Bændablaðið - 12.12.2013, Side 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. desember 20132
Fréttir
Fallþungi dilka í sláturhúsum
landsins á þessu hausti var að
meðaltali 15,99 kg, sem er næst-
mesta meðalþyngd innvigtaðar
dilka síðan 1999. Mestur fall þungi
reyndist vera hjá Norðlenska á
Húsavík, eða 16,55 kg í meðalvigt
samkvæmt gögnum Bændasamtaka
Íslands.
Fallþungi er æði mismunandi eftir
flokkum, eða frá 11 kg upp í 23,7 kg.
Alls var slátrað 532.453 fjár á
landinu og heildarfallþungi kjötsins
var rúm 8.500 tonn, eða 8.515.195 kg.
Næst mesti fallþungi síðan 1999
Ef borinn er saman meðalfallþungi
yfir landið frá 1999 til og með 2013
kemur í ljós að hann hefur aðeins
einu sinni farið yfir 16 kg, en það
var árið 2012, þrátt fyrir mikla þurrka
og aðra óáran í veðurfari, einkum á
Norðurlandi.
Meðalþyngd innvigtaðra dilka
á landinu öllu hefur heldur aldrei á
þessu fimmtán ára tímabili farið undir
15 kg.
Mesta sauðfjárslátrun í 15 ár
Fjöldi fjár í slátrun hefur aldrei verið
meiri frá 1999 en nú í haust. Slátrað
var 532.453 dilkum samanborið við
528.500 árið 2012 og 527.874 árið
2011.
Árið 1999 var aftur á móti slátrað
468.857 dilkum. Minnstur fjöldi dilka
á þessu 15 ára tímabili var 2003 þegar
niðurstaðan var 453.110 dilkar.
Öll árin frá 2010 hefur fjöldi
sláturdilka verið yfir 500 þúsund.
/HKr.
Fyrsta blað eftir áramót kemur
út 9. janúar. Útgáfudagar
Bændablaðsins fram í júní
verða sem hér segir með fyrir-
vara um breytingar:
janúar
janúar
febrúar
febrúar
mars
mars
apríl
apríl (miðvikudagur)
maí
maí
júní
júní
Verðbreytingar um áramót
Hækkun á verðskrá blaðsins tekur
gildi um áramót en ástæða hennar
er almennar verðlags hækkanir
í landinu og aukin dreifing
Bændablaðsins. Verðskrá verður
eftirfarandi á nýju ári:
Ársáskrift: Kr. 7.200 m. vsk.
Ársáskrift fyrir eldri borgara:
Kr. 3.600 m. vsk.
Smáauglýsing með mynd:
Kr. 4.900 m. vsk.
Hefðbundin smáauglýsing:
Kr. 1.900 m. vsk.
Netauglýsing: Kr. 800 m. vsk.
Dálksentimetri auglýsinga,
litur: Kr. 1.400 án vsk.
Dálksentimetri auglýsinga,
litur, bls. 3 og baksíða:
Kr. 1.600 án vsk.
Dálksentimetri auglýsinga,
svarthvítt: Kr. 1.100 án vsk.
Dálksentimetri auglýsinga á
fréttasíðum, litur: Kr. 2.250
án vsk.
Niðurfellingargjald, 15% af
brúttóverði auglýsingar.
Gjald fyrir uppsetningu aug-
lýsinga, tímagjald kr. 7.900
án vsk.
Allar nánari upplýsingar um
útgáfu Bændablaðsins er að finna
á vefnum www.bbl.is. Netfang
blaðsins er bbl@bondi.is og net-
fang auglýsinga augl@bondi.is
Í raun er hægt að tala um byltingu
í neyslumynstri Íslendinga á kjöti
frá árinu 1983 samkvæmt gögnum
Hagstofu Íslands. Á þessum tíma
hefur fólki fjölgað úr tæplega 236
þúsund í ársbyrjun 1983 í nær
322 þúsund í árslok 2012. Neyslan
á kindakjöti á hvern Íslending í
árslok 2012 var innan við helmingur
þess sem hún var í árslok 1983.
Neyslan á alifuglakjöti hefur aftur
á móti sexfaldast á sama tímabili
og neyslan á svínakjöti hefur nær
fjórfaldast.
Kindakjöt var helsta kjötfæða
Íslendinga
Á árinu 1983 var kindakjöt uppistaðan
í kjötneyslu Íslendinga eða 68%
heildarkjötneyslunnar. Það ár neyttu
Íslendingar að meðaltali 45,3 kg af
kindakjöti á mann. Þar á eftir kom
nautakjöt með 8,8 kg, svínakjöt 4,9
kg, alifuglakjöt 4,3 kg og hrossakjöt
3,2 kg.
Neysla á kindakjöti minnkaði
síðan jafnt og þétt og var komin niður
fyrir 40 kg árið 1986 og niður fyrir
30 kg árið 1994.
Fram til ársloka 2000 var
kindakjöts neyslan nokkuð stöðug í
kringum 25 kg á mann á ári. Hún fór
síðan heldur lækkandi þar til hún náði
lágmarki árið 2011 í 18,8 kg á mann
eða 24% heildar kjötneyslunnar.
Frá þeim tímapunkti hefur neysla á
kindakjöti aftur verið að aukast og
var orðin 20,7 kg í árslok 2012, eða
um 26% kjötneyslunnar. Virðist sú
þróun ætla að halda áfram út þetta ár
þó tölur liggi ekki endanlega fyrir, en
sem dæmi var mesta kindakjötssala
í einum mánuði á þessari öld í
októbermánuði síðastliðnum.
Alifuglakjötið á miklu flugi
Þegar litið er á þróunin í neyslu
á alifuglakjöti er allt annað uppi
á teningnum og hefur neyslan
sexfaldast frá 1983. Það ár nam hún
4,3 kg á mann á ári eða um 7% af
heildar kjötneyslunni, en fór í fyrsta
skipti yfir 10 kg á mann árið 1999,
eða í 10,6 kg á mann.
Sala á alifuglakjöti fór svo verulega
að taka við sér upp úr aldamótum með
sölu á ferskum kjúklingum.
Náði forystunni 2007
Neysla alifuglakjöts fór yfir 20 kg
markið á mann árið 2005 og fór
fram úr kindakjötsneyslunni árið
2007 þegar alifuglakjötsneyslan
fór í 24 kg á mann. Þá var hlutfall
neyslunnar á alifuglakjöti orðið 16%
af heildarneyslunni.
Nú nálgast neyslan á alifuglakjöti
óðum 30 kg markið en hún var komin
í 26 kg á mann í árslok 2012. Það var
um 32% af heildar kjötneyslunni, sem
er 8 prósentustigum hærra hlutfall en
kindakjötsneyslan.
Svínakjötið óx fyrr í vinsældum en
alifuglakjötið
Þróunin í aukinni neyslu á svínakjöti
hefur líka verið mjög hröð og hefur
hún nær fjórfaldast á 29 árum frá 1983.
Það ár nam neyslan 4,9 kg á mann,
eða um 7% af heildarkjötneyslunni.
Hún fór svo í 10,6 kg árið 1989,
eða um 17% af heildarneyslunni á
kjöti. Aukningin var síðan hraðari
í svínakjötsneyslunni en í neyslu á
alifuglakjöti allt til ársloka 2004 þegar
neyslan var 18,7 kg á mann. Árið
2005 fór alifuglakjötsneyslan í fyrsta
sinn fram úr svínakjötsneyslunni og
hefur verið að auka forskot sitt síðan.
Mest var svínakjötsneyslan 21,9
kg á mann árið 2008 og náði þá
26% hlutdeild á kjötmarkaðnum.
Það ár var alifuglaneyslan 29% og
kindakjötsneyslan 28%. Frá 2008
hefur neyslan á svínakjöti heldur
verið að dala og var í árslok í fyrra
komin í 18,3 kg á mann, eða 23%
af heildarkjötneyslunni. Neyslan á
svínakjöti hefur tvisvar verið meiri
en á kindakjöti eða á árunum 2009 og
2011, þó ekki muni þar miklu.
Neysla á nautakjöti eykst líka
Neysla á nautakjöti jókst á tímabilinu
frá 1983 til 2012 um rúm 52% eða
úr 8,8 kg á mann í 13,4 kg. Neyslan
á nautakjötinu fór yfir 10 kg markið
árið 1985 og varð mest árið 1987,
13,9 kg á mann. Það gerir um 20%
markaðshlutdeild í kjötneyslu á
meðan lambakjötsneyslan nam 52%.
Síðan hefur nautakjötsneyslan
oftast verið á bilinu 11 til 13 kg á mann
en hún fór þó niður í 10,5 kg árið 2006.
Í fyrra var neyslan 13,4 kg á mann,
sem er um 17% markaðshlutdeild. Þá
var hlutdeild svínakjöts í neyslunni
23%, kindakjöts 26%, alifuglakjöts
32% og hrossakjöts einungis 2%.
Minnst er neytt af hrossakjöti
Hrossakjöt hefur aldrei skorað hátt á
matborði Íslendinga, eða á bilinu 2
til 3 kg á mann undanfarin 29 ár, en
neyslan hefur heldur farið minnkandi
á síðustu tveim árum. Líklegt er þó að
aukin neysla í sumar og haust geti þó
aðeins lagað hlut þess á markaðnum.
Var álíka vinsælt og alifuglakjöt
árið 1984
Árið 1983 nam neyslan á hrossakjöti
3,2 kg á mann en hún fór mest í 3,7
kg á mann árið 1984 og náði þá 6%
markaðshlutdeild. Athyglisvert er
að þá hafði neysla á alifuglakjöti
ekki náð miklum vinsældum og var
aðeins einu prósentustigi meiri en
neyslan á hrossakjöti. Eftir það fór
að draga hressilega í sundur með
þessum kjöttegundum. Hefur neysla
á hrossakjöti eftir 1984 aðeins tvisvar
náð 3 kg á mann, en það var árin 1985
og 1986.
Minnst hefur neyslan á hrossakjöti
verið 1,6 kg á mann, en það var árin
2002 og 2011 þegar neysla þess nam
eins og fyrr segir 2% af heildarneyslu
Íslendinga á kjöti.
Fjölmargir úr röðum hrossa-
ræktenda hafa viðrað þær skoðanir að
nauðsynlegt sé að fækka í stofninum.
Hugsanlega kann það að leiða til þess
að hlutdeild hrossakjöts í kjötneyslu
Íslendinga aukist eitthvað á ný.
Þess ber að geta varðandi tölur
Hagstofunnar um neyslu Íslendinga
á kjöti að ekki er getið um neyslu
á hvalkjöti, selkjöti, kjöti af villtum
fuglum, hreindýrakjöti eða öðrum
tegundum, þar sem tölur eru ekki
alltaf sérlega áreiðanlegar. Ólíklegt
er þó að það skekki heildarmyndina
mjög mikið.
/HKr.
Umbylting í kjötneyslu Íslendinga
– kindakjötsneyslan orðin svipuð og á svínakjöti en alifuglakjötið er með vaxandi forystu
Jólamarkaður haldinn
í Hörpu um helgina
Um helgina verður stærsti matar-
markaður landsins haldinn í
Hörpu. Þetta er í þriðja skipti sem
markaður inn er haldinn og það
er verslunin Búrið að frumkvæði
tveggja kvenna sem stendur að
honum.
Á boðstólum verður ýmislegt góð-
gæti. Meðal annars verður hægt að fá
tvíreykt hangikjöt, lífrænt lamba kjöt,
grasfóðrað nautakjöt, humarsoð og
humar súpu, birki reyktan og bláberja-
kryddaðan lambavöðva, appelsínu-
grafinn jólalax, jólaglögg og sultur.
Framleiðendur koma víða að.
Til dæmis frá Hvammstanga, Rifi á
Snæfellsnesi, Þykkvabæ, Hallormstað
hjá Egilsstöðum, Kjós, Selfossi og
Öræfum. Einnig verða Ítali, Þjóðverji
og Englendingur í hópnum. Þá verður
Matarbúrið í Kjós með Tuddann sinn
fyrir utan. Þar verður hægt að fá
hamborgara úr grasfóðruðu nautakjöti
beint frá bónda.
Mesta sauðfjárslátrun í 15 ár
– yfir 530 þúsund dilkar og meðalfallþungi á landinu öllu var sá næstmesti síðan 1999
Ár Kindakjöt Nautakjöt Hrossakjöt Svínakjöt Alifuglakjöt
1983
1984
1985
1986
1987
1988
1989
1990
1991
1992
1993
1994
1995
1996
1997
1998
1999
2000
2001
2002
2003
2004
2005
2006
2007
2008
2009
2010
2011
2012
Árleg kjötneysla á íbúa frá 1983
Maðalfallþungi allt landið
Ár Meðalvigt kg. Fjöldi
Eftir 2010 minnkaði sumarslátrun verulega
og ágústslátrun hefur að mestu farið fram
í seinni hluta mánaðarins.
Afurðastöð Meðalvigt
SS - Sláturfélag Suðurlands Selfossi 15,68
KVH Hvammstanga 16,03
Sölufélag A-Húnvetninga Blönduósi 15,96
KS Sauðárkróki 15,87
Norðlenska Húsavík 16,55
Fjallalamb Kópaskeri 16,11
Sláturfélag Vopnfirðinga 16,12
Norðlenska Hornafirði 15,77
Meðaltal allt landið 15,99
Heildarþungi allt landið 8.515.195
Fjöldi allt landið 532.453
Sláturtíð 2013 frá 1. ágúst til 31. nóvember
Meðalvigt innvigtaðra dilka í kg.
9.
23.
6.
20.
6.
20.
3.
16.
8.
22.
5.
19.
Bændablaðið
á nýju ári