Læknablaðið - 01.09.1957, Side 19
LÆKNABLAÐIÐ
75
Læknaþing 1957
Almennt læknaþing Læknafé-
lags Islands var sett í Háskól-
anum 19. júní 1957. Formaður
L.I., Valtýr Albertsson, setti
þingið og kynnti gesti þess og
fyrirlesara. Hann minntist lát-
inna félaga, en þeir voru: Pétur
Thoroddsen, Theodór Mathiesen
og Samúel Thorsteinsson. Vott-
aði þingið þeim virðingu sína.
Nýir félagar á árinu voru:
Daníel Daníelsson, Eggert
Brekkan, Guðjón Lárusson,
Heimir Bjarnason, Magnús
Blöndal Bjarnason, Ölafur Ól-
afsson, Ragnar Arinbjarnar,
Sæmundur Kjartansson, Þorgils
Benediktsson, Jósef Ólafsson og
Leifur Björnsson.
Skýrsla formanns var að öðru
leyti sem hér segir: „Haldnir
voru 17 stjórnarfundir á árinu.
Bifreiðakostur lækna. Ymsir
læknar utan Reykjavíkur hafa
óskað þess, að stjórn félagsins
væri þeim hjálpleg við útvegun
innflutningsleyfa fyrir bifreið-
um. Stjórnin hefur sent inn-
flutningsskrifstofunni meðmæli
með umsóknum 'lækna og rætt
bifreiðaþörf þeirra bæði við inn-
ar. Stærð hverrar ritgerðar má
ekki vera meiri en sem svarar
3—4 dálkum í tímaritinu (1800
—2400 orð). Rita skal á dönsku,
norsku, sænsku eða á einhverju
heimsmálanna. Ritgerðir send-
ist aðalritstjóra Eir.
flutningsskrifstofuna og ráð-
herra. Undirtektir voru yfirleitt
góðar, en sá hængur var á, að
leyfi munu aðeins hafa fengizt
fyrir bifreiðum frá Austur-Ev-
rópu og Italíu, og sumir læknar
hikuðu við að kaupa bifreiðateg-
undir, sem þeir ekki þekktu. —
Þess skal getið, að undanfarið
ár hefur stjórn félagsins að
jafnaði fengið leyfi fyrir á-
kveðnum fjölda bifreiða og út-
hlutað þeim til þeirra lækna, sem
verst virtust á vegi staddir
hverju sinni. Fyrir nokkru tók
innflutningsskrifstofan upp
þann hátt, að úthluta sjálf leyf-
unum beint til lækna, og þá
stundum án þess að leitað væri
álits félagsstjórnar. Skal þó á
engan hátt dregið í efa, að lækn-
ar þeir, sem urðu slíkra úthlut-
ana aðnjótandi, hafi verið vel að
þeim komnir.
Tveir kandidatar, sem lokið
höfðu framhalds- og sérfræði-
námi erlendis, en áttu eftir að
gegna skyldustörfum úti í hér-
aði, kvörtuðu yfir því, að ógreið-
ur væri aðgangur að vikariötum,
til þess að ljúka þessum þegn-
skyldustörfum og öðlast 'læknis-
réttindi. Hafði annar kandidat-
inn þegar beðið aðgerðarlaus í
2 mánuði. Stjórn L.I. ræddi
þetta mál við landlækni. Lofaði
hann að flýta fyrir því, að
kandidatarnir gætu lokið
skyldustörfum í héraði og feng-