Læknablaðið - 01.09.1957, Qupperneq 14
70
LÆKNABLAÐIÐ
í temporala efri hluta augn-
botnsins eru mikið útvíkkaðar
og einkum utarlega í sjónhimn-
unni sjást gulhvít exsudöt og í
útjaðrinum er hvítleit exsudat-
breiða, þar sem slagæð og blá-
æð sameinast í upphækkuðum
hnút, grárauðleitum að lit og er
hann ekki skýrt afmarkaður,
greinist bezt með 6—7 dioptr.
við augnspeglun. Stór blæðing
sést ofanvið eina æðina utarlega
Augnþrýstingur er eðlilegur á
báðum augum og þau alveg eðli-
leg utan frá að sjá. 1 vinstra
auga sást eins og í hægra dá-
lítið grugg í glervökvanum.
Hér leyndi sér ekki, að um
angiomatosis retinae væri að
ræða, en þar sem ég hafði enga
reynslu .í meðhöndlun þessa
sjúkdóms, var ákveðið, að senda
sjúklinginn í augndeild Ríkis-
spítalans í Danmörku. Þar var
gerð aðgerð á hægra auga,
brennt með diatherminálum
kringum æðaæxlið. Nokkru eft-
ir heimkomuna versnaði sjúkl.
heldur sjón á vinstra auga, svo
að ég gerði svipaða aðgerð á því
auga og hafði verið gerð í Dan-
mörku. Árangur aðgerðanna
'hefur verið góður. Hin miklu
exsudöt hafa hægt og hægt horf
ið, en skilja eftir pigmenteraða
bletti. Þó sjást enn á hægra
auga í kringum æxlið exsudat-
blettir, en ekki mjög áberandi.
Engar blæðingar. Æðaútvíkk-
unin heldur ekki eins áberandi.
Hverskonar sjúkdómur er
angiomatosis retinae? Ang. ret.
er talinn meðfæddur, ættgeng-
ur sjúkdómur og tilheyrir sjúk-
dómaflokki, sem lýsir sér marg-
víslega, þó sérstaklega sem
dreifð æxli eða belgir (cystur)
í ýmsum líkamshlutum og þá
helzt í miðtaugakerfinu og sjón-
himnunni, vanskapnaður eða
veila (angiomatous malformati-
ons)
Angiomatosis retinae hefur
lengi verið þekktur sjúkdómur.
Síðan 1879 hafa augnlæknar
skrifað oft um hann. Árið 1903
skrifaði von Hippel nákvæma
lýsingu á sjúkdómnum og
nefndi hann angiomatosis ret-
inae, og hefur það nafn haldizt
síðan. Álitið var, að sjúkdómur-
inn væri aðeins í sjónhimnunni,
en 1926 fann Svíinn Arvid Lin-
dau, að samhengi var á milli
þessa augnsjúkdóms og cystu-
myndana í litla heilanum og
víðar. Síðan er sjúkdómurinn
venjulega kallaður von Hippel-
Lindaus sjúkdómur. Lindau
sýndi, að hér er ekki eingöngu
um augnsjúkdóm að ræða, held-
ur sennilega um kerfisbundna
veilu (vansköpun) frá mesen-
chymvefnum, sem kemur síðar
fram sem æðabreytingar og
æðaæxlismyndanir í miðtauga-
kerfinu og ýmsum líffærum.
Það er ekki um metastasis að
ræða frá æxlinu. 1 sumum til-
fellum við Lindaus sjúkdóm get-
ur sjónhimnan sloppið, verið að
því er virðist heilbrigð eða að