Læknablaðið - 01.03.1946, Page 13
LÆKXABLAÐIÐ
37
Það, sem annars er algeng-
asta orsökin til astlima í loft-
inu er vanalegt liúsryk. Eg liefi
alls liaft 5 sjúklinga, sem liafa
verið næmir fyi'ir því, og getur
verið töluvert erfitt fvrir þessa
sjúklinga að halda iieilsu,
vegna þess að þeir eru svo viða
útsettir fyrir rylc, og þarf að
gera sérstakar ráðstafanir til
þess að þeir lifi í sem rvk-
minnstu lofti.
Fyrir konur erþað sérstaklega
áríðandi, að þær fáist ekki við
að húa um rúm, sem mikið ryk-
ast upp úr, því að svo virðist,
sem ryk úr rúmum og mad-
ressum sé sérstaklega liættu-
legt, ennfremur mega þær ekki
fást við að herja teppi eða
neina slíka vinnu, þar sem mik-
ið rykast upp.
Aríðandi er, að þetta fólk
sofi í sem rykfríustum lier-
hergjum, sem séu þvegin dag-
lega, og vitanlegt er, að gólf,
sem er vel rakt, heldur miklu
hetur í sér rykinu og varnar
því að loftið sé rykað heldur
en þar sem gólfið er alveg
þurrt. Ameríkumenn liafa gert
mikið að því að immunisera
fólk fvrir húsryki, en eg liefi
ekki gert það og liefi séð yfir-
leitt sæmilegan árangur af því
að útskýra fyrir þessu fólki
í hverju sjúkdómur þeirra sé
fólginn, og gefið þeim ráð um
að lialda sér sem allra mest frá
húsrvki. Einn sjúkling hefi eg
haft, sem virtist vera næmur
fyrir göturyki, þótt það sé ann-
ars talið lillölulega meinlaust.
Þessi sjúklingur fékk livað efl-
ir annað svæsin asthma-köst,
eftir að vera útsettur fyrir götu-
og vega-ryk, og virtist veiki
hans standa greinilega i sam-
handi við það.
Undir þennan flokk verða
líka að teljast þeir, sem eru
næmir fyrir fiðri. Eg Iiefi haft
eina konu, 29 ára gamla, sem
fyrir rúmum tveim árum veikt-
ist af slæmu kvefi og broncliitis
og ui>p úr því astlnna, sem síð-
an liafði stöðugt loðað við Iiana.
Hún var auk þess sí-kvefuð, og
þótt astlnna hennar hefði byrj-
að sem infection, voru miklar
líkur til þess, að eitthvað væri
i loftinu, sem hún ekki þvldi,
einmitt vegna þess, hvað nef-
slímhúð hennar var stöðugt
þrútin. Við prófun kom í ljós,
að hún var næm fyrir fiðri.
Þegar hún hætti að sofa undir
fiðursæng, hvarf astlnnað al-
gjörlega. Áður hafði hún feng-
ið asthma á hverri einustu
nóttu, svo að hún varð að sitja
uppi i tvo til þrjá klukkutíma,
en siðan hefir ekkert l)orið á
þvi.
Þá má líka hér til teljast ein
kona, 48 ára gömul, sem síðastl.
vetur tók til að hafa sífellt kvef
og augnarennsli, ásamt mikl-
um hnerrum. P2innig kitlaði
liana mikið bæði í munn og
kok. Hana klæjaði líka mikið
í húð.