Læknablaðið - 15.01.1954, Page 30
60
LÆKNABLAÐIÐ
manna og mikilsvert verður það
að teljast fyrir stéttina í heild
að blaðið sé sem bezt úr garði
gert. Stjórnin samþykkti að
mæla með því að gengið yrði
til sanminga við L. R. um að
L. I. stæði framvegis að útgáfu
Læknablaðsins, annað bvort
eitt sér eða í íelagi við L. R. og
hallast flestir að síðari lausn-
inni. Leggur stjórn L. 1. til að
félagið greiði liluta af skuld
ldaðsins við Félagsprentsmiðj-
una, el' samningar takast við
L. R.
Þá kem ég að Ekknasjóðnum.
Hann hefur aidcizt verulega að
krónutali, mest fyrir framíög og
minningargjafir lækna i
Reykjavík, en stéttin í lieild
hefur ekki unnið að eflingu hans
sem skyldi. Sjóðurinn er því
enn næsta lítils megnugur og er
það ekki vansalaust fyrir stétt-
ina. Má geta þess að ekkjur hér-
aðslækna hafa ekki síður en
aðrar orðið styrkja aðnjótandi
úr sjóðnum, þó að upphæðirnai
hafi verið minni en skyldi vegna
getuleysis sjóðsins. Stjórn L. I.
vill því leggja til að framvegis
greiði allir gjaldskyldir félagar
kr. 100.00 í ekknasjóð á ári. Ár-
gjald félagsmanna verði kr.
Ö00.00: kr. 100.00 til sjóðsins
kr. 100.00 fyrir Læknablaðið,
en það mun vera kostnaðarverð
þess, og loks kr. 100.00 til fé-
lagsþarfa.
Á aðalfundi skal kjósa full-
trúa á þing R.S.R.R. Undan far-
in ár hafa allir félagar L. I. tal-
izt aðilar að þeim samtökum og
tala fulltrúa við það miðuð.
Þessu fylgja nokkur útgjöld fyr-
ir félagið, sem ekki bæri að
horfa í, ef hagur væri að sam-
tökunum fyrir stéttina i heild.
Stjórn félagsins lítur svo á að
praktiserandi læknar hafi sára-
lítinn hagnað af aðild að banda-
laginu, og vill stjórnin því
leggja til að aðeins þeir læknar,
sem eru fastir starfsmenn hjá
ríki eða hæjarfélögum teljist að-
iljar handalagsins. Eðlilegt va;n
að L. R. léti í ljós álit sitt á
þessu máli, en svar hefur ekki
borist frá félaginu þó að þess
væri óskað.
Nýlega hefur stjórn L.I. borizl
frumvarp til sóttvarnarlaga,
sem landlæknir hefur samið og'
lagt mun verða fyrir næsta al-
þingi. Er þar gert ráð fyrir að
ríkissjóður heri kostnað af sótt-
varnareftirlitimeðflugförum og
millilandaskipum, öðrum en
fiskiskipum. Islenzk skip og
flugför munu þá að sjálfsögðu
njóta sams konar fríðinda er-
lendis. Tekið er fram að greiðsla
til héraðslækna og horgarlækn-
is í Reykjavík vegna sóttvarna
þeirra, sem ríkið stendur straum
af verði samkvæmt gjaldskrá
héraðslækna, en aðrir Iæknar,
sem kynni að verða falið að
annast sóttvarnir, fái greitt eftir
öðrum taxta, sem þó er ekki
nánar skilgreindur. Stjórn L. I.
hefur senl rétta boðleið athuga-
semdir varðandi þóknun fyrir
starfið, sem henni þótti alltof