Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.09.1955, Qupperneq 13

Læknablaðið - 01.09.1955, Qupperneq 13
LÆKNABLAÐIÐ 85 frá sams konar reynslu af sjálf- um sér. Hann hafði lítinn tíma aflögu og tók sér hvíld 10—15 mínútur á dag, en slakaði þá svo algerlega á, sem honum var unnt. Hann kvað þessa stuttu stund veita sér ótrúlega hvild og hressingu. Svo að vér snúum oss loks að lyfjameðferð á hypertoni, |)á þekjum vér allir þau lyf, sem venjulega hafa v.erið notuð og eru notuð enn, en það eru einkum theohromin- og theo- ])hyllinsamhönd og phenemal. Tahl. theobrombarbituricae, sem sjúkrasamlögin greiða hlut í, innihalda 1,5 cg. phenemal í hverri töflu, en það er jafn- mikið og í tabl. phenemal. mi- nores. Þetta er ekki stór skammtur og ég skal játa, að mér hefur löngum þótt hann lítill, en ég er kominn á þá skoðun, að liann hafi sín til- ætluðu áhrif, ef hann er tekinn til langframa. Phenemal er sedativum, sem verkar centralt og það er vitanlega skynsam- legt að gefa það við hyper- lonia, þegar li^ið er á eðli hennar og orsakir. Um theo- phvllinlyfin má láta þess get- ið, að í seinni tíð er farið að nota eitt, sem nefnist glyphyll- in, líklega samband af glycin og theophyllin. Það mun vera golt lvf og all-laust við óþægi- legar aukaverkanir. Fer ég svo ekki fleiri orðum um þessi alkunnu og almennt not- uðu lyf. Þótt skoðanir séu skiptar um meðala notkun við léttari til- felli af hypertoni, þá eru allir sammála um þörfina á henni við þyngri tilfellin, en þó virð- ast lærifeður vorir ekki hafa mikla trú á þeim lyfjum, sein almennt liafa verið notuð og eru enn. Aftur á móti eru not- uð önnur, sem hafa sterkari og augljósari. verkanir. Eitt þ.ess- ara lyfja eru alkaloidsambönd- in i veratrum album, sem mér skilst, að séu aðeins gefin parenteralt og aðeins undir ná- kvæmu eftrliti. Þetta lyf kvað vera mjög áhrifamikið, en eitrað er það, „therapeutisk br,eidd“ lítil og aukaverkana gætir mikið, en þær eru mikil uppsala og diarrhoe. Ég varð dálítið liissa, þegar ég sá þessa getið, samkvæmt því, sem oss hefir verið kennt. Poulsson nefnir veratrin að vísu í þessu sambandi, en telur það ekki nothæft vegna .eiturverkana og Knud Möller nefnir það ekki einu sinni í sinni Farmakologi. En hvað um það, það virðist vera notað bæði í enska heim- injum og í Ameríku, en að vísu ekki við góðan orðstír. Annað efni, sem ég kannast ekki við frá undanförnum ár- um, er hydrazinophthalazin, eða hvdrallazin. Það kvað verka mikið, bæði p,er os og

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.