Læknablaðið - 01.09.1957, Síða 23
LÆKNABLAÐIÐ
79
ið fyrir þá gera við góðar að-
stæður.
Verið er að safna skýrslum
um fávita hér á landi, en ekki
er enn vitað um tölu þeirra.
Gera verður ráð fyrir, að hlut-
fallstala fávita sé svipuð hér
og fundizt hefur annars staðar.
Almennt mun talið, að 1—
1 y%% af íbúunum séu fávitar,
þ. e. með lægi-a greindarstig en
75%. Þrír fjórðu eru fávitar á
lágu stigi, 20% hálfvitar og 5%
örvitar.
Hælislæknirinn við Kópavogs-
hælið, frú Ragnhildur Ingi-
bergsdóttir, telur, að rúmlega
500 sjúkrarúm þurfi hér fyrir
fávita, en Kristján Þorvarðsson,
geð- og taugalæknir, ætlaði árið
1945 þörfina 400 rúm, og studd-
ist þá við reynslu Dana.
I heilbrigðisskýrslum 1953 eru
taldir 350 fávitar, sem eru lík-
legir til að vera lítt eða ekki
sjálfbjarga. Þar munu þó ekki
öll kurl til grafar komin, og er
óhætt að fullyrða, að þetta sé
lægsta tala, sem miða verður
sjúkrarúmaþörfina við.
Hér á landi eru í notkun 115
sjúkrarúm fyrir fávita (þar af
60 á vegum ríkisins): 36 í Kópa-
vogi, 24 að Kleppjárnsreykjum,
23 að Skálatúni og 32 að Sól-
heimum í Grímsnesi.
Samkvæmt framanskráðu
vantar því sjúkrarúm fyrir a.
m.k. 235 fávita. Við byggingu
dagheimila fyrir fávita, mætti
þó væntanlega lækka tölu þessa
eitthvað,
Við viljum leyfa okkur að
vekja á ný athygli á því, að
aðstæður eru óskaplega ömur-
legar á mörgum þeim heimilum,
sem þurfa að vista sjúklinga þá,
sem hér hefur verið rætt um
að framan.
Hér er brýn þörf stórtækra
úrbóta.
Þrátt fyrir að hin nýja bygg-
ing hjúkrunarkvennaskóla Is-
lands hefur verið tekin í notkun,
þurfum við að horfast í augu
við þá staðreynd, að við munum
enn um langan tíma búa við al-
varlegan hjúkrunarkvenna-
skort, nema gerðar séu sérstak-
ar, nýjar og skjótar ráðstafanir
til að bæta úr honum.
Byggðir hafa verið aðeins %
hlutar af fyrirhugaðri skóla-
byggingu, og hafa íbúðir nem-
enda verið látnar sitja í fyrir-
rúmi. Hinn nýi skóli tekur 90
nemendur í heimavist, en auk
þess verða um 30 nemendur við
verklegt nám annars staðar. Við
nýbygginguna fjölgar hjúkrun-
arnemum um 30 frá því, sem
nú er, en eins og kunnugt er,
hafa undanfarin ár verið 60
hjúkrunarnemar í heimavist í
Landspítalanum, sem nú hefur
verið lögð niður.
Hjúkrunarkvennaskólinn nýi
mun geta útskrifað um 29 nýj-
ar hjúkrunarkonur árlega, í stað
22—23 áður, en þeirrar aukn-