Bændablaðið - 12.12.2013, Blaðsíða 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. desember 2013 7
kki lánaðist mér að fara
rétt með vísu úr bréfi
Ástu Sverrisdóttur, sem
birt var í síðasta þætti.
Jafnframt var leitað höfundar að
henni. Rétt er vísan svona:
Unir hljóð við ís og glóð,
elskar ljóðin fögur.
Okkar þjóð á engan sjóð
á við góðar bögur.
Frá því í septemberbyrjun þessa
árs hefur Trésmiðjan Stígandi á
Blönduósi staðið að byggingu
gestahúss fyrir okkur hjón í
Kotabyggð. Einar Kolbeinsson í
Bólstaðarhlíð er þar innsti koppur í
búri og hefur af mikilli smásmygli
haldið okkur upplýstum um
framgang byggingarinnar með
„símavísum“. Hér eftir verður
byggingaskýrsla rakin:
Ólíkinda algert tól,
Árni meðal seggja,
á nú hérna afbragðs skjól
innan fjögurra veggja.
Af því bæði af elju og dug
unnu að þessum dáðum,
raftar hafa ríkan hug
á reisugilli bráðum.
Harðsnúið er hölda lið
hér í smíðaskakinu,
og Birkir er að bjástra við
bárujárn á þakinu.
Af barnslegum ákafa fer svo Einar
að nefna afhendingardag hússins:
Hörku sýndi húsasmið,
og herti tímaskorður.
Fyrr en eldist fullveldið
fari húsið norður.
Þegar dregur svo að 1. desember
og bráir af Einari og raunveruleik-
inn blasir við er reynt að dreifa
málinu á glæ:
Fullur gleði fagna mátt
fokheldinu Árni,
því nú er sérhver gluggagátt
glerjuð og búin járni.
Við hjúin hér í Kotabyggðinni
höfðum þegar hér var komið gjört
grunninn kláran og komið lögnum
í jörð út í grunn. Af nokkru stolti
tjáðum við Einari frá þeim áfanga.
Hann gladdist ósegjanlega:
Vel ég fagna vinur því,
og veit að ekki klikkar,
að nú þarf ekkert náttgagn í
nýja húsið ykkar.
Langan dag hann lagði á sig,
og lúinn gerði kroppinn,
svo að gestir geti á svig
gengið jú, við koppinn.
Ískyggilega dregur að áður boðuðum
afhendingardegi. En nú ber svo við
að Einar kýs að valkóka frekar
kringum önnur einskisverð atriði:
Áföngunum iðnir ná,
sem ala Húnaþingin,
og nú er komin klæðning á
kofann allan hringinn.
Agnarlítið á ég hrós,
engan veginn skilið,
því ekki er komin kynding, ljós,
kamarinn né þilið.
Ögn var nú farið að tæpa á
dagsektum. Töldu vinnufélagar
Einars ráð gott að Einar orti
vinsamlega til verkkaupanda.
Slíkan afslátt var Einar engan
veginn tilbúinn að veita:
Árna Jóns sem öðlingsmann
einvörðungu þekki,
en það að yrkja hól um hann
hentar mér samt ekki.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
Líf og starf
MÆLT AF
MUNNI FRAM
E
Umhverfis- og auðlindaráðherra,
Sigurður Ingi Jóhannsson, veitti
landgræðsluverðlaunin við
hátíðlega athöfn í Gunnarsholti
föstudaginn 29. nóvember.
Verðlaunin eru árlega veitt
einstaklingum, félagasamtökum
og skólum sem unnið hafa að
land græðslu og landbótum.
Með þessari viðurkenningu vill
Land græðslan vekja athygli
þjóðarinnar á fórnfúsu starfi
fjölda þjóðfélagsþegna að
landgræðslu málum og jafnframt
hvetja aðra til dáða.
Bíldsfell II og III
Að þessu sinni fóru verðlaunin
til bræðranna og eiginkvenna
þeirra á Bíldsfelli II og III í
Grímsnes- og Grafningshreppi,
auk Hafnarfjarðarbæjar. Árni
Þorvaldsson og Sigrún Hlöðversdóttir
búa á Bíldsfelli III og Guðmundur
Þorvaldsson og Kristín Guðrún
Gísladóttir á Bíldsfelli II. Bændur
á Bíldsfelli eru hugsjónamenn í
landgræðslu,
hugsa fyrst
og f remst
um að græða
landið með
það að leiðar-
ljósi að náttúru-
legur gróður
nái sér á strik
frekar en að fá
mikinn grasvöxt.
Því ná þeir með
því að nota litla
áburðarskammta
til að laða fram
náttúru leg gróður-
lendi með lyngi,
birki og ýmsum
blómjurtum. Auk
þess að sinna
landgræðslu á sinni
jörð af stakri prýði, sá Árni um
viðamikil landgræðslustörf fyrir
aðra bændur í Grafningi í nokkur ár.
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær hefur lengi
unnið ötullega að landgræðslu og
gróðurverndarmálum. Sveitarfélagið
kom á sínum tíma upp beitarhólfi á
landi sínu í Krýsuvík fyrir sauðfé
bæjarbúa. Hafnarfjarðarbær gaf þar
öðrum sveitarfélögum gott fordæmi
og hvatningu sem varð til þess að
með uppsetningu fleiri beitarhólfa
náðist það langþráða takmark að
banna lausagöngu búfjár á öllum
Reykjanesskaga. Með tilkomu
beitarhólfanna tókst að friða
þúsundir hektara fyrir beit og gera
tugi kílómetra af girðingum óþarfa.
Bærinn hefur einnig lagt áherslu
á uppgræðslu utan beitarhólfsins
og þá mest með lífrænum áburði.
Notað hefur verið hrossatað,
svínamykja og hænsnaskítur til
að græða örfoka land og árangur
verið mjög góður. Magnús Hlynur
Hreiðarsson var við afhendingu
landgræðsluverðlaunanna og tók
meðfylgjandi myndir.
Landgræðsluverðlaunin 2013:
Bræðurnir á Bíldsfelli og Hafnarfjarðar-
bær hlutu verðlaunin í ár
Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri, Sævar Andri Árnason, sem tók við verðlaununum fyrir hönd foreldra sinna, Árna Þorvaldsonar
og Sigrúnar Hlöðversdóttur, Guðmundur Þorvaldsson og Kristín Guðrún Gísladóttir, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri
Hafnarfjarðar, og umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson. Verðlaunagripirnir, Fjöregg Landgræðslunnar, eru
unnir af Eik listiðju, Miðhúsum á Fljótsdalshéraði. Myndir / MHH
Sigurður Ingi afhendir hér bæjarstjóra Hafnar-
fjarðarbæjar landgræðsluverðlaunin 2013.
Bæjarstjórinn hélt góða ræðu og þakkaði fyrir
viðurkenninguna.
Sigurður Sigurðarson dýralæknir og Þór
Jakobsson veðurfræðingur létu sig ekki vanta
við afhendingu landgræðsluverðlaunanna,
sem fóru fram í Frægarði, glæsilegu húsnæði
Landgræðslunnar.
Sigþrúður Jónsdóttir, héraðsfulltrúi Landgræðslunnar (t.h.), og
Ólöf Erla Halldórsdóttir á Selfossi.