Fréttatíminn - 04.05.2012, Side 61
Hollywood-strák-
ar tjá sig um tísku
Strákarnir í Hollywood eru jafn mikið
með á nótunum og stelpurnar þegar
kemur að tísku. Þeir lifa í heimi út-
litsdýrkunnar og þurfa að vera með
puttann á púlsinum öllum stundum.
Það er ýmislegt sem þeir hafa að segja
um tísku beggja kynja og halda þeir
ekkert aftur að sér.
Aston KutcHer
„Ég styðst við
nokkrar reglur
í tengslum við
klæðarval. Sú
mikilvægasta er
að beltið passi
við skóna. Það er
bannað að klæðast
brúnum skóm við svart belti. Það
finnst mér vera eitt stærsta tískuslys
sem karlmenn gera sig seka um.“
Penn BAdgley
„Þegar stelpa
klæðist víðum
stuttermabol,
gallabuxum,
flatbotnaskóm,
með tagl í hárinu
og byggir á
sjálfsörygginu
einu, þá er það hið kynþokkafyllsta
sem ég veit í fari kvenna.“
cHAnning tAtum
„Í auglýsingaher-
ferð sem ég tók
þátt í fyrir Dolce
& Gabbana lærði
ég að ef þér líður
ekki þægilega
í einhverri flík,
þá áttu ekki að
klæðast henni. Sjálfstraustið kemur að
sjálfu sér ef okkur líður vel í fötunum
sem við klæðumst.“
Peter sArs gAArd
„Ég hef aldrei skil-
ið afhverju konur
plokka á sér
augnabrúnirnar.
Ég elska þykkar
augnabrúnir og
finnst eins og
allar konur ættu
að láta þær vaxa.“
tAylor lAunter
„Ég er ekki mikill
aðdáandi stelpna
sem klæðast
háum hælum eða
þröngum kjólum.
Stelpur í gallabux-
um og flatbotna
skóm höfða mest
til mín. Þær virðast mun jarðbundnari
og sjálfsöruggari í eigin skinni.“
VIÐUR-
KENNT
AF EFSA
KONJAK er ný grenningarvara fyrir fullorðna í ofþyngd.
KONJAK inniheldur náttúrulegar trefjar, (glucomannan)
sem eru unnar úr konjak plöntunni sem vex í Asíu
Þegar KONJAK er notað samhliða léttu mataræði má
auka þyngdartap um allt að 60%. Það þýðir að fyrir hvert
kíló sem þú missir af eigin rammleik getur þú með hjálp
KONJAK misst allt að 1,6 kg.
Glucomannan eru fyrsta náttúrulega efnið sem sérfræð-
ingar Matvælaöryggisstofnunar Evrópu hafa viðurkennt
að raunverulega hjálpi við þyngdartap.
Glucomannan eru vatnsuppleysanlegar trefjar sem eru
þeim eiginleikum búnar að þær geta dregið til sín 2-300
falda þyngd sína af vatni. Þegar töflurnar leysast upp í
maga myndast því massi sem fyllir upp í magann og flýtir
fyrir seddu tilfinningu.
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
Fæst í apótekum, heilsubúðum, heilsuhillum stórmarkaða og á www.femin.is
Hjálpnáttúrunnar við aukakílóum