Læknablaðið - 01.09.1955, Blaðsíða 28
100
L Æ K N ÁBLAÐIÐ
ig eyðilagt frumur dýra. Meiri
þýðingu hafa bacitracín og
polymyxín.
Bacitracín er polypeptid,
hyggt úr 8 aminosýrum. Það
verkar aðallega á gram + sýkla.
Það resorberast ekki, gefið sem
inntaka, en er stundum notað
þannig til undirbúnings skurð-
aðgerða eða við colitis, en aðal-
lcga er efnið notað í smyrsl
í sárameðferð.
Pclymyxín aerosporin) var
fyrst lýst 1949. Það verkar aðal-
lega á gram -r- stafi, þar á meðal
ps.pyocyanea. Til eru 4 teg-
undir af þessu efni„ en poly-
myxín B og E eru minnst eitruð
fyrir nýru og hafa verið gefin
í vöðva í skömmtum 1.5—2,5
mg. pr. kg. Stundum befur Jjað
verið gefið sem inntaka til þess
að minnka þarmaflöru, en re-
sorberast ekki frá þörmum.
Aðallega hefur polymyxín þýð-
ingu í sárameðferð með baci-
tracíni eða neomycíni.
Unnið er að rannsóknum á
mörgum nýjum antibiotika, og
niörg þeirra munu koma á
markaðinn sem lyf á næstu ár-
um. Þar á meðal eru nokkur,
sem verka á patbogen sveppi.
Er það vel farið, því infectionir
af þeirra völdum bafa færst í
aukana við notkun antibiotika
gegn sýklum.
Hér að framan hefur verið
minnst á helztu eiginleika hinna
algengustu antibiotika. Þá kem-
ur næst til athugunar, hvenær
og hvernig beri að nota þessi
efni. Þetta eru hin þýðingar-
mestu atriði, spurningar,
sem allir vilja fá svarað skýrt
og greinilega, en því miður éru
ekki til nein einföld né algild
svör og ber margt til að svo er.
Nokkrar grundvallarreglur
gilda ])ó um notkun þessara
lyfja og má setja þær fram í
formi íarra spurninga, sem
læknar þurfa að gera sér grein
fyrir áður en notkun antibiotika
befst hverju sinni.
1. Er nauðsynlegt að nota
antibiotika?
2. Er líklegt, að unnt sé að
lækna sjúkdóminn með
antibiotika eingöngu eða
þarf annarra aðgerða við
jafnframt?
3. Eru þeir sýklar, sem
sjúkdómnum valda næm-
ir fyrir antibiotika og er
líklegt að þeir haldist
næmir á meðan meðferð
stendur yfir?
4. Er .sjúklingur ofnæmur
fyrir antibiotika?
5. Hvaða lyf eða lyfjasam-
stæður er heppilegast að
nota, og hvað á að gera
ef árangur af fyrstu með-
l'erð bregzt?
1. Fyrst er að gera sér grein
fyrir, bvort nauðsynlegt eða
rættmætt sé að nota antibiotika.
Notkun lyfjanna felur í sér