Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.03.1946, Side 40

Læknablaðið - 01.03.1946, Side 40
64 L Æ K N A B L A í) I f) þótt þeir séu algerlega lausir viö syfilis. Um 15% verSa jákvæSir eftir bólusetningu og kveöur mest aö þessu eftir 2—3 vikur. Eftir þennan tíma dregur úr þessu og að 6 vikum liönum eru flestir orön- ir neikvæöir á ný. — Þaö er talið rétt aö láta sjúkl., sem hafa ný- lega veriö bólusettir eöa legið í hitasótt, biöa i 3 mánuöi áður en úrskurður er felldur, en rannsaka blóö þeirra með 2—4 vikna milli- bilum, — svo framarlega sem önn- ur augljós syfiliseinkenni koma ekki i ljós. Meöan beöiö er skal ekki nota nein lyf. (JAMA 15. jan. ’44)- Meðferð á lekanda hefir nú tek- ið miklum stakkaskiptum. Áður var handlækning aðalatriöiö, en nú er sjúkd. talinn til innanmeina og oftast læknaöur meö lyfjum. Dæling lyfja í þvagrásina, nudd á blöðrubotnskirtli, notkun á könnum eða þvagrásarsjá (úretro- skóp) er nú talið til ills eins nema sjúkd. veröi langvinnur. Reforma faraldur. Amerikskir læknar kvarta um þaö, að míkill faraldur sé nú i U. S. aí margskon- ar tinea trichopbytinea, einkanlega á fótum, ýmist meö bóluútþotum eöa hyperkeratosis. Kemur þetta sér auövitaö illa fyrir hermenn. Þaö er talið sennilegt aö kvillar þessir breiðist ví'ðsvegar út mn lönd meö herjunum. Sumir hyggja að almenningsböð og sundlaugar eigi mikinn þátt í þessu, aö sótt- næmiö berist frá þeim milli manna. Væri vert aö veita því eftirtekt hvort vart veröur viö þetta hér, því líklega er hreinsun vatnsins ó- fullkomin í mörgum sundlaugun- um. Sagt er að helzta vörnin sé strangt hreinlæti meö fætur, tíö fótaböö meö eöa án desinficientia, tíð sokkaskipti og helzt aö sjóða þá i þvotti. Þá má strá talcum í sokka með 2% af salicylsýrudufti. Vægur joðáburður getur og komið aö gagni. Margt fleira er ráðlagt en annars þekkjast engin örugg og einhlýt lyf viö þessu fargani. (JAMA, 18. marz 1944). G. H. Rit send Læknablaðinu: Hjúkrunarkvennablaðið, Current List of Medical Litterature frá Army Medical Library, Wasliington, og British Medical Bulletin, öll í skipt- um fyrir Læknablaðið. Þá bafa Lbl. borizt Heilbrigðis- skýrslur fyrir árin 1941 og 1942 frá Landlæknisskrifstofunni. Lbl. þakkar sendinguna. Afgreiðsla og innheimta Læknablaðsins er í Félagsprentsmiðjunni h.f., Reykjavik. Sími 1640. Pósthólf 570. FélagsprentsmiÖjan h.f.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.