátíu prósent trúa því nú á móti fjörutíu
prósentum þá. Þetta sýnir nýútkomin
viðhorfskönnun sem fjármálaráðuneytið
og Stofnun stjórnsýslufræða og stjór-
nmála í Háskóla Íslands gaf út. Samkvæmt
henni mæðir mest á forstöðumönnum
heilbrigðisstofnana. Starfsánægja meðal
þeirra er mun minni en hjá öðrum forstöðu-
mönnum. Um helmingi forstöðumanna
heilbrigðisstofnana leið almennt vel í starfi
í samanburði við 84 prósent annarra for-
stöðumanna ríkisstofnana. Þar telja menn
síst að þeir fái nauðsynlegan stuðning frá
ráðuneytinu sem þeir heyra undir. - gag
ingur á hverjum degi á meðan á lestrarvik-
unni stendur. Lestrarhestur Arion banka
verður einnig dreginn út í lok vikunnar og
fær hann iPad í verðlaun – verðlaunin þau
verða veitt 10. maí. Þetta er í annað sinn
sem Lestrarvika Arion banka og Disney er
haldin. Nánari upplýsingar og skráningu
má finna á arionbanki.is/lestrarvika. Í fyrra
skráðu um tvö þúsund krakkar sig til leiks
og lásu þeir um 760 þúsund blaðsíður. - jh
BrjóstakraBBamein tæplega tvö hUndrUð konUr greinast árlega
Óttast að konur
leiti ekki til læknis
Halla Skúladóttir, yfirmaður lyflækninga krabbameina hjá Landspítalanum, óttast að konur með
brjóstakrabbamein hætti við að koma til krabbameinslæknis í kjölfar skurðaðgerða eftir birtingu
greina og viðtala sem segja af konum sem telja sig læknaðar án viðbótarmeðferða. Viðbótarmeð-
ferð skipti geysilega miklu fyrir batahorfur kvenna.
Veðjaði á óhefðbundna leið
Í viðtali við Hólmfríði Árnadótt-
ur í síðasta blaði lýsir hún því
hvernig hún barðist við brjósta-
krabbamein sem hún greindist
með í janúar í fyrra á óhefðbund-
inn hátt. Hún hreinsaði huga
og sál; kvaddi óttann og sagði
stressi stríð á hendur. Hún hafi
tekið mismunandi blómadropa
eftir því hvað hún fékkst við
hverju sinni, stundaði hreyfingu
og jóga – meðal annars á Ind-
landi. Hún fór í nálastungur og
breytti mataræði úr súru í bas-
ískt. Hún meðhöndlaði skrokk-
inn, leitaði í læknamiðlun og var
undir handleiðslu heilsugæslu-
læknisins Hallgríms Magnús-
sonar. Hún metur það svo að hún
sé laus við meinið. Hólmfríður
á tvær systur sem hafa fengið
brjóstakrabbamein. Báðar fóru
í viðbótarmeðferð. Önnur lifði.
Hin lést.
Halla Skúladóttir, yfirlæknir
lyflækninga krabbameina hjá
Landspítala.
Þekkt viðbrögð við viðbótarmeð-
ferð við krabbameini er að hárið
fýkur. Mynd/gettyimages
Bílasala gjörBreyting frá fyrra ári
Sala nýrra bíla hefur meira en tvöfaldast
Gjörbreyting hefur orðið á bílasölu
það sem af er ári ef miðað er við
árið í fyrra. Fjóra fyrstu mánuðina,
frá janúar til apríl, voru skráðir alls
1802 nýir bílar en á sama tíma í
fyrra seldust 828 bílar. Salan hefur
því ríflega tvöfaldast, eða um 117
prósent.
Toyota er söluhæsti bíllinn á
tímabilinu, 341 bíll seldur miðað
við 139 bíla á sama tíma í fyrra.
Aukningin nemur 145 prósent.
Markaðshlutdeild Toyota er 18,9
prósent. Þar á eftir kemur Kia
með 171 bíl seldan og 9,5 prósent
markaðshlutdeild. Skoda er í þriðja
sæti, 166 bílar seldir og 9,2 prósent
markaðshlutdeild.
Stærsta stökkið tekur Mazda.
Fjóra fyrstu mánuði þessa árs seldi
Mazda 61 bíl miðað við 3 á sama
tímabili í fyrra. Aukningin er yfir
2000 prósent. Annar hástökkv-
ari er Citroën sem seldi 2 bíla
fjóra fyrstu mánuði 2011 en 24
nú. Aukningin er 1100 prósent.
Volkswagen seldi 133 bíla nú miðað
við 73 í fyrra, Ford 112 bíla nú sam-
anborið við 17 í fyrra og Nissan 115
nú en 56 á sama tímabili í fyrra.
Í flokki lúxusbíla hefur mest
selst af Mercedes-Benz, 39 bílar.
Þar hafa meðal annars selst metan-
og dísilbílar sem þykja umhverfis-
vænir.
Athyglisvert er að skoða sölu
nýrra bíla í nýliðnum apríl miðað
við söluna í sama mánuði í fyrra.
Aukningin nemur 250 prósent,
726 bílar seldir nú miðað við 293
í fyrra. Mikil aukning var í sölu
þeirra bíla sem kalla má umhverfis-
milda. Kia Rio var til dæmis annar
mest seldi bíllinn en seldir voru
nær 40 slíkir. Umhverfismildir bílar seljast vel, meðal annars Kia Rio.
Eiður Smári Gudjohnsen og Ragnhildur Sverrisdóttir fá nú, sjö árum eftir að
þau fengu afhenta lóð að Hólmaþingi í Kópavogi, þær rúmu sjö milljónir sem
þau greiddu fyrir lóðina aftur í hendur auk verðbóta. Bærinn hefur þrjá
mánuði til að endurgreiða þeim.
Eiður Smári og Ragnhildur eru meðal hundraða annarra sem hafa
skilað byggingarlóð í bænum eftir efnahagshrunið. Í fyrstu átti húsið
að standa klárt í júlíbyrjun 2009 en vegna hrunsins fengu lóðahafar á
þessu svæði aukið svigrúm, sem Eiður nýtti sér. Lóðin er gegnt þeirri sem
faðir hans, Arnór Gudjohnsen, fékk á sama tíma úthlutað. Lóðaúhlutanir
bæjarins á þessum tíma vöktu mikla athygli og óánægju margra. Deilt
var um hvernig bæjaryfirvöld stóðu að málum þegar valið var á milli
umsækjenda; hverjir fengu úthlutað og hverjir ekki. - gag
Eiður hættir við að byggja í Kópavogi
2 fréttir Helgin 4.-6. maí 2012