Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.05.2012, Síða 28

Fréttatíminn - 04.05.2012, Síða 28
H ann er kominn með annað heimili og er með fasta búsetu í Genf,“ segir Ólöf Nor- dal um manninn sinn, Tómas Má Sigurðsson, sem í ársbyrj- un flutti til Sviss til þess að reka Alcoa álrisann í Evrópu. „Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið. Ég frétti af þessu starfstilboði í byrjun desember og svo var þetta frágengið milli jóla og nýárs. Þetta gerðist á augnabliki. Hann gekk frá samningi og fór út 2. janúar. Allan janúarmánuð spurði ég mig: Hvað gerðist? Fram að þessu hefur þetta gengið vel. Hann kemur heim eins mikið og hann getur. Hann ferðast mikið til Bandaríkjanna og stoppar þá við. Svo hef ég farið út til hans með krakkana,“ segir Ólöf en viðurkennir að enn sé lítil reynsla komin á þessa fjarbúð þeirra hjóna, því ólíkt fyrri fjarbúðum er hún nú á milli landa. Eitt er þó víst, svona fyrirkomulag krefst trausts. „Já, mikils trausts. Skilyrðislauss trausts. Ég held að það sé ekkert sjálf- gefið að bæði hjónin stundi svona [ábyrgðarmikil] störf eins og við höfum gert og svona lengi. Ég held að eina leiðin til að það sé hægt sé að það ríki fullkomið traust.“ Finnst ekki erfitt að vera ein Ólöf er 46 ára gömul, lögfræðingur, fjögurra barna móðir og varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Þótt börnin séu ekki heima þessa stundina er ekki ró í húsinu. Hún stendur í framkvæmd- um. Úti á svölum athafnar smiður sig með tilheyrandi látum. Þau hjónin eru smátt og smátt að gera upp húsið, sem byggt er í lok sjötta áratugarins og þau keyptu góðærisárið 2007. Það er nokkrum húsnúmerum frá æsku- heimili hennar í Laugardalnum. Þrátt fyrir hamarshöggin er Ólöf pollróleg, berfætt og dregur annan fótinn undir sig þar sem við sitjum við borðstofuborðið. Fyrir framan hana spriklar vatn í glasi. Hún er nýkomin úr ræktinni og á leið í þingsal þar sem hún tilheyrir minnihlutanum. Nú gefst smá glæta til að skyggnast inn í persónulegt líf hennar. „Ha, erfitt að vera ein? Nei, nei, nei, það var enginn að tala um það. Enda erum við Tommi búin að vera svo hundlengi saman,“ segir Ólöf og hlær. Beið eftir ástinni og fann „Við kynntumst hér í Reykjavík. Ung. Við vorum í Háskólanum. Ég lærði lögfræði en hann var í verkfræðideild- inni. Við erum samt bæði MR-ingar. Hann er reyndar yngri en ég. En ég þekkti stráka í kringum hann. Ég held að það hafi verið þannig að við sáumst,“ segir hún þegar hún lýsir fyrstu kynnunum. Hún viðurkennir að hún hafi lítið viljað kannast við hann í menntaskóla. „Þá var hann í þriðja bekk en ég í fimmta. Ég man þó eftir honum sko, hann var nokkuð áber- andi,“ segir hún. „Ég var aftur á móti svo seinþroska. Ég var sein til í þessum strákamálum; allt of mjó, með of langar lappir og ólöguleg stelpa. Ég get alla vega ekki talið upp einhverja tuttugu kærasta og verð nú bara að viðurkenna að þegar ég var í MR stóðu strákarnir ekki í röðum. Ég veit ekkert af hverju það var. Kannski var það því eldri systur mínar sögðu að það væri rosalega mikilvægt að verða ástfangin; mætti alls ekki hleypa strákum neitt fyrr en maður væri ástfanginn. Ég beið bara eftir því og það gerðist ekkert fyrr en ég hitti Tómas, þá varð ég ástfangin,“ segir Ólöf hispurslaust – en kannski þar sem hún á tvær ungar dömur sem gætu lesið viðtalið. Óttaðist að menntunin úreltist „Hann var sjálfur 21 og ég 22 ára gömul. Ég tel að hann myndi segja að hann hafi náð í mig, en ég að mér hafi tekist að leggja snörurnar fyrir hann. Við erum mjög samhent. Við erum búin að ganga í gegnum okkar fullorð- Sjálfstæða nútímakonan Konan með svuntuna, Ólöf Nordal. Á einhver sönnunargögn? Líklegast ekki. Hún ætlaði að vera heimavinnandi þegar manninum hennar, Tómasi Má Sigurðssyni, bauðst að stýra álverinu fyrir austan. Fjórða barnið var á leiðinni og fjölskyldan að flytja út á land. Ólöf var komin með vinnu áður en barnið fæddist – í Reykjavík. Hún flaug nokkru síðar inn á þing, er í framvarðasveit stærsta stjórnmálaflokks landsins og heldur ein utan um heimilið um þessar mundir. Ólöf segir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur frá fjölskyldunni, metnaðinum, ástinni og óvæntri fjarbúð frá Tómasi. insár saman. Eins og gengur hjá fólki er stundum erfiðara, stundum auðveldara. En við höfum alltaf litið á lífið sem okkar sameiginlega verkefni.“ Eftir háskólaárin fluttu þau til Banda- ríkjanna þar sem Tómas fór í framhalds- nám og Ólöf eignaðist börn. „Ég átti eftir að klára ritgerðina og var í því að eignast fyrri hlutann af krakkaskaranum. Við áttum ekki neitt en nutum lífsins í námi, eins og á að gera. Skólinn var í litlum bæ nálægt New York og okkur fannst mikið ævintýri að fara þangað og upplifa allan heiminn.“ Þrjú börn á rúmum fjórum árum, sem nú eru á aldrinum sextán til tvítugs. „Þau fæddust öll í beit,“ segir Ólöf sem var heima þessi ár en ókyrrðist mjög við fæðingu þriðja barnsins og heimkom- una til Íslands. „Það voru þrjú ár frá því að ég kláraði lögfræðina og ég óttaðist að þekkingin væri að verða úrelt. Ég sá fyrir mér að þetta væri bara komið í hönk. Það þýddi því ekkert að segja mér að vera heima.“ Með sjö eða átta Au Pair stelpur Ólöf lýsir nokkrum áhyggjum sínum eftir að hún byrjaði að vinna úti af því að standa sig ekki sem móðir. „Og reyndar höfðum við bæði áhyggjur af því að vera ekki að standa okkur; að við ynnum of mikið. Kona sem vann með mér í sam- gönguráðuneytinu, Sæunn – mikil vin- kona mín – sagði þá við mig: Ólöf hættu að hugsa um allt draslið heima. Hættu, það fer ekki neitt. Hún sagði við mig: Ólöf, ég hef aldrei heyrt að uppvaskinu hafi verið stolið. Þetta er eitt besta lífs- mottó sem ég hef heyrt. Maður verður að slaka á,“ segir hún. „Við reyndar tókum þá ákvörðun strax Ég var sein til í þessum stráka- málum; alltof mjó, með of langar lappir og ólöguleg stelpa. Ég get alla vega ekki talið upp ein- hverja tuttugu kærasta og verð nú bara að viður- kenna að þegar ég var í MR stóðu strákarnir ekki í röðum. Ég veit ekkert af hverju það var. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is Ólöf Nordal beið lengi eftir ástinni og fann hana ekki fyrr en Tómas kom fram á sjónarsviðið. Þau hafa eytt fullorð- insárunum saman og líta á lífið sem sameiginlegt verkefni. 28 viðtal Helgin 4.-6. maí 2012

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.