Fréttatíminn - 05.10.2012, Side 60
44 bílar Helgin 5.-7. október 2012
ReynsluakstuR Hyundai ix35
Reykjavík
Grjóthálsi 10
Sími 590 6940
Reykjavík
Skeifunni 5
Sími 590 6930
Hafnarfjörður
Hjallahrauni 4
(við Helluhraun)
Sími 590 6900
Kópavogur
Skemmuvegi 6
(bleik gata)
Sími 590 6935
Reykjanesbær
Holtsgötu 52
(við Njarðarbraut)
Sími 590 6970
www.adalskodun.is
HJÁ AÐALSKOÐUN ERT ÞÚ
Í GÓÐUM HÖNDUM
HVAR HENTAR ÞÉR AÐ LÁTA SKOÐA?
Við erum með órar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu
og eina í Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn
taka á móti þér á þeim öllum. HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG!
Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 18 ár
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
2
-1
1
6
3
Passaðu vel uppá rafgeyminn í vetur.Passaðu vel uppá rafgeyminn í vetur.
Volvo V40
frumsýndur
hérlendis
Volvo V40 var frumsýndur hjá
Brimborg síðastliðinn laugardag. Bíllinn
hefur fengið lof og var meðal annars kosinn
fyrirtækjabíll ársins í Danmörku 2012. Hann
fékk fullt hús stiga í öryggis- og árekstraprófunum
EuroNCAP, að því er fram kemur á síðu Brimborgar.
„Volvo V40 sameinar bestu eiginleika skandinavískrar
hönnunar, sambland vitsmuna og fegurðar sem sameinast
í hagnýtum lúxus. Sportleg einkenni, tilkomumikil hönnun og
viðamikill öryggisbúnaður eru eiginleikar sem eru klæðskerasniðnir
að skandinavískum áherslum,“ segir þar.
„Með loftpúða fyrir gangandi vegfarendur,“ segir enn fremur, „verður
Volvo fyrsti bílaframleiðandi heims með slíkan öryggisbúnað sem ætlað er að
draga úr alvarleika áreksturs með tækni sem lyftir upp vélarhlíf og loftpúða sem
samstundis skýst út við samstuð við vegfaranda. Þessi afar nýstárlegi öryggisbún-
aður er að auki staðalbúnaður í Volvo V40.“
Bíllinn býðst með 1.6 lítra bensínvélum, 150 og 180 hestafla og 2,5 lítra, 254 hestafla,
bensínvél. Þá fæst hann með 1.6 lítra, 115 hestafla dísilvél og 2.0 lítra dísilvélum, 150
og 177 hestafla.
Í hinum nýja Volvo V40 er meðal
annars loftpúði fyrir gang-
andi vegfarendur.
É g er ekkert sérstak-lega hávaxin á íslensk-an mælikvarða, 163
og ½ sentimetri, og því finnst
mér það ansi góður eiginleiki
á bíl þegar ég sé vel út um
framrúðuna á bílnum sem ég er að keyra. Það
var einmitt það fyrsta sem ég hugsaði þegar
ég settist undir stýri á nýja, fína Hyundai ix35
sem ég reynsluók í vikunni. Í honum situr
maður hátt og sér vel til allra
átta.
Bíllinn er nettur jepplingur
– fjórhjóladrifinn, sem hefði
hjálpað mér mikið við að komast
upp innkeyrsluna heim til mín í
vetrarfærðinni sem var í fyrra.
Hann er ekki fyrirferðarmikill
og því ekkert mál að bakka
honum inn í stæði (reyndar er
ég snillingur í því eftir að hafa
keyrt og búið í London í 4 ár).
Hann er sérstaklega léttur og
þægilegur í stýri og ég tók eftir
því hvað var auðvelt að snúa
honum nánast á punktinum á
bílastæðinu í leikskólanum. Þetta heitir víst
beygjuradíus, svo mikið veit ég, og hann er
sem sagt lítill á þessum bíl – sem þykir gott.
Skottið er snilld. Stórt, rúmgott og aðgengi-
legt. Vel er hægt að koma fyrir öllu því dóti og
drasli sem fylgir barnmargri
fjölskyldu. Tveir barnabíl-
stólar og unglingur rúmast
reyndar ekkert sérstaklega
vel í aftursætinu og kom það
mér eilítið á óvart hvað bíll-
inn er lítill að innan af jepplingi að vera. Það
fór reyndar ágætlega um börnin þrjú og ég
hefði ekkert vorkennt unglingnum mikið að
þurfa að sitja á milli barnastólanna alla leið til
Ísafjarðar. Gluggarnir í aftur-
sætinu hefðu reyndar mátt vera
hærri svo börnin sæju betur út
en þau þurftu að teygja álkuna
til að sjá ekki bara trjákrónur og
umferðarskilti.
Bíllinn er afar þægilegur í
akstri, rennilegur og hljóðlátur
og hefur í raun öll þau þægindi
sem þarf, takka í stýri, fjar-
lægðarskynjara sem pípir þegar
maður bakkar of nálægt ein-
hverju (bíl eða vegg til dæmis),
USB-tengi sem er snilld og þráð-
lausan símabúnað. Fínasti bíll
í alla staði. Hann er sæmilega
eyðslugrannur miðað við stærð, dísilútgáfan
eyðir um 6,7 lítrum á hverjum hundrað kíló-
metrum í innanbæjarakstri. Ódýrasta útgáfan
er á tæpar 5,6 milljónir, sjálfskiptur bíll með
bensínvél.
Nettur og þægilegur
jepplingur
Hyunday
ix35 er
nettur og
þægilegur
fjórhjóla-
drifinn
jepplingur
með
rúmgott
skott.
Hann er
þægilegur
í akstri,
renni-
legur og
hljóðlátur.
„Skottið
er snilld.
Stórt,
rúmgott
og
aðgengi-
legt.“
Plúsar
+ Þægilegur í akstri
+ Lítill beygjuradíus
+ Léttur í stýri
+ Stórt og gott skott
+ Fjarlægðarskynjari
Mínusar
÷ Mætti vera meira
pláss í aftursæti
÷ Afturgluggar of lágir
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@ frettatiminn.is
Ha
rð
pa
rke
t