Læknablaðið - 01.03.1946, Síða 37
LÆKNABLAÐIÐ
61
smitunarhættunnar, er sködd-
un á rótinni og að liquorfistill
myndist. Liquorfistill í regio
lumbalis getur verið mjög erf-
iður viðfangs. í einu af þeim
tilfellum, sem ég liefi skorið
liér heima, hefi eg fengið þessa
komplikation, en sem hetur fór
lokaðist fistillinn eftir mánað-
artíma, og sjúkl. náði sér al-
gerlega.
Síðan ég kom heim, Iiefi ég
gert partiell laminectomi á 19
sjúkl. vegna gruns um discus-
prolaps. Hjá þremur af þessum
sjúkl. fannst enginn discuspro-
laps. Á tveimur var gerð my-
elographia vegna mjög lang-
varandi óþæginda, þrátt fyrir
það að við ytri skoðun fannst
ekkert hjá þessum sjúkl. annað
en verkir, er benti til þess að
um discusprolaps gæti verið að
ræða. Hjá báðum þessum sjúkl.
komu fram breytingar á mve-
logramminu, sem ótvirætt virt-
ust benda til þess, að um discus-
prolaps væri að ræða. Engin
breyting varð á óþægindum
þessara sjúkl. við aðgerðina. í
þriðja tilfellinu fundust öli ein-
kenni um discusprolaps. Gerð
var mj'elographia, sem mis-
tókst. Kannað var milli þriðja,
fjórða og fimmta lendaliðar, en
enginn discusprolaps fannst.
Fjórða lendarótin var hinsveg-
ar gróin við þófann. og var hún
losuð. Þessum sjúkl. leið mjög
illa fvrstu þrjá mánuðina eftir
aðgerðina. en batnaðí úr því,
og c/ nú óþægindalaus að heita
má.
í 14 af þeim 16 tilfellum, þar
sem discusprolaps fannst og
var tekinn burtu, virðist að-
gerðin hafa horið fullan árang-
ur. Eitt tilfellið er of nýtt, til
þess að nokkuð sé liægt um það
að dæma, sjúkl. er nýfarinn
lieim af spítalanum. í einu til-
fellinu virtist aðgerðin í fyrstu
ætla að hera ágætan árangur.
Sjúkl. var óþægindalaus og far-
inn að vinna tveim mánuðum
eftir aðgerðina, en versnaði
skömmu seinna. Hann var þá
skorinn að nýju, og fannst þá,
að taugarótin var umlukt af
mjög hörðum örvef, og aulc
þess hafði það, sem eftir hafði
orðið af nucleus pulposus við
fvrri aðgerðina, prolaberað að
nýju. Prolaps þessi var tekinn
hurtu og hreinsað til kringum
rótina, en árangurslaust.
Auðvitað eru þessi 19 tilfelli
of fá og of ný til þess að nokkra
ályktun sé hægt að draga af
þeim, en mér fannst þó rétt að
geta um þau, til þess að gefa
einhverja hugmynd um árang-
urinn af þessum aðgerðum.
Ég liefi hvergi séð birtar
neinar stærri slcýrslur um á-
rangurinn af discusaðgerðun-
um. Friberg hefir athugað
gaumgæfilega 25 opereruð til-
felli og fann, að góður árang-
ur hafði náðst i 18. Love, sein
er einn þeirra, scm mesta
reynslu hefir í þessum efnum,