Bændablaðið - 12.12.2013, Blaðsíða 38
39Bændablaðið | Fimmtudagur 12. desember 2013
Gylfaflöt 32 112 Reykjavík Sími 580 8200 www.velfang.is velfang@velfang.is
VERKIN TALA
F
R
U
M
-
w
w
w
.f
ru
m
.i
s
Óskum viðskiptavinum okkar sem og öðrum landsmönnum
gleðilegra jóla með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða
Öryggið fylgir tækjunum frá Vélfang
Hverri seldri CLAAS
dráttarvél á árinu
2013 fylgir farmiði
fyrir 2 til Þýskalands
MUNIÐ
ÁRAMÓTATILBOÐ
Líður kúnum þínum illa í fjósinu af
völdum spennumunar milli járna-
virkja? Hér verður rifjuð upp og
uppfærð grein undirritaðs frá 2002.
Vegna átaksverkefnis af hálfu MS
um bætt júgurheilbrigði er vert að ítreka
viðvörun um skaðleg áhrif rafstraums á
búpening, þó aðallega kýr, og hugleiða
nokkuð þetta mál og gefa góð ráð til
fyrirbyggjandi aðgerða.
Um þessi mál eru ýmsar kenningar
og menn ekki á einu máli um hvað
skiptir máli og hvað ekki og sumt
minnir beinlínis á þjóðsögur. Hér kemur
því eitt innlegg til viðbótar.
Grundvallaratriði sem hafa ber í
huga er að rafmagn fer ætíð greiðustu
og stystu leið til jarðar þ.e. um bestu
leiðnileiðina.
Vitað er um nokkur dæmi s.s. í nýju
fjósi þar sem í ljós kom að há frumutala
og óskýranleg tilvik júgurbólgu virtist
m.a. vera um að kenna lélegu jarðsam-
bandi og algjörlega óviðunandi sam-
bindingu járnavirkja.
Kýrin stendur á fjórum fótum og
langt er milli fram og aftur lappa og er
hún þar af leiðandi kjörin til að tengja
saman leiðandi hluti, svo sem vatns-
brynningartæki og flórrist, milligerði
og hliðgrind eða mjaltaþjón og stýrihlið
svo dæmi séu tekin.
Jafnvel milli arms og mjaltaþjóns
getur myndast spennumunur ef sam-
binding er ekki nægilega trygg.
Einnig er ljóst að kýrin getur
myndað smá hleðslu af básmottum og
dýnum og afhleðst þá þegar hún snertir
járn eða nær jarðsambandi líkt og við
þekkjum sjálf.
Meinið er að kýrnar eru sökum fleiri
útlima,blautra grana og byggingarlags
mun viðkvæmari en maðurinn fyrir
spennumun.
Kýrin er með blautar granir og þegar
hún snertir milligjörð eða vatnsdall og
stendur með blautar afturlappir á flór-
ristum getur hún auðveldlega orðið fyrir
spennumun milli þessara járnvirkja.
Hún skynjar og hefur vanlíðan af
jafnvel örfáum millivoltum, og verður
óróleg, vansæl og mun líklegri til þess
að verða nytlág, veikindasækin og oftar
lystarlaus.
Þetta getur síðan leitt til streitu þann-
ig að kýrin verður veikari fyrir alls kyns
áreiti, þ.m.t. júgurbólgu, þ.e. ónæmis-
kerfi hennar verður veilla og verr sett
hvað varðar nýsmit júgurbólgusýkla.
Eins eru legubásafjósin með allar
sínar básaeyjar, milligerði, stýrihlið,
mjaltaþjóna, vatnsbrynningu, sköfu-
þjóna (flórgoða) eða flórsköfur sem
stöðugt eru á ferðinni, kjörin fyrir
spennu vandamál sé ekki staðið rétt
að málum.
Ég held ég geti fullyrt að með því að
eyða nokkrum aukakrónum í að vanda
til verka hvað varðar jarðbindingu og
sambindingu megi búast við marg-
földum ágóða til baka í formi meiri
mjólkur, minni dýralækniskostnaðar,
betra heilsufars kúnna almennt og fleiri
mjaltaskeiða, þ.e. kýrnar verða eldri.
Það sem kúabóndinn ætti að gera
er eftirfarandi:
Fá rafvirkja eða tæknimann sem
hefur til þess tæki og kunnáttu að mæla
hvort jarðbinding fjóss og mannvirkja
er nægileg.
Þetta er vanalega gert með s.k.
hringrásarviðnámsmæli en svo má
auðveldlega sjá með skoðun og rann-
sókn kunnáttumanns hvort nægilega
vel sé bundið, hreinlega líta eftir bindi-
leiðslum, aðstæðum og samsetningum
járnavirkjanna og athuga þannig hvort
nægileg sambönd og bindingar séu
fyrir hendi.
Skoða þarf hvort eingöngu sé um
að ræða svokallaða sökkul jarðbindingu
eða eingöngu jörð í kapli inntaks. Ef svo
er skal reka þá einnig niður í gljúpan
jarðveg úti nokkur stafskaut ekki undir
1,5–2,0 m að lengd og leiða frá þeim
25-50 kvaðrat fjölþátta jarðleiðslu að
safnskinnu fyrir jörð í rafmagnstöflu
og að helstu járnavirkjum. Ef eitt
rofnar eru þá a.m.k. 2-3 önnur sem gefa
gott jarðsamband þ.e. jörð úr mörgum
áttum nokkurs konar „stjarna“.
Einnig má fá ágætt jarðsamband
með því að grafa niður 20–30 metra af
sverum óeinangruðum þræði (50 –70
kvaðrat) ca einn metra niður í gljúpan
jarðveg.
Frá töflu þarf síðan sérstaka jarð-
leiðslu að vatnsinntaki og að fyrsta
leiðandi virki í fjósinu.
Síðan þarf, og þetta er áríðandi og
á við básafjós með mjaltakerfum eða
legubásafjós með mjaltaþjónum eftir
því hvað á við, að binda saman allt
leiðandi járnavirki með 16-25 q leiðslu,
þ.e. vatnslagnir, milligjarðir á básum
sem og í mjaltabás, soglögn, flórristar,
ristar í mjaltabás ef þær eru þar sem
kýr standa í mjöltum, mjaltaþjón,
drullugrind undir mjaltaþjóni, stýrihlið,
stök millivirki, básamilligerði á eyjum,
grindur í gjafaaðstöðu, gjafakerfi
(weelink) hleðslustöð fyrir flórgoða
og önnur sjálfstætt standandi hlið og
grindverk.
Þar sem lagnir og milligerði eru
samansoðnar eða fest saman á annan
tryggilegan hátt nægir að jarðbinda þau
virki í sitt hvorn enda.
Ef flórristar í básafjósi eru saman-
soðnar eða ná góðri leiðni hvor við
aðra er nægilegt að binda þær saman
við milligjarðirnar í báða enda hverrar
raðar.
Þá þarf að binda á a.m.k tveimur
stöðum í loftklæðningu ef hún er úr járni
eða stáli og alla járnbita niður veggi.
Þakklæðningu, strompa ef í er vifta
og utanhússklæðningu úr járni ætti
einnig að jarð- og sambinda.
Láta huga að gömlum fluorsent
lömpum og binda þá til jarðar ef þarf
ásamt því að þéttatengja spóluna (bal-
lestina) í ljósinu svo þeir trufli síður og
angri skepnur.
Nýrri gerðir fjósljósa með ofur-
perum eru vanalega vel frá gengin séu
þau sett upp af fagmönnum
Þegar þetta hefur verið gert er orðið
eins tryggt og mögulegt er að ekki
myndist spennumunur milli leiðandi
járnavirkja.
Þá þarf í öllum fjósum reglulega
að prófa virkni útsláttarrofans (leka-
straumsliðans) í rafmagnstöflunni en
næmni hans á að vera minnst 30 mA.
Prófunarhnappur er á liðanum.
Mikill raki og bleyta í fjósi og
mjaltaaðstöðu eykur líkur á spennumun
þannig að góð loftræsting er nauðsyn-
leg.
Varðandi áhrif rafsegulsviðs í fjósum
af einhverjum orsökum vill greinarhöf-
undur segja þetta.
Vitað er að allsterkt rafsegulsvið
getur verið í afmörkuðum radíus
umhverfis háspennuvirki og undir
háspennulínum og er því ástæða til að
byggja ekki fjós undir hápennulínum
eða í nálægð háspennuvirkja þar sem
líklegt er að það geti aukið á vanlíðan
skepna og manna.
Hvaða áhrif menn eru að mæla þegar
engin háspennuvirki eru nálæg er alls
ekki vitað né heldur hvort þar er um að
ræða skaðlegt eða meinlaust segulsvið.
Með góðri sambundinni jarð-
tengingu í fjósi er vísast að bændur geti
verið nokkuð vissir um að gripir þeirra
búi við kjöraðstæður með tilheyrandi
velliðan og auknu hreysti.
Nóvember 2013
Kristján Gunnarsson
Ráðgjafi um mjólkurgæði.
Hraustar kýr, jarðbundið fjós
Vegna átaksverkefnis af hálfu MS um bætt júgurheilbrigði er vert að ítreka
viðvörun um skaðleg áhrif rafstraums á búpening, þó aðallega kýr, og hug-
leiða nokkuð þetta mál og gefa góð ráð til fyrirbyggjandi aðgerða.
Kristján Gunnarsson
Plast, miðar og tæki ehf. Krókhálsi 1 110 Rvk sími 567 8888 www.pmt.is
ÓSTAÐFESTAR PANTANIR - óskast staðfestar strax.
HAKKAVÉLARNAR
Komnar aftur.....