Bændablaðið - 12.12.2013, Blaðsíða 38

Bændablaðið - 12.12.2013, Blaðsíða 38
39Bændablaðið | Fimmtudagur 12. desember 2013 Gylfaflöt 32 112 Reykjavík Sími 580 8200 www.velfang.is velfang@velfang.is VERKIN TALA F R U M - w w w .f ru m .i s Óskum viðskiptavinum okkar sem og öðrum landsmönnum gleðilegra jóla með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða Öryggið fylgir tækjunum frá Vélfang Hverri seldri CLAAS dráttarvél á árinu 2013 fylgir farmiði fyrir 2 til Þýskalands MUNIÐ ÁRAMÓTATILBOÐ Líður kúnum þínum illa í fjósinu af völdum spennumunar milli járna- virkja? Hér verður rifjuð upp og uppfærð grein undirritaðs frá 2002. Vegna átaksverkefnis af hálfu MS um bætt júgurheilbrigði er vert að ítreka viðvörun um skaðleg áhrif rafstraums á búpening, þó aðallega kýr, og hugleiða nokkuð þetta mál og gefa góð ráð til fyrirbyggjandi aðgerða. Um þessi mál eru ýmsar kenningar og menn ekki á einu máli um hvað skiptir máli og hvað ekki og sumt minnir beinlínis á þjóðsögur. Hér kemur því eitt innlegg til viðbótar. Grundvallaratriði sem hafa ber í huga er að rafmagn fer ætíð greiðustu og stystu leið til jarðar þ.e. um bestu leiðnileiðina. Vitað er um nokkur dæmi s.s. í nýju fjósi þar sem í ljós kom að há frumutala og óskýranleg tilvik júgurbólgu virtist m.a. vera um að kenna lélegu jarðsam- bandi og algjörlega óviðunandi sam- bindingu járnavirkja. Kýrin stendur á fjórum fótum og langt er milli fram og aftur lappa og er hún þar af leiðandi kjörin til að tengja saman leiðandi hluti, svo sem vatns- brynningartæki og flórrist, milligerði og hliðgrind eða mjaltaþjón og stýrihlið svo dæmi séu tekin. Jafnvel milli arms og mjaltaþjóns getur myndast spennumunur ef sam- binding er ekki nægilega trygg. Einnig er ljóst að kýrin getur myndað smá hleðslu af básmottum og dýnum og afhleðst þá þegar hún snertir járn eða nær jarðsambandi líkt og við þekkjum sjálf. Meinið er að kýrnar eru sökum fleiri útlima,blautra grana og byggingarlags mun viðkvæmari en maðurinn fyrir spennumun. Kýrin er með blautar granir og þegar hún snertir milligjörð eða vatnsdall og stendur með blautar afturlappir á flór- ristum getur hún auðveldlega orðið fyrir spennumun milli þessara járnvirkja. Hún skynjar og hefur vanlíðan af jafnvel örfáum millivoltum, og verður óróleg, vansæl og mun líklegri til þess að verða nytlág, veikindasækin og oftar lystarlaus. Þetta getur síðan leitt til streitu þann- ig að kýrin verður veikari fyrir alls kyns áreiti, þ.m.t. júgurbólgu, þ.e. ónæmis- kerfi hennar verður veilla og verr sett hvað varðar nýsmit júgurbólgusýkla. Eins eru legubásafjósin með allar sínar básaeyjar, milligerði, stýrihlið, mjaltaþjóna, vatnsbrynningu, sköfu- þjóna (flórgoða) eða flórsköfur sem stöðugt eru á ferðinni, kjörin fyrir spennu vandamál sé ekki staðið rétt að málum. Ég held ég geti fullyrt að með því að eyða nokkrum aukakrónum í að vanda til verka hvað varðar jarðbindingu og sambindingu megi búast við marg- földum ágóða til baka í formi meiri mjólkur, minni dýralækniskostnaðar, betra heilsufars kúnna almennt og fleiri mjaltaskeiða, þ.e. kýrnar verða eldri. Það sem kúabóndinn ætti að gera er eftirfarandi: Fá rafvirkja eða tæknimann sem hefur til þess tæki og kunnáttu að mæla hvort jarðbinding fjóss og mannvirkja er nægileg. Þetta er vanalega gert með s.k. hringrásarviðnámsmæli en svo má auðveldlega sjá með skoðun og rann- sókn kunnáttumanns hvort nægilega vel sé bundið, hreinlega líta eftir bindi- leiðslum, aðstæðum og samsetningum járnavirkjanna og athuga þannig hvort nægileg sambönd og bindingar séu fyrir hendi. Skoða þarf hvort eingöngu sé um að ræða svokallaða sökkul jarðbindingu eða eingöngu jörð í kapli inntaks. Ef svo er skal reka þá einnig niður í gljúpan jarðveg úti nokkur stafskaut ekki undir 1,5–2,0 m að lengd og leiða frá þeim 25-50 kvaðrat fjölþátta jarðleiðslu að safnskinnu fyrir jörð í rafmagnstöflu og að helstu járnavirkjum. Ef eitt rofnar eru þá a.m.k. 2-3 önnur sem gefa gott jarðsamband þ.e. jörð úr mörgum áttum nokkurs konar „stjarna“. Einnig má fá ágætt jarðsamband með því að grafa niður 20–30 metra af sverum óeinangruðum þræði (50 –70 kvaðrat) ca einn metra niður í gljúpan jarðveg. Frá töflu þarf síðan sérstaka jarð- leiðslu að vatnsinntaki og að fyrsta leiðandi virki í fjósinu. Síðan þarf, og þetta er áríðandi og á við básafjós með mjaltakerfum eða legubásafjós með mjaltaþjónum eftir því hvað á við, að binda saman allt leiðandi járnavirki með 16-25 q leiðslu, þ.e. vatnslagnir, milligjarðir á básum sem og í mjaltabás, soglögn, flórristar, ristar í mjaltabás ef þær eru þar sem kýr standa í mjöltum, mjaltaþjón, drullugrind undir mjaltaþjóni, stýrihlið, stök millivirki, básamilligerði á eyjum, grindur í gjafaaðstöðu, gjafakerfi (weelink) hleðslustöð fyrir flórgoða og önnur sjálfstætt standandi hlið og grindverk. Þar sem lagnir og milligerði eru samansoðnar eða fest saman á annan tryggilegan hátt nægir að jarðbinda þau virki í sitt hvorn enda. Ef flórristar í básafjósi eru saman- soðnar eða ná góðri leiðni hvor við aðra er nægilegt að binda þær saman við milligjarðirnar í báða enda hverrar raðar. Þá þarf að binda á a.m.k tveimur stöðum í loftklæðningu ef hún er úr járni eða stáli og alla járnbita niður veggi. Þakklæðningu, strompa ef í er vifta og utanhússklæðningu úr járni ætti einnig að jarð- og sambinda. Láta huga að gömlum fluorsent lömpum og binda þá til jarðar ef þarf ásamt því að þéttatengja spóluna (bal- lestina) í ljósinu svo þeir trufli síður og angri skepnur. Nýrri gerðir fjósljósa með ofur- perum eru vanalega vel frá gengin séu þau sett upp af fagmönnum Þegar þetta hefur verið gert er orðið eins tryggt og mögulegt er að ekki myndist spennumunur milli leiðandi járnavirkja. Þá þarf í öllum fjósum reglulega að prófa virkni útsláttarrofans (leka- straumsliðans) í rafmagnstöflunni en næmni hans á að vera minnst 30 mA. Prófunarhnappur er á liðanum. Mikill raki og bleyta í fjósi og mjaltaaðstöðu eykur líkur á spennumun þannig að góð loftræsting er nauðsyn- leg. Varðandi áhrif rafsegulsviðs í fjósum af einhverjum orsökum vill greinarhöf- undur segja þetta. Vitað er að allsterkt rafsegulsvið getur verið í afmörkuðum radíus umhverfis háspennuvirki og undir háspennulínum og er því ástæða til að byggja ekki fjós undir hápennulínum eða í nálægð háspennuvirkja þar sem líklegt er að það geti aukið á vanlíðan skepna og manna. Hvaða áhrif menn eru að mæla þegar engin háspennuvirki eru nálæg er alls ekki vitað né heldur hvort þar er um að ræða skaðlegt eða meinlaust segulsvið. Með góðri sambundinni jarð- tengingu í fjósi er vísast að bændur geti verið nokkuð vissir um að gripir þeirra búi við kjöraðstæður með tilheyrandi velliðan og auknu hreysti. Nóvember 2013 Kristján Gunnarsson Ráðgjafi um mjólkurgæði. Hraustar kýr, jarðbundið fjós Vegna átaksverkefnis af hálfu MS um bætt júgurheilbrigði er vert að ítreka viðvörun um skaðleg áhrif rafstraums á búpening, þó aðallega kýr, og hug- leiða nokkuð þetta mál og gefa góð ráð til fyrirbyggjandi aðgerða. Kristján Gunnarsson Plast, miðar og tæki ehf. Krókhálsi 1 110 Rvk sími 567 8888 www.pmt.is ÓSTAÐFESTAR PANTANIR - óskast staðfestar strax. HAKKAVÉLARNAR Komnar aftur.....
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.