Fréttatíminn - 04.05.2012, Page 4
Þ essir aðilar eiga alla mína samúð, en vandinn liggur í því að fólk er réttlaust,“ seg-
ir Lúðvík Geirsson, fyrrum bæjar-
stjóri í Hafnarfirði, um sorgarsögu
eigenda parhússins við Hafnargötu
41 og 41a.
Fréttatíminn hefur sagt frá
veggjatítlum sem hreiðruðu um
sig í öðrum helmingi hússins. Þar
bjó einstæð móðir og þrír synir
hennar. Bærinn greip inn í málið,
reif innviðina í ársbyrjun 2009 sem
varð til þess að eigandi heila helm-
ingsins sat uppi með það að óein-
angraður milliveggur íbúðanna
var orðinn að útvegg og híbýlin
óíbúðarhæf. Íbúðin hefur nú staðið
auð í þrjú ár. Fjölskylda konunnar
flosnaði upp þegar húsið var rifið.
Konan missti húsið á uppboði.
„Ég þekki bara málið frá þeim
tíma þegar ég var með það í fang-
inu,“ segir Lúðvík, sem ákvað að
standa að niðurrifinu á kostnað
bæjarins.
„Ég var að skoða á þessum tíma
hvort grundvöllur væri fyrir því að
bærinn leysti til sín aðra eða báðar
eignirnar og gæti þá gert eitthvað
frekar með hana; selt hana eða
rifið niður og selt lóðina,“ segir
hann en tugir milljóna hafi staðið á
milli þess sem bærinn vildi greiða
og íbúarnir fá. Spyrja verði hvar
draga eigi línuna lendi íbúar í
svona vanda.
„Þess vegna urðum við að geta
fært rök fyrir því að það væri verið
að leysa málin þannig að það yrði
ekki skaði fyrir bæinn svo heitið
geti.“
Spurður hvort bæjarfulltrúar
hefðu hugsanlega átt að sjá fyrr
að dæmið gengi ekki upp en ekki
„draga fólkið á asnaeyrunum“ –
eins og það lýsir sjálft – í tvö ár
svarar hann. „Ég veit ekki hvað
hefur gerst síðan sumarið 2010,“
segir hann. „Ég var ekki búinn að
ýta málinu út af borðinu. Menn
voru að tala saman.“
Spurður hvort honum finnist rétt
ákvörðun eftirmanns hans að forða
konunni ekki frá uppboðinu, segist
hann ekki þekkja forsendurnar.
„Hin hliðin á málinu er réttleysi
fólks sem lendir í svona málum.
Við erum hérna með Viðlagasjóð
og alla þessa sjóði,“ segir hann
„Verði jarðskjálfti er hlaupið til en
þegar svona hamfarir verða er fólk
réttlaust.“
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
GRILL OG GARÐHÚSGÖGN SEM ENDAST
YFIR 40 GERÐIR
GRILLA Í BOÐI
LANDMANN
eru frábær grill
fyrir íslenskar
aðstæður
129.900
Síð
as
ti d
ag
ur
op
nu
na
rti
lbo
ða
á l
au
ga
rd
ag
Opið til kl. 16 á laugardögum
Íbúðaverð hækkaði í apríl
1,5%
hækkun á
íbúðaverði
Apríl 2012
Hagstofa
Íslands
Veggjatítlur HVert Hús Verður sjálfstæð styrjöld eigenda
„Þau eiga alla mína samúð“
Lúðvík Geirsson, fyrrum bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir samningaviðræðum eigenda parhússins
á Hverfisgötu í Hafnarfirði og bæjarins ekki hafa verið lokið þegar hann hætti sem bæjarstjóri.
Fólkið eigi alla hans samúð. Fjölskyldan í veggjatítluhlutanum endaði á að missa sitt á uppboði og
flosnaði fjölskyldan upp. Eigandi hins hlutans situr eftir með ónothæfa íbúð.
Erling
Ólafsson
horfir á
skaðræð-
is-títlu.
Mynd/Hari
Skelfilegt að missa hús sitt undir veggjatítlur
„Það er skelfilegt að lenda í því að
missa húsið sitt vegna veggja-
títlna,“ segir Erling Ólafsson, skor-
dýrafræðingur hjá Náttúrufræði-
stofnun. Hann segir að á hverju
ári staðfesti hann að veggjatítlur
lifi meðal einnar til tveggja fjöl-
skyldna hér á landi. Helst finnist
þær í gömlum hverfum; 101 og 107
í Reykjavík, einnig í húsum hér og
þar; Vestmannaeyjum, Siglufirði
og Hafnarfirði. Engar reglur séu til
um afgreiðslu slíkra mála.
„Menn leita til sinna sveitar-
félaga og fá niðurstöðu eða enga,“
segir hann. „Hvert veggjatítluhús
er því sjálfstæð styrjöld. Svo, eins
og með öll stríð, fer það eftir því
hverjir heyja styrjöldina hvernig
hún fer.“
Hvað er veggjatítla?
Bjalla af veggjatítluætt; lítil, dökk-
brún og er einkum á ferli snemm-
sumars. Hún verpir í rifur á viði og
lirfurnar geta valdið talsverðu tjóni
á timburhúsum og húsgögnum.
Hún er um 4 mm á lengd og hljóðið
minnir á tif í klukku. Heimild: Snara.
Michelsen_255x50_B_0511.indd 1 05.05.11 14:25
bresk freigáta í
kurteisisheim-
sókn
Breska freigátan HMS St
Albans kom til Reykjavíkur í
gær, fimmtudag, í kurteisis-
heimsókn. Skipið liggur við
Skarfabakka. Breskt herskip
kom síðast í heimsókn hingað
til lands árið 2008. Freigátan
var sjósett árið 2000 en afhent
breska flotanum í nóvember
árið 2001. Freigátan er
4.900 tonn. Skipið verður til
sýnis á morgun, laugardag, frá
klukkan 10 til 15 - jh
Íbúðaverð á landinu öllu hækkaði um 1,5 prósent í apríl,
samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands. Munar þar mestu
um að íbúðaverð á landsbyggðinni hækkaði um 5,4 prósent
frá mars. Greining Íslandsbanka segir að sveiflur hafi verið
í mælingum á verðþróun íbúða á landsbyggðinni það sem
af er þessu ári. Íbúðaverð á landsbyggðinni lækkaði um 2,8
prósent í janúar og 2,6 prósent í febrúar, en þessar lækkanir
hafa nú gengið til baka. „Eftir þessa rússíbanareið er niður-
staðan sú að íbúðaverð á landsbyggð hefur ekkert breyst
það sem af er þessu ári,“ segir Greiningin. Þá hækkaði verð
sérbýla á höfuðborgarsvæðinu einnig um 1,6 prósent í apríl,
samkvæmt mælingum Hagstofunnar, en íbúðaverð í fjölbýli
á höfuðborgarsvæðinu stóð í stað. Íbúðaverð á landinu öllu
hefur nú hækkað um 1,6 prósent frá síðustu áramótum og
undanfarna 12 mánuði nemur hækkunin 8,4 prósentum að
nafnvirði og 1,1 prósenti að raunvirði. - jh
Hláturganga í Laugardalnum
Fyrsti sunnudagur í maí, 6. maí að þessu sinni, er al-
þjóðlegur hláturdagur en hann er haldinn hátíðlegur
í meira en 60 löndum. Upphafsmaður hláturjóga-
hreyfingarinnar er indverski læknirinn dr. Madan
Kataria. Hann stofnaði fyrsta hláturklúbbinn árið 1995
ásamt konu sinni Madhuri. Hláturjóga er stundað sem
líkams-, hug- og sálrækt. Í Reykjavík
er haldið upp á daginn með
hláturgöngu í Laugardalnum og
hefst hún klukkan 13 við gömlu
þvottalaugarnar, að því er
fram kemur í tilkynningu
Ástu Valdimarsdóttur
hláturjókakennara en hún
leiðir hópinn og kennir
hláturæfingar. -jh
Veður föstudagur laugardagur sunnudagur
HæGur vindur EðA n-GolA. Úrkomu-
lAust oG Allt Að þvÍ HEiðrÍkt á lAndinu.
HöfuðborGArsvæðið: hægviðri, tært
LoFt oG MjöG SÓLRÍKt. SæMiLEGA HLýtt
yfir daginn.
kÓlnAr Í vEðri oG sums stAðAr næturfrost.
Él AllrA AustAst, En AnnArs ÚrkomulAust oG
lÉttskýjAð.
HöfuðborGArsvæðið: N-GoLA oG LéttSKýjAð.
SVALt Í VEðRi, EN SLEppUR LÍKLEGA Við NætURFRoSt.
áfrAm mEinlÍtil norðAnátt oG smáÉl
AustAnlAnds, En vÍðAst lÉttskýjAð
sunnAn- oG vEstAnlAnds.
HöfuðborGArsvæðið: LitLar breytingar
frá Laugardegi.
Vorhret á glugga (sem
stendur vart undir nafni)
Í dag, föstudag, verður líklega einn þessara
fínu daga sem stundum koma í maí þegar er
nánast stilla og loftið mjög tært. Við þessar
aðstæður verður líka hætt við frosti um
nóttina, einkum þó norðaustantil
og inn til landsins. Á laugardag
kólnar einnig og N-áttin gerir
vart við sig. él eða snjómugga
sennileg austanlands framan
af deginum. Annars
áframhaldandi bjartviðri.
Útlit er fyrir svipað
veður á sunnudag.
8
6 4
5
11 6
4 1 2
5
6
5 3
1
6
Einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
lúðvík Geirsson var ekki búinn að ýta veggjatítlumálinu af borðinu sínu. Mynd/Hari
4 fréttir Helgin 4.-6. maí 2012