Fréttatíminn - 04.05.2012, Page 60
Helgin 4.-6. maí 201252 tíska
5
dagar
dress
„Mér finnst ótrúlega erfitt að lýsa
stílnum mínum. Ætli hann sé ekki
fyrst og fremst einfaldur. Ég byggi
yfirleitt allt á svörtum sokkabuxum
eða svörtum buxum og vinn mig út frá
því,“ segir Alex Bergmann, 21 árs
listaháskólanemi – á fyrsta ári í graf-
ískri hönnun. „Innblástur tísku sæki
ég allstaðar frá. Ég les tímarit, vafra
mikið á netinu og svo er það bara
fólkið í kringum mig sem gefur mér
hugmyndir,” segir Alex.
Hún bætir því við að eiginlega séu
öll hennar föt frá útlöndum. „Hvort
sem ég fer sjálf út eða læt mömmu,
sem er flugmaður, sækja pantanir
sem ég hef pantað á netinu. Mínar
uppáhalds verslanir eru Weekdays og
Urban Outfitters en hérna heima er
það örugglega Gk. Ég er mjög dugleg
að endurnýja fataskápinn minn og eru
það aðeins einstakar flíkur sem ég á
sem eru yfir þriggja ára gamlar.“
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
Litir sumarsins
Þegar ég var stödd í Helsinki í síðasta mánuði var
sumartískan orðin allsráðandi í öllum búðarglugg-
um borgarinnar. Þrátt fyrir að borgarbúar væru
enn að klífa yfir snjóskaflana í kuldanum, ekki
enn búnir að losna við veturinn, þá voru þeir samt
farnir að versla fyrir sumarið.
Sumartískan í búðargluggum Finnlands, og all-
staðar annarstaðar, er falleg og stílhrein. Pastel-
litir eru áberandi, svo mjög að föt þess litar virðist
það eina sem konur eiga að klæðast í sumar.
Tískan hefur því þannig breyst að því leyti til að
í fyrra þá voru sterkir, samsettir litir það allra
heitasta. Nú hafa þessir sterku litir fengið að víkja
fyrir þeim mjúku og er pastel grænn, gulur og
rauður helstu litir sumarsins. Hvíti liturinn frá því
í fyrra, sem hefur legið í dvala í vetur og náði toppi
vinsælda sinna síðasta sumar, mun þó aftur fá að
njóta sín í ár og þá sérstaklega hvítar buxur, kjólar
og jakkar.
Hér hef ég verið að tala um tísku samfélags sem er
mun hlýrra yfir sumarmánuðina en Ísland. En það
á þó ekki að skipta máli. Við Íslendingar höfum
aldrei látið veðráttu stoppa okkur í að klæðast
nýjustu tísku – við fylgjum alltaf tískunni, sama
hvernig viðrar, og pörum kannski fallegar og
sumarlegar sokkabuxur við stuttbuxur eða kjóla til
þess að verjast köldum vindinum.
Þriðjudagur
Skór: Urban Outfitters
Buxur: Gina Tricot
Peysa: Stine goya
Taska: Calvin Klein
Mánudagur
Skór: Dr.
Martins
Buxur: H&M
Kjóll: Won
Hundred - Gk
Bolur: Asos
Sólgleraugu:
Ray Ban
Fimmtudagur
Kápan: Asos
Skór: Undergro-
und
Buxur: Urban
Outfitters
Peysa: Urban
Outfitters
Virkur botox-notandi
Leikkonan Jenny McCarthy er
stoltur botox-notandi og
talar hún opinskátt um
efnið í nýju viðtali við
tímaritið People. „Ég
er augljóslega virkur
botox-notandi. Ég
er 39 ára gömul og
hef ekki eina einustu
hrukku á enninu.
Ég hef ekkert á móti
lýtaaðgerðum, svo
lengi sem það gerir eitt-
hvað fyrir einstaklinginn
sjálfan. Ég er ekki tilbúin til
að eldast enn og er reiðubúin að
hægja á öldrun með allskonar efnum og
lýtaaðgerðum.“
Hælaskórnir
á hilluna
„Ég hélt að það
myndi ekki
líða sá dagur
sem ég
væri ekki
á skóm
með háum
hælum,“
segir
söngkonan
Beyonce í
ítarlegu viðtali
við tímaritið
People á dögunum,
í tilefni þess að hún
var kjörin fegursta
kona heims. „Ég
þurfti að játa mig
sigraða þegar ég
eignaðist Blue Ivy.
Það er ómögulegt
að klæðast himinn
háum hælum þegar
ég fer á milli staða,
og með frumburðinn
í fanginu. Ég hef alla
tíð eingöngu klæðst
skóm með hælum og
er þetta í fyrsta sinn
sem ég kaupi mér
flatbotna skó – eða í
um tíu ár.“
Föstudagur
Skór: Urban
Outfitters
Kjóll:
Einvera
Buxur: Gina
Tricot
Miðviku-
dagur
Skór: Dolce
Vita
Buxur: Urban
Outfitters
Peysa: Urban
Outfitters
Dugleg að
endurnýja
fataskápinn
Nauðsynlegur
fylgihlutur
fyrir konur
Fyrrum raunveruleikastjarnan
og nú hönnuðurinn, Nicole
Richie, segir að höfuðskraut
sé fylgihlutur sem allar konur
þurfa að eiga. „Konur eyða
miklum peningum í að skreyta
á sér fæturna með fallegum
skóm. Afhverju ekki að gera
það sama fyrir höfuðið?“
Nicole klæðist höfuðskrauti
ósjaldan þessa dagana og
segir að mikilvægt sé að velja
fötin fyrst áður en höfuð-
skraut sé valið.