Læknablaðið - 01.09.1957, Blaðsíða 16
72
LÆKNABLAÐIÐ
Skemxndir þessar koma fram
sem gulir eða gulhvítir exsudat-
'blettir, sem geta náð yfir stór
svæði, einkum í kringum æða-
æxlin, koma stundum fram á
maculasvæðinu eins og stjörnu-
mynd líkt og við retinitis alb-
uminuria. Oft eru blettir þessir
meira eða minna upphækkaðir
og getur sézt í þeim og í kring-
um þá dökkt litarefni, sem hinn
vaxandi gliavefur tekur í sig.
Þessir gulhvítu vefhrörnunar-
blettir á sjónhimnunni geta ver-
ið svo áberandi, að æðaæxlin
liggja eins og rauðleitar kúlur
eða blettir á hvítum grunni.
Venjulega halda æðaæxlin kúlu-
löguninni aðeins í byrjun sjúk-
dómsins, vaxa svo áfram sem
hnútótt eða flöt æxli, sem valda
sjónhimnulosi að nokkru eða
öllu leyti, en hinar mjög útvíkk-
uðu æðar segja til um legu þess.
Sjónhimnulosinu og vefjabreyt-
ingunum fylgir oftast iridocy-
ditis með glaucoma secundari-
um og ógagnsæi í augnsteinin-
um, svo að ekki er hægt lengur
að sjá inn í augun.
Menn veittu því athygli, að
margir sjúklingar með angio-
mat. retinae dóu með sjúkdóms-
einkennum, sem fylgja heila-
æxlum. Lindau fann, að hinar
svokölluðu litla-heila cystur eru
í raun og veru hæmangiom að
svipaðri byggingu og æðaæxlin
í sjónhimnunni. Litla-heila æxli
gefa oft stase papiilu. Var það
þá líka skiljanlegt, að oft fannst
það fyrirbrigði við sjúkdóm
þenna.
Líffærameinafræði (Patho-
log. anatomia): Það koma fram
2 ólíkar myndbreytingar í sjón-
himnunni. 1 öðru tilfellinu yfir-
gnæfa miklar æðanýmyndanir,
en í hinu yfirgnæfir æxlis-
kenndur frumuvöxtur. Sam-
kvæmt skrifum Roussy og Ob-
erling er aðallega um 3 tegundir
æðaæxla í miðtaugakerfinu að
ræða: 1. Cavernu-æxli (Hæm-
angioma, Cushing-Bailey), 2.
Reticulo-endothelial angiom
(Hæmangioblastoma. Cushing-
Bailey), sem nær eingöngu hafa
fundizt í cerebellum, medulla
oblongata og mænu, 3. Angio-
glioma (Hæmangio-blastoma
interkolumn., Cushing-Bailey).
Gagnvart angiomatosis retinae
er það aðallega 2. flokkur, sem
hefur þýðingu, því sú tegund
angioma hefur samkvæmt rann-
sóknum Cushing-Bailey og A.
Lindau fundizt samtímis í mið-
taugakerfinu og sjónhimnunni.
Þar hefur fundizt, að hinar ein-
földu endothelfrumur háræð-
anna hafa breytzt og margfald-
ast. Cytoplasmað þrútnar, holur
myndast í því og fituefni safn-
ast í frumurnar og fram koma
hinar svokölluðu xanthoma-
frumur, sem Lindau og fleiri
hafa fundið í sjónhimnunni við
ang. retinae. Háræðar þessara
æðaæxla eru sennilega óþéttari
en heilbrigðar háræðar, svo að
vökvi safnast utan við æðarnar