Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.08.1942, Síða 21

Læknablaðið - 01.08.1942, Síða 21
LÆ IC N.l n I. A Ð 1 Ð viðkvæmur fyrir því, ef mér er boriö á brýn, sérstaklega af þeim, sem stjórn L. í. hefir lengi átt í höggi viö um hagsbœtur héraðs- lækna, að hafa snúizt þeim til ó- hags. Mér er óhætt að segja hiö sama um meöstjórnendur mína, en því nefndi eg sjált'an mig fyrst, að eg hefi lengst starfað í stjórn félagsins og i þágu stéttarinnar. Því hefir verið borið við, eins og eg gat um áðan, að aöstoöarlækna • frv. næöi ekki fram aö ganga nema með þ\u' að vinnuskyldufrv. fylgdi með. Ef til vill hefir þetta verið rétt í fyrstu byrjun. en eftir því sem á leið þingið hreyttist þetta þannig, að aðstóðarlæknafrv. hefði fJogið í gegn alveg skilyrðis- iaust, enda er mér kunnugt um aö nefndin í n. d. ætlaöi helzt ekki aö afgreiða vinnukvaðarfrv. og geröi þaö aðeins fvrir mikla á- eggjan landlæknis, sem einnig mun hafa hámpað nokkrum skeytum frá héraðslæknum. Sem ein sönnun fyrir því, aö frv. lá ekki á, er það. að frv. um aðstoðarlækna varð aö lögum nokkru á undan. án þess aö eftir hinu væri beðið. Nei, því frv. lá ekki meira en svo a, aö þaö mátti bíða næsta þings og þess, að aöalfundur L. í. segði alit sitt um það eins og lofað hafði verið, ef þess konar frv. kæmu fram. Skal eg svo láta útrætt um þetta mál, enda gefst tækifæri til að ræða þaö þegar tekið verður fvrir ii. mál á dagskránni. Bandalag' starfsmanna ríkis og bæja leitaði stuðnings stjórnar L. f. um breytingartillögur við lögin um lífeyrissjóð embættismanna og lífeynissjóð barnakennara, er þeir töldu sig hafa vonir um að þá. gætu náð fram aö ganga. Veitti stjórn félagsins fúslega þann stuðning bréflega, með því að hún lakli þær til verulegra bóta, en 47' innihald lu-eytingartillagnanna var þetta: 1. I stað þess aö iðgjaldið er nú 7% af grunnlaunum, verði það framvegis S% af heildarlaunum, þó aldrei af hærri upphæð ár- lega en 12 þúsund krónum. I stað þess að embættismenn og barnakennarar greiða nú öll ið- gjöldin sjálfir, verði þau fram- vegis greidd að hálfu af hvor- um aðila, launþega og launveit- anda. 2. í stað þess að hámarks elli- lífeyrir er nú 75% af hámarks- grunnlaunum þeim, sem við- komandi hefir greitt iðgjöld af, verði þau framvegis 6o% af meðalárslaunum 5 eða 10 ár áð- ur en ellilíféyrisgreiðslur liefj- ast. 3. Lífeyrir maka verði yí af með- aláu'slaunum sjóðfélagans sið- ustu 5 eða 10 starfsár hans, enda sé starfstíminn minnst 10 ár. 4. Rétturinn til örorkustyrks verði aukinn nokkuð frá því, sem nú er. 5. Börnum,. sem yngri eru en 16 ára við andlát foreldris síns, er' var sjóðfélagi eða fyrrverandi sjó'ðfélagi, sem naut lífeyris við' andlátið, sé tryggöur nðVkur styrkur, þar til þau eru fullra 16 ára. 6. Sjóðfélögum, sem fara úr sjóðn- um í lifanda lífi og af öðrum orsökum en þéim, er veita líf- eyrisrétt, sé tryggð endur- greiðsla úr sjóðnum, allt aö því' eins stór og iðgjaldasumman, sem þeir hafa greitt í sjóðinn. reiknað án vaxta. 7. í líifeyrissjóð embættisVnanna verði ekki aðeins teknir allir þeir menn, sem taka laun sam- kvæmt launalögum, heldur og allir fastráðnir starfsmenn'viö ríkisstofnanirnar.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.