Læknablaðið - 01.04.1956, Page 29
LÆKNABLAÐIÐ
19
gerist afkastamikill rithöfund-
ur. Áður vissu menn að liann
var maður vel ritfær, en hitt
kom flestum á óvart, að með
hálfstjötugum héraðslækni
leyndist sá áhugi og starfs-
orka, er enlist til þess að safna
gögnum og semja mikil og
merk fræðirit, rita fjölda
greina og þýða merkar bækur.
(sjá ritskrá).
Engum, sem þekkti Sigurjón
Jónsson lækni, duldist að hann
var um margt sérstæður mað-
ur. Leiftrandi gáfur, hárbeitt
rökvísi, óhvikull heiðarleiki og
óþreytandi elja dugðu honum
vel til þess að leysa af hendi
ágætt lífsstarf, ,en í hugar-
fylgsnum samfylgdarmanna
leynist ásækinn grunur um, að
önnur og meiri háttar við-
fangsefni hefðu betur iiæft
vitsmunum lians.
Kristinn Stefánsson.
R i t s k r á.
Heilbrigðisskipun og heilbrigðis-
ástand hér á landi fyrir 100 árum,
Reykjavik 1940.
Heilsufræði, Ríkisútgáfa námsbóka,
Reykjavík 1945.
Um sóttafar og sjúkdóma á íslandi
1400—1800, Reykjavík 1944.
Alþingi og heilbrigðismálin, Reykja-
vík 1950.
Læknablaðið 1945 og 1946.
Heilbrigðt líf 1945 og 1946.
Almanak Þjóðvinafélagsins 1945,
1946, 1947, 1948, 1949, 1952.
Andvari 1942, 1947—1948, 1952—
1953.
Blanda 1946.
Lífsskoðun—trúarbrögð—siðfræði, í
„Játningar" 1948.
Minningar úr menntaskóla 1946.
Kynjalyf og kynjatæki, húskólafyr-
irlestur, Samtíð og saga 1948.
S á u m ú t g á f u á :
íslenzk læknisfræðilieiti (Nomina
clinica). Guðmundur Hannesson,
Reykjavik 1954.
Þ ý ð i n g a r :
Endurminningar frú Gyðu Thor-
lacius, 1947.
Sjáifsævisaga Benjamíns Franklíns,
en Guðmundur Hannesson liafði
byrjað á þeirri þýðingu, Reykja-
vík 1947.
Fra
Lœknadeild
Iiú§kólans
Læknadeild hefur í hyggju
að veita styrk lil sérnáms i líf-
,eðlis- og lifefnafræði.
Umsóknir, ásamt greinar-
gerð um störf að loknu kandi-
datsprófi og framhaldsnám,
sendist til læknadeildar há-
skólans fyrir 20. júní 1956.
Nordisk kongress for Intern
Medicin.
Kaupmannahöfn 22.—27. júlí
1956.
Fyrirspurnir eða tilkynning
um þátttöku sendist til Dr.
Bucli, Domus Medica, 12 A
Kristianiagade, Kbh. Ö.