Bændablaðið - 12.12.2013, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. desember 2013
Áburður frá Yara, sem Sláturfélag
Suðurlands (SS) er með umboð
fyrir, lækkar umtalsvert í verði frá
síðust verðskrá. Köfnunarefnis-
áburður lækkar um 12
prósent og algengar þrígildar
áburðartegundir lækka um 8 til
11 prósent. Þetta kemur fram í
verðskrá Yara-áburðar fyrir árið
2013 til 2014. Verðskráin gildir
til 31. desember 2013, þó með
fyrirvara um breytingar á gengi. Þá
býður SS upp á greiðslusamninga
eða staðgreiðsluafslátt.
Þetta er í fyrsta skipti í áraraðir
sem áburður lækkar í verði milli
ára. Þá liggur verðskrá nú fyrir
óvenjusnemma, en ekki er langt síðan
bændur kvörtuðu hástöfum yfir því
að verðskrár lægju ekki fyrir fyrr en
komið væri fram undir vor.
Fóðurblandan býst við lækkun
Sigurður Þór Sigurðsson, fjármála-
stjóri hjá Fóðurblöndunni, segir að
von sé á verðskrá frá fyrirtækinu á
næstunni, en upp á síðkastið hefur
nokkuð verið um upphringingar þar
sem bændur hafa verið að spyrjast
fyrir um stöðu mála hjá fyrirtækinu
„Við birtum vöru- og verðskrár
15. febrúar síðastliðinn. Nú er þetta
fyrr á ferðinni og eins og staðan
er erum við á fullu að reyna að ná
samningum við birgja. Við sjáum
að það er lækkun í kortunum, það
er lækkun á heimsmarkaðsverði og
við hyggjumst gera eins vel og við
getum í þessum efnum. Ég á von á
því að við munum geta kynnt verð á
næstunni sem verður á svipuðu róli og
samkeppnisaðilinn er búinn að kynna,
með tilliti til þeirrar lækkunar sem
komin er fram á mörkuðum.
Það sem er fyrst og fremst að
lækka er köfnunarefnisáburður.
Heimsmarkaðsverð á honum er að
lækka um allt að 15 prósent en það
verður að taka tillit til þess að bæði
þurfum við að láta sekkja áburðinn og
eins kemur til flutningskostnaður. Það
er því ekki óeðlilegt að miða við 10
prósenta lækkun eða þar um.
Hráefni eins og fosfór og kalí
hafa einnig lækkað. Ég á því von
á að við getum komið fram með
samkeppnishæft verð og það gerist á
allra næstu dögum.“
Búvís í viðræðum
Hjá Búvís á Akureyri eru menn
enn að skoða málin að sögn Einars
Guðmundssonar framkvæmdastjóra.
„Það er ekkert fast í hendi. Við
verðum þó auðvitað með áburð til
sölu á þessu ári, frá sömu birgjum
og verið hefur. Við höfum hins vegar
ekki náð samningum um verð ennþá.
Ég á hins vegar von á því að það
gerist á næstu vikum. Það hefur
aðeins verið haft samband við okkur
og menn verið að grennslast fyrir um
stöðuna en það er enn sem komið er
litlu til að svara.“
Skýrist á næstunni hjá Skeljungi
Aron Baldursson hjá Skeljungi segir
að þar á bæ séu menn í samskiptum
við sína birgja og á hann von á að
staða mála skýrist á næstunni.
„Við erum að bíða eftir viðbrögðum
frá birgjum. Ég á von á því að það
styttist í því en þetta tekur auðvitað
alltaf tíma.“ Aðspurður sagðist Aron
ekki geta fullyrt neitt um verð á
þessum tímapunkti.
Tvívegis á síðustu þremur árum
hefur áburður frá Skeljungi reynst
innihalda of hátt magn kadmíum
miðað við íslenskar reglur. Aron segir
að það hafi komið verulega á óvart að
svo hafi verið, ekki síst nú síðasta vor.
„Við höfum reynt eftir fremsta
megni að auka eftirlit okkar enn frekar
en þetta hefur reynst erfitt. Við endur-
greiddum bændum sem fengu þennan
áburð frá okkur nú síðast en auðvitað
er óþolandi að þetta sé ekki í lagi. Við
munum láta taka sýni úr áburðinum og
gerum allt sem við getum til að þetta
endurtaki sig ekki.“
Áburður stærsti útgjaldaliður
sauðfjárbænda
Þórarinn Ingi Pétursson formaður
Landssamtaka sauðfjárbænda segir
lækkanir á áburðarverði gleðitíðindi
fyrir bændur.
„Það væri óeðlilegt ef sú lækkun
sem orðin er á heimsmarkaðs verði
myndi ekki birtast í verði hér og
við fögnum því að svo sé að verða.
Áburður er stærsti útgjaldaliður
í rekstri hjá sauðfjárbændum og
lækkun á verðinu er gríðarlega góð
tíðindi fyrir stéttina.“
Þórarinn segir að dæmi séu um
að bændur hafi dregið verulega úr
áburðargjöf fyrir þremur til fjórum
árum. „Það kom síðan niður á bændum,
einkum á Norðurlandi og Austurlandi
síðustu sumur þegar tíðarfar var ekki
hagstætt. Það eru ekki miklar birgðir
til af heyi í landinu og ég á ekki von
á öðru en að menn nýti þetta svigrúm
til að bæta í áburðargjöf.“
Aðspurður segir Þórarinn að
lækkun um tíu prósent geti þýtt að
hann spari hálfa milljón króna milli
ára. „Það má nota það í ýmislegt.“
Sigurður Loftsson, formaður
Landssambands kúabænda, tekur
undir með Þórarni.
„Lækkun á áburðarverði er
auðvitað gleðitíðindi fyrir kúabændur.
Áburður og sáðvörur hafa verið taldar
annar stærsti útgjaldaliður kúabænda,
á eftir kjarnfóðri. Svona mikil lækkun
segir mikið. Hins ber þó að geta að
áhrifanna mun ekki byrja að gæta í
rekstri kúabúa fyrr en seinni hluta
næsta árs. Þetta er eins og annað í
þessum rekstri, að þetta er ákveðið
langhlaup.“ /fr
Sigríður Bjarnadóttir tók við
starfi mjólkureftirlitsmanns
Mjólkursamsölunnar á Akureyri
1. september síðastliðinn, en þá lét
Kristján Gunnarsson, sem starfað
hafði sem mjólkureftirlitsmaður
áratugum saman, af störfum.
Bændablaðið spurði Sigríði hvern-
ig henni litist á nýja starfið.
„Starfið leggst bara vel í mig.
Mér finnst spennandi að takast á við
viðfangsefnin sem fylgja þessu nýja
starfi. Kristján Gunnarsson fyrirrenn-
ari minn hafði unnið gríðarlega gott
starf á svæðinu og ég tek við mjög
góðu búi af honum.“
Stórt starfssvæði
Starfssvæðið er stórt og nær yfir allt
Norður- og Austurland að Skagafirði
undanskildum; Húnavatnssýslur
báðar, Eyjafjörð, Suður-
Þingeyjarsýslu og svo Austurland
og Austfirði suður að Berufirði. Á
svæðinu eru um 230 framleiðendur,
eða um þriðjungur allra kúabænda
á landinu.
Sigríður er búin að heimsækja
marga framleiðendur á Austurlandi
síðan hún hóf störf, til að kynnast
þeim, skoða aðstæður hjá þeim og
gefa góð ráð ef þurfa þykir. Hún
reiknar með því að ná að heimsækja
flesta mjólkurframleiðendur á
Austurlandi fyrir áramót. Einnig er
hún búin að heimsækja þó nokkra
framleiðendur í Eyjafirði og Suður-
Þingeyjarsýslu. Hún stefnir að því
að heimsækja alla framleiðendur
á svæði sínu og vonast til að geta
klárað þær heimsóknir áður en ár er
liðið í starfi.
Mikil og góð vöktun á
framleiðslunni
Spurð hvort eitthvað hefði komið
henni á óvart í starfinu sagðist Sigríður
ekki hafa átt von á því hve mikil
vöktun væri á mjólkurframleiðslunni.
Hún vissi það fyrir að vöktunin væri
góð en ekki hversu nákvæm hún
væri. Varan er góð sem bændur eru
að framleiða og því skiptir miklu máli
að fylgja því eftir, veita aðhald og
aðstoð svo að neytendur beri traust
til framleiðslunnar og allra verkferla
frá bónda til fullunninna afurða í
matvöruverslunum.
Í hvert skipti sem mjólkurbíll
sækir mjólk til bónda er tekið
mjólkursýni úr mjólkurtanknum
sem fer í ákveðið ferli. Vikulega
fara fram mælingar á efnainnihaldi
mjólkurinnar sem bóndinn fær greitt
eftir til viðbótar þeim lítrafjölda sem
sóttur er í hvert skipti. Auk þess eru
fleiri gildi mæld í mjólkinni, svo sem
líf- og frumutala sem varða gæðin
beint.
Ef Sigríður verður vör við
óeðlilega hækkun á t.d. líftölu
eða frumutölu hjá einstökum
framleiðendum þá hefur hún strax
samband. Í samstarfi við bóndann
gefst ráðrúm til þess að leita orsaka
hækkunarinnar og grípa inn í.
Fyrir utan gæðamælingar er
öryggisvöktun á allri mjólk til
að tryggja að þegar verið er að
meðhöndla kýr með lyfjum verði
ekki óhöpp sem leiða til þess að
mjólk úr þeim gripum fari í vinnslu.
Þessi vöktun er mjög traust þó að
um hrein undantekningartilvik sé
að ræða.
Mikill árangur í gæðastarfi
Bændur eru vel vakandi og
meðvitaðir um að framleiða
gæða vöru og heilt yfir má segja
að undanfarna tvo áratugi hafi
bændur náð mjög miklum árangri
í gæðamálum í góðu samstarfi við
mjólkureftirlitið. Frumutala og
líftala hafa lækkað umtalsvert með
tilheyrandi betri nýtingu mjólkur og
betra geymsluþoli þeirra mjólkurvara
sem verið er að framleiða. Það hefur
komið neytendum, bændum og
iðnaðinum sjálfum til góða.
Er líka með búskap
Sigríður Bjarnadóttir er frá bænum
Eyhildarholti í Skagafirði. Hún er
stúdent frá MA og útskrifaðist síðan
sem búfræðingur frá Bændaskólanum
á Hólum í Hjaltadal, áður en hún hélt
til náms við Landbúnaðarháskólann
að Ási í Noregi. Þar stundaði hún
nám í búfjárrækt og útskrifaðist með
gráðu sem samsvarar meistaragráðu
eftir fimm ára nám. Fyrstu árin eftir
að hún flutti heim frá Noregi vann
hún við tilraunabúið á Möðruvöllum
í Eyjafirði. Þá vann hún sem
tilraunastjóri að tilraunabúinu Stóra
Ármóti á Suðurlandi í tvö ár.
Árið 1999 keypti hún ásamt
manni sínum, Brynjari Skúlasyni
skógfræðingi, jörðina Hólsgerði í
Eyjafjarðarsveit. Þar búa þau með
fjórum börnum sínum og stunda
sauðfjár-, hrossa- og kálfabúskap
ásamt skógrækt. Hún er því ekki
bara mjólkureftirlitsmaður heldur
einnig bóndi.
Árið 2005 hóf hún svo störf sem
ráðunautur hjá Búnaðarsambandi
Eyjafjarðar, staðsett á Búgarði
á Akureyri. Síðastliðin áramót
fluttist hún yfir í Ráðgjafarþjónustu
landbúnaðarins, áfram með
aðsetur á Búgarði, og var þar
við störf þar til hún tók við sem
mjólkureftirlitsmaður hjá MS í haust.
Hvetur bændur til að huga að
ásýnd býlanna
„Ég hvet bændur til þess að hafa
stöðugt í huga ásýnd býlis síns og
hafa það sem snyrtilegast, bæði í
umgengni og útliti. Það getur verið
gott að líta upp úr daglegu amstri
hversdagsins og velta því fyrir sér
hvað megi betur fara – setja sig í
„gestsauga-gírinn“ inn á milli,
jafnvel bara spyrja gestina hvað
þeim finnist! Svo er líka fínt að
tengja verk við fasta daga svo að
ekki líði of langt á milli ákveðinna
þrifa eða tiltekta. Þannig verða þau
fastur liður í hefðbundnum störfum
í stað þess að hlaðast upp og verða
of umfangsmikil þegar á reynir.“
/HA
Nýr mjólkureftirlitsmaður MS á Akureyri:
Starfið leggst vel í mig
Sigríður Bjarnadóttir við störf á skrifstofu sinni á Akureyri. Myndir / Hermann Aðalsteinsson
Sigríður á lager MS á Akureyri.
Áburður lækkar
í verði hjá SS
– aðrir áburðarsalar í viðræðum við birgja