Bændablaðið - 12.12.2013, Blaðsíða 55
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. desember 2013
hlj@bondi.is
Vélabásinn
Hjörtur L. Jónsson
Í þessum pistlum mínum hér í
blaðinu hef ég prófað töluvert
marga smábíla sem eru almennt
frekar ódýrir í rekstri og góðir
kostir til ferðalaga svo framarlega
að ekki sé þörf á miklu rými fyrir
farangur og farþega. Askja, sem er
umboðsaðili Kia, er eina umboðið
býður upp á sjö ára ábyrgð á
öllum Kia-bílum. Fyrir skemmstu
prófaði ég Kia Picanto, sem er
smábíllinn í Kia-fjölskyldunni.
Fljótur að hitna
og kúplingin óvenju létt
Sennilega voru veðuraðstæður þær
verstu til prófunar á bíl þennan dag
sem ég reynsluók bílnum, mikið
rok, ausandi rigning og slydda
á köflum. Þegar ég var búinn að
gangsetja bílinn og hugðist setja
hann í gír hélt ég að eitthvað væri
að kúplingunni því að það var svo
létt að stíga á hana. Varlega prufaði
ég að setja bílinn í fyrsta gír, sem
var allt í lagi. Aldrei hef ég keyrt
bíl með eins létta kúplingu. Með
sætishitarann á og miðstöðina á fullu
lagði ég af stað út í borgarumferðina.
Eftir u.þ.b. einnar mínútu akstur var
komin funhiti inni í bílnum svo að
bæði sætishitari og miðstöðin fengu
frí. Þegar ég bakkaði í stæði fyrir
utan verslun sem stoppað var í kom
það mér á óvart að svona lítill bíll
væri með hindrunarvara að aftan,
en oftast er þetta bara í stórum
og dýrum bílum. Þegar ég opnaði
farangursrýmið fannst mér það lítið
en þegar ég raðaði vörunum sem ég
var með þar hefði mátt koma töluvert
meiru fyrir (sem sagt lítið, en stórt).
Í farangursrýminu rak ég augun í
neyðarpakka í plasti með tveim
öryggisvestum. Fyrir það að setja
tvö öryggisvesti í bílinn fær Kia auka
stjörnu frá mér, en tvö öryggisvesti
í bíl hef ég ekki rekið augun í áður.
Góður og lipur innanbæjarbíll
Baksýnisspeglar á hliðum eru góðir
og spegillinn inni í bílnum er stór
og góður. Innanbæjar er Kia Picanto
lipur og þægilegur í alla staði og
þar sem hann mengar ekki nema
0,99 grömm á km fær bíllinn frítt
í bílastæði í miðbæ Reykjavíkur.
Hljómtækin eru mjög góð og
einnig er hægt að tengja iPad við
græjurnar í þar til gerðar innstungur
sem ætlaðar eru MP3-spilara,
USB-tengi. Einnig fylgir sérstök
snúra fyrir iPad. Hátalarakerfið
státar af sex hátölurum. Handfrjáls
Bluetooth-búnaður er í bílnum. Öllu
þessu er hægt að stýra með tökkum
sem eru á stýrinu (bæði síma og
hljómtækjum). Á milli sætanna fyrir
framan gírstöngina er mjög gott hólf
sem er hægt að breyta í glasastanda
með einum takka (mjög sniðugt og
einfalt).
Fjöðrun góð en mikið malarhljóð
Samkvæmt bæklingi á Kia Picanto
að eyða 4,2 í blönduðum akstri,
en þegar ég var á bílnum voru
aðstæður eins vondar og hugsast
getur til sparaksturs. Innanbæjar
var ég að eyða 7,4 á hundraðið,
meðaleyðslan mín var 6,6 lítrar og
í langkeyrslu eyddi ég 5,8 lítrum.
Það er einfaldlega ekki hægt að spara
eldsneyti við akstursskilyrðin eins og
þau voru þegar ég ók bílnum. Einnig
prófaði ég bílinn á malarvegi, en þar
sem úti var blautt og hann á grófum
vetrardekkjum er grjóthljóðið sem
heyrðist undir bílnum varla marktækt.
Það heyrðist mikið í smágrjótinu
undir bílnum, minnti mig óþægilega
á Búsáhaldabyltinguna, óttalegt
dolluhljóð. Hins vegar var bíllinn
mjög stöðugur á mölinni og fjöðrunin
tók djúpar og hvassar holurnar og
gerði þær að engu.
Jákvætt: Mikið af aukabúnaði,
bakkskynjari, lítil dekk sem eru
ódýr, stöðugleikastýring, Bluetooth,
fjöðrun, spólvörn, fljótur að hitna,
tvö öryggisvesti í öryggispakka.
Neikvætt: Hljóð undir bílnum á möl,
vél mætti vera aðeins kraftmeiri.
Kia Picanto – álitlegur jólapakki
Verð: 1.990.777
Hæð: 1.480 mm
Breidd: 1.595 mm
Þyngd: 895 kg
Vél: 998 cc bensín
Lengd: 3.595 mm
Hestöfl 68
Kia Picanto
Bara að skella silfurborða utan um hann, þá er kominn jólabíll. Kia Picanto.
ofan
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
Teg:
Teg:
Teg: