Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.05.2012, Page 58

Fréttatíminn - 04.05.2012, Page 58
Safe Harðjaxlinn Jason Statham er við sama heygarðshornið í Safe þar sem hann tekur á glæpahyski og ekki með neinum vett- lingatökum frekar en fyrri daginn. Hann leikur fyrrverandi lögguna Luke Wright sem á harma að hefna við mafíuna sem lét drepa fjölskyldu hans. Dag einn sér hann hvar útsendarar mafíunnar eru að eltast við dauðhrædda unga stúlku og getur ekki annað en komið henni til aðstoðar. Sú stutta býr yfir mikilvægum upplýsingum sem nokkrir glæpahópar eru til í að gera allt til að komast yfir þannig að Luke má hafa sig allan við. Aðrir miðlar: Imdb: 6.3, Rotten Tom- atoes: 51% Coriolanus Leikarinn, og að þessu sinni einnig leik- stjórinn, Ralp Fiennes færir hér leikritið Coriolanus eftir sjálfan William Shake- speare til samtímans með miklum stæl. Þegar hinn sigursæli herforingi Coriolanus er hrakinn og útskúfað frá Róm ákveður hann að ganga til liðs við erkifjanda sinn til að koma fram hefndum á þeim sem sviku hann innan borgarveggja Rómar. Fiennes fer með titilhlutverkið en Gerard Butler leikur Tullus Aufidius sem Coriolanus gengur í bandalag með. Aðrir miðlar: Imdb: 7.0, Rotten Tom- atoes: 94% How I Spent My Summer Vacation Sá heillum horfni brjálæðingur Mel Gibson reynir enn að tjasla saman ímynd sinni og nú í þessari mynd sem átti upphaflega að heita Get the Gringo. Driver hefur komist yfir haug af illa fengnu fé sem glæpaforingi nokkur telur sig ranglega eiga. Í stað þess að skila peningunum stingur Driver af til Mexíkó þar sem hann hyggst lifa í vellystingum en þegar spilltir tollverðir handtaka hann breytast fyrirætlanir hans verulega. Aðrir miðlar: Imdb: 5.2, Rotten Tom- atoes: 50% 50 bíó Helgin 4.-6. maí 2012 Það er erfitt að banka upp á – á hverju heimili – og segja fólki að hundsk- ast til þess að sjá þessa mynd.  FrumsýndAr Sérlega áhugaverð spennumynd frá Indónesíu sem fjallar um sérsveitar- manninn Rama, sem hefur ásamt félögum sínum í sérsveitinni, fengið það verkefni að uppræta glæpahóp sem búið hefur um sig í stórri blokk. Glæpaforinginn heldur til á efstu hæðinni og sérsveitin þarf að komast upp allar hæðirnar til þess að klófesta hann óafvitandi um að hann fylgist með öllu gegnum eftirlitsmyndavélar á öllum hæðum. Aðrir miðlar: Imdb. 8.3, Rotten Tom- atoes: 83% The Raid: Redemption T he Avengers er gríðarlega vel mönnuð mynd bæði hvað varðar ofurhetjur og ekki síður leikara. Og hafi einhver efast um að Joss Whedon hafi verið rétti maðurinn til þess að stýra þessu magnaða Marvel-hetjugalleríi inn á réttar brautir þá hlýtur sá hinn sami að þurfa að éta hattinn sinn með re- múlaði og rauðkáli vegna þess að hér klikkar ekkert og The Aven- gers er ekki aðeins ofurhetjumynd í hæsta gæðaflokki heldur einnig frá- bær skemmtun sem snertir strengi í hjörtum nörda á öllum aldri. Bragðarefurinn Loki, sem gerði hálfbróður sínum Þór lífið leitt í Thor, heldur uppteknum hætti og skipuleggur nú árás á jörðina, með einhverjum andskotans árum, utan úr geimnum. Ljóst er að eng- inn mannlegur máttur mun hrinda áhlaupinu þannig að Iron Man, Þór, Captain America og Hulk neyðast til að snúa bökum saman, dyggilega studdir hinum mjög svo mannlegu en þrautþjálfuðu leigumorðingjum Hawkeye og Black Widow. Þótt aðalpersónurnar hafi nú þeg- ar stimplað sig rækilega inn í eigin bíómyndum gefur Whedon sér góð- an tíma til þess að smala þeim sam- an og allir fá sitt pláss. Robert Dow- ney er vitaskuld frekur til fjörsins í hlutverki Tony Stark/Iron Man og er að vonum lang skemmtilegastur, á bestu línurnar og er ómótstæði- legur sem fyrr. Scarlett Johanssen er fáránlega flott Black Widow, fun- heit og engu minni „gaur“ en strák- arnir. Bruce Banner/Hulk hefur aldrei verið jafn áhugaverður, nú í meðförum þess frábæra leikara Mark Ruffalo og Jeremy Renner festir sig enn frekar í sessi sem ak- sjónhetja. Allt þetta magnaða gengi sér til þess að hvergi er dauðan punkt að finna í þessari frekar löngu mynd og aðdragandi lokauppgjörsins er eiginlega skemmtilegri en bardaga- veislan í lokin en ó boj, ó boj hvað sá bardagi er meiriháttar. Myndir af þessu tagi verða ekki mikið betri en The Avengers. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is  Bíódómur The Avengers  Magnaður mannskapur snýr bökum saman  Bully dAuðAns AlvArA Þarft spark í rassinn Bandaríska heimildarmyndin Bully er ágeng og óvægin mynd um einelti og skelfilegar afleiðingar þess. Kvikmyndagerðarfólkið segir sögur og fylgir eftir fimm skólakrökkum í Bandaríkjunum sem öll verða fyrir einelti. Því miður komast þau ekki öll lifandi frá þeim hildarleik og kjósa að svipta sig lífi frekar en að takast á við þann ömurlega veruleika sem jafningjar þeirra hafa skapað þeim. Stefán Karl Stefánsson leikari segir myndina gríðarlega mikilvæga hugvekju og hvetur sem flesta til þess að fara og sjá hana. Þ essi mynd er klárlega til þess fallin að opna augu fólks. Það er engin spurn-ing,“ segir Stefán Karl, sem lengi hefur látið sig einelti varða og stofnaði á sínum tíma Regnbogabörn til þess að berjast gegn þessu samfélagsmeini. „Bully tekur að mínu mati mjög vel á þessum þunga sem getur verið í eineltinu og hversu alvarlegt það getur orðið. Það kemur líka skýrt fram í þessari mynd að við látum okkur þetta engu varða fyrr en það snertir mann persónulega. Fólk hugsar bara sem svo að þetta komi ekki fyrir sig og sína og heldur fram alls konar kjaftæði eins og að stríðni sér bara eðlileg og að allir hafi gott af smá einelti.“ Stefán Karl segir Bully sýna hversu margt smátt geti gert eitt stórt í þessum efnum. „Og þá meina ég bókstaflega eins og gerðist í Sand- gerði þegar ellefu ára drengur svipti sig lífi vegna eineltis. Þetta er bara staðreynd sem við verðum að horfast í augu við. Við getum ekki leyft okkur að sópa því undir teppið þótt það sé óþægilegt að svona gerist þegar við töldum okkur öll standa vaktina án þess að við gerðum það í raun. Það er ekki fyrr en svona tilfelli koma upp að við vöknum og hugsum um hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir þetta. Mitt svar er já en þá kemur spurningin um af hverju það var þá ekki gert? Mér finnst bara kominn tími til að fólk átti sig á alvarleika málsins og að einelti er dauðans alvara. Öll þjóðin var harmi slegin og allir voru í sjokki í Sandgerði þegar þetta gerðist en síðan fjarar sjokkið út þangað til að eitthvað svona gerist aftur en þetta snýst um að við megum ekki láta þetta gerast aftur.“ Bully gefur, að mati Stefáns Karls, fólki einnig tækifæri til þess að skoða einelti úr hæfilegri fjarlægð. „Þetta gerist í Ameríku en myndin er samt eins íslensk og hún getur orðið vegna þess að einelti er í grunninn það sama alls staðar þótt samfélagslegar aðstæður á hverjum stað fyrir sig geti í grunninn breytt eðli eineltisins og hvernig það hreyfist.“ Ekki þarf að deila um forvarnargildi Bully en hversu ung telur Stefán Karl að börn geti verið til þess að höndla myndina og hafa af henni gagn? „Ég myndi kannski ekki fara með fimm ára dóttur mína að sjá þetta en myndi íhuga það með börn frá átta til tíu ára. Þetta fer náttúrlega allt eftir þroska og sumir vilja meina að börn frá tíu til tólf ára ættu að vera til- búin fyrir þetta. Það er samt ekkert í myndinni sem gefur tilefni til að banna hana innan ein- hvers aldurshóps. Hvert foreldri verður bara að spyrja sig hvort börnin þeirra geti fengið eitthvað út úr myndinni en ef fjölskyldan fer til dæmis saman þá munu skapast umræður sem eru af hinu góða og til þess er leikurinn gerður.“ Stefán Karl segist telja það ákveðinn áfellis- dóm yfir hugarfari þjóðarinnar ef fólk hópist ekki á myndina. „Það er alltaf spurning hvern- ig maður á að fara að því að sparka í rassgatið á fólki? Það er erfitt að banka upp á –á hverju heimili – og segja fólki að hundskast til þess að sjá þessa mynd. Ef við skoðum okkur sem samfélag þá hafa sextíu þúsund manns séð Svartur á leik vegna þess að hún er góður spennutryllir og ef Bully fær ekki sama áhorf- endafjölda eða eitthvað nálægt því þá verð ég verulega vonsvikinn. Það sýnir þá bara men- talítetið hjá þjóðinni. Það er bara verst að þeir sem helst þurfa að sjá mynd sem þessa fara sjaldnast.“ Alex er einn þeirra fimm krakka sem Bully fjallar um en hann verður fyrir stöðugu og grimmu einelti í skólanum.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.