Læknablaðið - 01.04.1956, Page 37
LÆKNABLAÐIÐ
27
taxta héraðslækna og' fleiri lag-
færingar (stytting dagvinnu-
tíma). Fékkst loks samþykkt
fimmföld hækkun á taxtanum
frá 1933 og nokkur hækluin á
fastagjaldi, þar sem það gildir,
og samræming á því. Hafði
nefndin notið ágætrar aðstoðar
formanns L. I.
Samninganefnd praktiserandi
lækna utíin Rvíkur. (Bjarni
Snæbjörnsson, Kjartan Jólnmns-
son, Jón Gunnlaugsson og
Haukur Kristjánsson). Bjarni
Snæbjörnsson skýrði frá störf-
um nefndarinnar. Nefndin ósk-
aði eftir sömu kjörum fyrir
starfandi lækna utan Reykja-
víkur og Reykjavíkurlæknar
hafa, en það fékkst ekki fram.
Nokkur lagfæring fékkst þó,
nokkur grunnkaupshækkun og
að auki 6% af launagreiðslu, er
leggja mætti í lífeyrissjóð.
Fundi var frestað kl. 19.15.
Fluttir fyrirlestrar.
Fundur hófst á ný kl. 20,30
og flutti þá prófessor E. Busch,
Kaupmannahöfn, erindi: „De
craniocerbrale traumer“, en L.
I. og Háskólinn höfðu í sam-
einingu boðið honum hingað til
lands.
Áður en erindið liófst bauð
forseti þingsins, Guðm. K. Pét-
ursson, dr. Busch velkominn,
hann væri einn hinn kunnasti
heilaskurðlæknir á Norðurlönd-
um og Islendingum að góðu
kunnur, því að fjölmargir
sjúklingar hefðu honum verið
sendir héðan til aðgerðar; væri
hann og þekktur að því að
greiða vel fyrir íslenzkum
sjúklingum.
Að loknu erindinu tóku til
máls Guðm. K. Pétursson, Frið-
rik Einarsson, Kristján Þor-
varðarson, Niels Dungal, Valtýr
Albertsson, Alfreð Gíslason og
Sigurður Samúelsson. Var fyr-
irlesara þökkuð koman og ágætt
erindi og velviljuð fyrirgreiðsla
fyrir íslenzkum sjúklingum á
undanförnum árum. Loks tók
próf. Buscli aftur til máls, svar-
aði nokkrum fyrirspurnum og
þakkaði hið vinsamlega boð, af
hálfu L.I. og Háskólans, s,em sér
liefði verið ánægja að þiggja.
Fundi slitið kl. 21.50.
Þriðjudaginn 14. júní kl. 18
var fundur settur á ný í Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur.
Forseti tilkynnti boð lyfsölu-
stjóra, til lækna utan Reykja-
víkur, að skoða lyfjagerð, er
sett hefur verið á laggirnar í
Borgartúni 6.
Síðan flutti dr. Óskar Þórðar-
son erindi: Arythmia perpetua
og’ chinidin. Forseti þakkaði
glöggt og fróðlegt erindi, þar
sem m. a. var greint frá me<V
ferð 13 sjúklinga. — Bjarni
Bjarnason og Kristinn Stefáns-
son gerðu nokkrar fyrirspumir,
er fyrirlesari síðan svaraði. Er-
indið verður birt í Læknablað-
inu.
Um kvöldið, kl. 20.30 flutti