Læknablaðið - 15.01.1954, Page 27
LÆKNABLAÐIÐ
57
frá skrásetningu bifreiðarinnar,
að afhenda liana ekki öðrum
til eignar, hvort sem er fyrii
sölu, gjöf eða á annan hátt, nema
með skriflegu samþykki stjórn-
ar L. Sama gildir um leigu
eða lán til langs tima. Ef fé-
lagsmaður óskar að afhenda
öðrum bifreiðina til eignar, skal
hann hjóða L. 1. liana skriflega
til kaups. Hefur íelagið rétt tii
þess að kaupa hifreiðina fyrir
verð, sem tveir óvilhallir dóm-
kvaddir menn meta. Skal end-
urkaupsverðið aldrei vera hærra
en kaupverð bifreiðarinnar að
frádreginni fyrningu, en að við-
bættu hæfilegu endurgjaldi fynr
umbætur, er félagsmaður kann
að hafa gert á bifreiðinni.
Akvæði þessarar greinar gilda
þó ekki um erfðir við lát fé-
lagsmanna, enda fellur hifreiðin
til arfs svo sem hver önnur
verðmæti. Þegar 5 ár eru liðin
frá skrásetningu bifreiðar, er
félagsmanni frjálst að ráðstafa
henni.
A þessu ári fékk félagið 11
bifreiðar til úthlutunar og hef-
ur 9 þeirra þegar verið úthlutað
en tveimur er ekki enn ráð-
stafað vegna þess að fullnægj-
andi upplýsingar vantaði um
hifreiðaþörf nokkurra lækna,
sem til greina gátu komið.
Fyrir einu ári taldist mer til
að 23 héraðslækna hefðu þörf
l'yrir nýja liifreið og aðrir höfðu
til umráða fremur léleg farar-
tæki, sem vitað var að ekki
gátu dugað lengi. Þó að margir
herji enn lóminn hefur þó noklc-
uð áunnizt og fáist álíka úr-
lausn á næsta ári mun vandinn
að mestu leystur, í bráð að
minnsta kosti.
Stjórn félagsins vill um leið
brýna það fyrir félagsmönnum
að senda umsóknir sínar um
liifreiðir í tíma. Læknar voru
hvattir til þess að senda um-
sóknir til fjárhagsráðs eða út-
hlutunarnefndar jeppabifreiða
og senda um leið félagsstjórn-
inni afrit af umsókninni. Þessu
gleymdu flestir og aðeins fáar
umsóknir höfðu horizt til fjár-
hagsráðs þegar það úthlutaði fé-
laginu hifreiðum fyrir þetta ár.
Félagsstjórnin hafði að vísu
vaðið fyrir neðan sig og sólli
um 15 hifreiðir en þessi van-
ræksla félagsmanna var þó all-
bagaleg.
Á síðasta læknaþingi var
rætt um bifreiðatryggingar
lækna og þess getið hve baga-
legt það væri fyrir lækna, er
hifreið þeirra laskast og verður
óuothæf um sinn við árekstur
eða ökuslys, og að oft fengjust
cngar bætur frá tryggingiun
fyrir atvinnutjón eða aðkeyptan
akstur. Stjórnin hefur sent
tryggingarfélögunum bréf ]iar
sem óskað er eftir föstum samn-
ingi um þetta atriði. Var helzt
stungið upp á fastri dagpeninga-
greiðslu meðan á viðgerð stæði.
Kitt félag hefur þeg'ar svarað og
segist það jafnan liafa greitt
læknum bætur, ef eftir þeiin
hafi verið leitað og tjónið sann-