Læknablaðið - 01.03.1928, Blaðsíða 8
38
LÆKNABLAÐIÐ
(Health Visitors), sem starfa við allar hjúkrunarstöðvar, ganga um og
heimsækja fólk, ýmist boðnar eða óboðnar, til að leita uppi hverskonar
eymd og sjúkdóma-bágindi,, í ])vi skyni að bæta úr því sjálfar eða gera
lækni aðvart.
Fanst mér fátt eftirbreytnisverðara fyrir okkur Islendinga, jafnt og
aðrar þjóðir, en þetta víðtæka hjúkrunarkvennastarf til að kenna fólki
heilbrigðisfræði og koma í veg fyrir sjúkdóma.
IX.
Okkur voru sýndir tveir stærstu Open Air Schools fyrir
berklaveik eða p r e t u b e r c u 1 a r börn. Voru þar 150—250 börn.
Kenslan fór fram undir þaki, sem reist var yfir pallgólfi, og var opið
útsýni til allra hliða. Þegar ikalt var, eða hvast, voru börn og kennarar
vafin ábreiðum eða í vetrarfötum, en máltíðir hafðar í gildaskála. Börn-
unum var skömtuð kensla vissan tima á dag, eftir heilsu. Hjúkrunarkona
mældi hita þeirra, sem veikari voru — tvisvar á dag. Milli kenslustunda
var farið í ýmsa útileiki, eða börnin látin vinna við hitt og þetta, einkum
garðvinnu og smíðar. Okkur furðaði fulteins mikið á, hve kennararnir
undu útivistinni og þessum kuldakjörum, — því börn má venja á alt.
En hér var augljóst, af viðtali við kennarana (og kenslukonurnar), að
þeir voru fullir áhuga fyrir þessari aðferö við börnin, og sennilega sjálfir
trúaðir á að útivistin væri einnig þeim sjálfum sérlega holl.
Annars veitti eg því eftirtekt við ýms ensk sjúkrahús, en þó sérstak-
lega á krypplingahælinu í Alton (nálægt Southampton), að sjúklingar
þar í landi kippa sér ekki upp við gust inn um glugga, og kulda-aðbúð í
herbergjum. 1 Alton lágu t. d. hópar af börnum við opna alla glugga, dag
og nótt, og með þunnum ábreiðum í rúmunum. í það skifti, sem við vor-
um þar, var kalsaveður við frostmark. Eg spurði mörg börnin hvort þeim
þætti ekki kalt (sjálfir urðum við bláir af kulda við að heimsækja krakk-
ana), en þau létu vel yfir líðan sinni, og var heldur ekki að finna, að
þeim væri neitt kalt.
X.
Tvo daga í röð fórum við all-langa leiö út á landsbygðina í B e d f o r d-
i h i r e til að kynna okkur heilbrigðisráðstafanir í sveitinni (R u r a 1
Ilygiene). Með okkur fór ágætur maður, prófessor Kenwood frá
heilbrigðisráðuneytinu. Bedfordshire er með réttu kallað „The! Kitchen-
garden of London“. „Þar drýpur smjör af hverju strái“, og alt landið er
þakið aldingörðum eða matjurtagörðum, sem miðla Lundúnum feiknin
öll af allskonar matvælum.
Sáum við þar fyrirmyndarkúabú, en að vísu i gömlurn stíl — og þar
fréttum við mikið af „kappframleiðslu góðrar mjólkur". Slík kepni er
mjög að útbreiðast meðal ungra Itænda, og er það ntjög fyrir tilstuðlun
heilbrigðisráðuneytisins, eins og fyr er sagt.
í Bedfordshire hagar víða svo til, að drykkjarvatn ýmist næst ekki
með brunngreftri, eða er svo lilandað kalki og járni, að það er ónothæft,
nema með kostnaðarsömum hreinsunaraðferðum í dýrum vélasíum. Við
sáum eina slíka hreinsunarstöð ])ar sem neysluvatnið til bæjarins Bedford
cr losað við járnsora (FeC03) með því að dælast gegnum keröld fylt af