Fréttatíminn - 04.05.2012, Qupperneq 35
Helgin 4.-6. maí 2012 hjólreiðar 3
Fuji Nevada 1.0
24 gíra Álstell
Diskabremmsur
Smiðjuvegur 30 - 200 Kópavogur S: 5776400
TT/Þríþrautarhjól
Þetta er hjól sem þróaðist út frá keppnishjólinu. Þeir sem telja sig
þurfa svona hjól sækjast eftir hraða. Þessi tegund hjóla byggir allt á
sem minnstri loftmótstöðu og að hljólreiðakappar komist eins hratt og
mögulegt er. Eigandi slíks hjóls mun vilja nota sérstakan hjálm
sem dregur úr loftmótstöðu og sérstakar hlífar á fótstigin
og í raun allt sem getur dregið úr loftmótstöðu.
Gíralaust hjól
Þeir sem þurfa hjól eingöngu til þess að skreppa í búð
eftir mjólk eða til þess að komast á kaffihús um helgar,
þurfa einfaldlega gíralaust hjól. Til hvers að vera að
flækja lífið með gírum þegar eina sem þarf er að geta
skroppið í bæinn? Ekkert viðhald þarf á gírum og auka-
búnaði er ekki hægt að stela ef hann er ekki til staðar!
Þeir sem snjallastir þykja fá sér hjól í stíl við klæðnaðinn.
Keppnishjól
Menn vilja komast hraðar á leiðinni
til vinnuna, ekki rétt? Og sú ágæta
hugmynd um að keppa í hjólreið-
um eða þríþraut vaknar. Þá þarf
keppnishjól. Létt grind með
mjórri dekkjum fyrir minna
viðnám er grundvöllur fyrir
auknum hraða. Skömmu eftir
þetta skref komast menn að
því að sérstaka skó og fótstig
þarf; eigendur keppnishjóla láta
ekki staðar numið þar og gera
allt sem í þeirra valdi stendur til
að létta hjólsið. Karbon er svarið, þar
sem skipta má út nánast hvaða leið-
inda málmi sem er á hjólinu fyrir kar-
bon. Svo ekki sé minnst á títan...
TweedRun
Reykjavík –
hjólað með reisn
Árið 2009 tóku reið-
hjólaáhugamenn í Lond-
on sig saman og stóðu
fyrir hóphjólreiðum í
borginni. Þessi atburður
var snérist ekki bara um
það eitt að koma saman
og hjóla, heldur klæddu
þáttakendur sig í klass-
ísk föt og draktir í anda
breskra hefðamanna og
– kvenna. Hjólin sem
hjólað var á voru á sama
hátt klassísk og virðuleg
borgarhjól.
Nú er komið að Reykja-
vík. Tveir áhugamenn um
klassískan klæðnað og
hjólreiðar eru að skipu-
leggja TweedRun Reykja-
vík. Alexander Schepsky,
sem þekkir hjólreiðar frá
blautu barnsbeini enda
ættaður frá Þýskalandi,
og félagi hans Jón Gunnar Tynes Ólason, úr Hlíðunum,
standa fyrir uppákomunni. Fyrirhugað er að halda þennan
viðburð þann 16. júni næstkomandi; hjóla um miðbæ Reykja-
víkur og enda ferðina þá í síðdegishressingu í breskum anda.
Verðlaun verða veitt fyrir best klædda herrann og dömuna
sem og fyrir glæsilegasta fararskjótann. Herrar og dömur
Reykjavíkur eru hvött til að fara í Tweed-jakkana og draktirn-
ar eða annan ámóta klassískan fatnað, mæta í hjólreiðaförina
í sumar og ljá borginni fagurt og glæsilegt yfirbragð. Skrán-
ing og nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.
tweedrun.is og Facebook-síðunni TweedRun Reykjavík.
Fleiri tegundir af reiðhjóla má nefna; „down-
hill“-hjól, enn meiri fjallahjól, BMX, svokölluð
„Cargo“ – öll þjóna þau sínum hlutverkum. Eitt
er þó víst – menn þurfa að fá sér hjól og eitt
kallar á annað: Að minnsta kosti þrjú í viðbót.
David Robertson