Bændablaðið - 12.12.2013, Blaðsíða 35
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. desember 2013
„Ég hef alveg óskaplega gaman af
þessu, þetta er eitt það skemmtileg-
asta sem ég geri,“ segir Gunnhildur
Þórhallsdóttir á Akureyri, en hún
hefur undanfarna þrjá áratugi
verið afskaplega dugleg við að mála
á postulín. Gunnhildur ólst upp í
Eyjafjarðarsveit en hefur lengst af
ævinni búið á Akureyri.
„Ég byrjaði á þessu fyrir 32 árum,
þannig að þetta er orðinn ágætur
tími,“ segir hún. Gunnhildur fór á
námskeið hjá Iðunni Ágústsdóttur
þar sem hún lærði réttu handtökin
og segir að hún hafi verið einstak-
lega góður kennari. Mjög hafi verið
vandað til verka á alla hátt og Iðunn
hafi opnað augu nemenda sinna fyrir
hinu listræna og smáa í verkunum.
Gunnhildur var á myndlistabraut
Verkmenntaskólans á Akureyri
einn vetur og lærði málun við
Myndlistaskólann á Akureyri.
Hún segir að postulínsmálun
krefjist þess að menn séu í góðu
formi, það þurfi að vanda sig við
verkið og einbeita sér. „Fólk þarf að
búa yfir töluverðum handstyrk til að
stunda þessa iðju,“ segir hún.
Mest hefur Gunnhildur málað
fyrir ættingja og vini og í einhverjum
tilvikum málar hún fyrir aðra eftir
pöntun, hafði t.d. nýlega lokið við
súkkulaðikönnu og átta bolla sem
góðviljaður eiginmaður hafði pantað
handa konu sinni. Fyrir jólin eru
súkkulaðikönnur mest áberandi og
einnig hefur Gunnhildur lagt mikla
áherslu á platta með skemmtilegum
jólasveinamyndum þar sem húmorinn
er í öndvegi. „Það verður að hafa
gaman af þessu öllu saman, krydda
svolítið með húmor,“ segir hún. /MÞÞ
Óskaplega gaman að mála á postulín
– segir Gunnhildur Þórhallsdóttir á Akureyri
Bændasamtök Íslands óska bændum og fjölskyldum
þeirra og öllum samstarfsaðilum sínum gleðilegra jóla.
Þökkum samskiptin á liðnu ári.
www.bondi.is
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár
Gunnhildur með eina af þeim fjölmörgu myndum sem hún hefur málað um árin. Myndir / MÞÞ
Sýnishorn af jóladiskum Gunnhildar.
Gunnhildur segir fátt skemmtilegra en að stunda postulínsmálun.
Glæsilegir postulínsgripir.
Bændablaðið
Óskar landsmönnum gleðilegra jóla
og farsæladar á nýju ári
Gleðileg jól
Samband garðyrkjubænda
_____________
Landssamband kartöflubænda
Félag garðplöntuframleiðenda
Félag grænmetisframleiðenda
Félag blómaframleiðenda
Landssamband
kúabænda
óskar íslenskum
kúabændum gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári.