Læknablaðið - 01.03.1927, Síða 25
LÆKNABLAÐIÐ
47
Úr útlendum læknaritum.
Sjötti fundur í „I n t e r n a t i o n a 1 Union Again^st T u b e r-
culosis", sem hefir aöalstöíSvar sínar hjá League of Red Cross Socie-
ties í París, var haldinn 30. sept.—2. okt. '26, og fór fram í Washington.
Fulltrúar komu frá 22 löndum; alls eru 32 þjóöir í þessu alþjóöa-bandalagi.
Dr. R o n z o n i, próf. viö háskólann í Milanó, hóf máls á fyrsta dag-
skrármáli, sem var um berklasýking. Taldi próf. R. aö mesta áherslu
bæri að leggja á berklavarnir meðal barnanna.
D r. A. K. K r au s e, John Hopkins University, flutti erindi um ana-
tomi berkilsins. Taldist honum til, að líkaminn vinni á berklunum hjá
90% af þeim sem smitast, og loki þá inni með bandvefsmyndun.
Dr. W. H. P a r k, i heilbrigðisstjórn New lYork, flutti fyrirlestur uin
gildi pasteurs-hitunar til eyðingar á berklasýklum í mjólk. Taldi hann
liitastigið ekki mega fara niður úr 610 C.
Næsta þing var ákveðið í Róm 1928.
(Information Bulletin, League of R. Cr. 1./1. '27).
G. Cl.
Hans Schulten: Was leistet Urotropin in der Therapie der infektiösen
Erkrankungen der ableitenden Harnwege? Múnch. med. Wochenschr.
nr. 4, 1927.
Frá þvx um 1895 hefir urotropin veriö notað sem meðal við bólgu í
þvagfærunum og við gerlum í þvagi. Reynslan hefir sýnt, að venjulegi
skamturinn, 2—4 gröm af urotropini á dag, hefir ekki nægt til þess að
drepa gerlana í þvaginu á skömmum tíma, og því var farið að reyna
hve mikið væri hægt að gefa mönnum af urotropini án þess að skaða
sjúklingana. Tilraunir hafa sýnt, að skamtar upp í 12 gröm á dag eru
tiltölulega skaðlausir. Ef meira er gefiö, þá koma oft höfuðverkir, upp-
köst og beinverkir, sem hverfa fljótt þegar hætt er viö meðalið. Ein-
kenni frá þvagfærunum eru óþægilegri. Eftir nokki-ar klukkustundir
kemur venjulega pollakisuri, sem vinna þarf á móti til þess að blaðran
geti fylst betur og þanist út, en með því móti verða áhrif meðalsins mest
á slímhúðina. Sviði getur komið í urethra, og er óþægilegur, sérstak-
lega á karlmönnum, og verður þá aö gefa narcotica. Eftir 3—6 daga get-
ur komið hæmaturi, en blóðið kemur úr blöðrunni en ekki úr nýrunum,
og því er engin ástæða til þess aö hætta við meðalið þess vegna. Ein-
stöku sinnum kemur albuminuria, en hverfur fljótt, ef hætt er viö með-
aliö. Best verkar urotropin í súru þvagi, og besta meðaliö til þess að
sýra þvagið, er ammonium-chlorid. Höf. gefur það i oblátum, 1 gram
4 sinnum á dag.
Sjúkl. voru gefin 10—12 gröm af urotropini og 4 gröm af ammonium-
chlorid yfir sólarhringinn, skift niður lxæði á nótt og dag. Þvagið varð
oft sterilt á 1. degi, en oftar þó á 2. og 3. Stundum varð það ekki sterilt
fyr en eftir viku eða rneir, og einstaka sinnum tókst alls ekki að drepa
gerlana.
Höf. ræður til þess að reyna svona meðferð í 3—8 daga, og batni ekki
að gefa þá blöðruskolanir, en dugi þær ekki, ]iá er ráðlagt að skola pelvis
renis með 2% sol. nitratis argentici. G. Th.