Fréttatíminn - 04.05.2012, Qupperneq 52
44 heimili Helgin 4.-6. maí 2012
G ott dæmi um fyrirtæki þar sem hugsjónin ræður för er Källemo. Fyrirtækið, sem í
dag er stýrt af systkinunum Karin
og Erik Lundh, var stofnað af föður
þeirra, Sven Lundh, á sjöunda áratugn-
um. Hann er lifandi goðsögn í dag í
sænskri hönnun-
arsögu en hann
var þekktur fyrir
að taka áhættu
og framleiða hluti
sem margir hefðu
fyrirfram dæmt
ómerkilega. Sum-
ir vilja meina að
Källemo framleiði
listaverk og ekki
framleiðsluvörur
en það stemmir í
raun ekki. Fyrir-
tækið framleiðir
vissulega vörur
og margar þeirra
dýrar en þá eru
það hlutir sem
framleiddir eru í
mjög litlu upplagi.
Dæmi um slíkt er nýr stóll sem fyrir-
tækið kynnti í Stokkhólmi í ár og voru
einungis gerð 123 eintök. Sú tala ræðst
af því að hönnuðurinn Mats Theselius,
sem er einn mikilvægasti hönnuður
þeirra, gerði stólinn úr kopar úr gömlu
kirkjuþaki frá bæn-
um Klippan
sem
var rifið. Efnið var takmarkað og í örm-
um stólsins er íbenholtsviður sem er
ákaflega verðmætur. Stólinn var teikn-
aður í minningu arkitektsins Sigurd
Lewerentz sem hannaði kirkjuna og
var textílmunstur stólsins teiknað eftir
gólfmunstrinu í kirkjunni. Stólarnir
seldust allir upp á mettíma enda er
markaður til fyrir sjaldgæfa hluti sem
þessa og ekki skemmir sagan fyrir.
En Källemo selur ekki einungis dýr-
ar vörur í litlu upplagi heldur einnig
vörur sem hægt er að finna í nánast
hverju heimili í Svíþjóð. Bókahillan Pi-
laster eftir John Kandell er nú þekktur
klassíker sem er víða á heimilum þar
sem erlendis. Fyrirtækið býður einnig
upp á nokkra hluti eftir íslenska arki-
tektinn Sigurð Gústafsson og hefur
það samstarf staðið yfir í fjölda ára.
Lokaverkefni Svens er að koma
endanlega á fót lista- og hönnunar-
menningarstöð sem nefnist Vanda-
lorum og er það verk komið vel á veg.
Í nágrenni höfuðstöðva fyrirtækisins
er verið að reisa hálfgert þorp þar
sem fólk getur sýnt og rætt hönnun í
öllum þeim formum sem hún kemur.
Menntun og fræðsla fær gott pláss og
er gert ráð fyrir 13 húsum þar sem
mismunandi starfsemi fer fram. Nálg-
ast má upplýsingar um það á http://
www.vandalorum.se og einnig má sjá
allt um vörur Källemo á slóðinni www.
kallemo.se.
Sigga Heimis
sigga@siggaheimis.com
HÖNNUN
Á r hvert í aprílmánuði stilla nemendur út lokaverk-efnum sínum í rúmgóðu safni Reykjavíkurborgar í Hafnarhúsinu. Mismikið fer fyrir sýningunni en í ár
sýndu nemendur í nokkrum af sölum safnsins. Því miður var
miðjurými safnsins ekki nýtt en þar hefðu stærri hlutir geta
notið sín vel, svo sem rafmagnsbíll sem var til sýnis.
Undirrituð var sérstaklega áhugasöm um sýningu vöru-
hönnuða þó svo að sjálfsögðu væri stórskemmtilegt að berja
allar deildir augum.
Meðbyr hönnunar hefur aukist gríðarlega undanfarin ár á
Íslandi. Í dag er almenn þekking og áhugi á íslenskri hönnun
góð og hún rædd sem hluti af íslensku samfélagi. Greinin er
virt sem starfsgrein og þykir sjálfsagt að hún vaxi og skapi
atvinnutækifæri svo og framlegð. Með það í huga þá skoðaði
ég sýninguna en hún vakti með mér blendnar tilfinningar.
Til sýnis var mjög breitt úrval hugmynda; frá fullunnum
vörum sem vel gætu hafa komið úr næstu húsgagnaverslun
til abstrakt hugmynda tengdum úrvinnslu hráefna eða hug-
myndafræða. Lítið bar á hugmyndum þar á milli en ég sakn-
aði þess þar sem það hefði gefið sýningunni meiri fyllingu og
jafnvægi.
Ein hugmyndin var þó mjög skemmtileg og bar af en það
er plötuspilari sem Jón Helgi Hólmgeirsson hefur hannað.
Hugmyndin er, eins og hann nefnir, gömul en útfærslan er
einföld, létt og auðskilin. Notandinn
öðlast skilning samtímis sem hann
setur hann saman og efniviðurinn
er pappír. Stórfínt verkefni hjá
efnilegum hönnuði.
Margt annað gott var á
boðstólum og er gaman
að sjá hvernig unga
kynslóðin tekur á
málum. Þó fannst mér
huglægu verkefnin of
stutt á veg komin og rann-
sóknavinnan yfirgnæfir
þar verkefnið. Eins og út-
skriftartitill deildarinnar
segir þá eru nemendur að klára
vöruhönnun og þá þarf það að vera vel skilgreind vara
sem kemur í lokin, hvort sem það er þjónusta, pakkning,
framleiðsluvara og svo framvegis.
Rafmagnsbílinn hefði ég viljað sjá í viðeigandi umhverfi og
með meiri útskýringum en það er gaman að sjá samstarfs-
verkefni LHÍ og annarra háskólastofnana og ég vona innilega
að það verði meira um slíkt í
framtíðinni.
Sýningin stendur til 6.
maí og ég hvet alla til þess
að leggja leið sína þangað.
Sýning af þessu tagi á að
vekja fólk til umhugsunar
og umræðu um skapandi
greinar og eiga öll álit rétt
á sér enda hönnun hluti af
hversdagslífi fólks.
Sigga Heimis
sigga@siggaheimis.com
Hönnun þekkinG oG ÁhuGi Á íslenskri hönnun
Hönnuðir framtíðarinnar
Eitt af vormerkjunum er sýning útskriftarnema Listaháskóla Íslands.
Jónófón
er akúst-
ískur
vínyl-
plötu-
spilari
sem
notast við
pappa-
bolla og
lúður úr
pappír til
þess að
magna
upp
tónlis-
tina af
vínylplöt-
unni.
Hönnun lifandi GoðsöGn í sænskri hönnunarsöGu
Sænska Källemo –
þar sem hugsjónin stýrir öllu
Þau eru færri en fleiri fyrirtækin sem hafa hugsjón að leiðarljósi í hönnun.
Hér sést
einfald-
lega úr
hvaða
íhlutum
Jónófón-
ninn er
gerður
úr.
Einn af stólum
Sigurðar Gústafs-
sonar sem heitir
Copy Paste.
Þegar Pilaster-hillan er full af bókum þá er
líkt og bækurnar hangi í lausu lofti.
Grænn kopar úr þaki Petri-
kirkjunnar er notaður sem
bak í þennan nýja hæginda-
stól Mats Theselius.