Læknablaðið - 15.11.1958, Blaðsíða 12
84
LÆKNABLAÐIÐ
um sjúklingum á ári. Hefur við
þær rannsóknir komið i ljós, að
sama hlutfall er áfram á milli
frumeinkenna sjúkdómsins, en
það gefur frekari vísbendingu
um, að niðurstöður dr. Gortons
séu réttar.
Eg mun nú vikja að hans nið-
urstöðum.
TAFLA III.
Första s-ymptom (Gorton, 1951).
Buksmártor ................. 52
Blödningar:
a) före menopausen .... 14
b) i menopausen ....... 23
--- 37
Tillváxt af buk............. 23
Márkt knöl i buken .......... 8
Trötthet, avmagring.......... 7
Urinbesvár .................. 4
Flytning, ryggsmártor, várk i
benet, krákningar, diarré, and-
fáddhet, körtel i Ijumske (var-
dera 1) ................... 7
Okánt ....................... 2
Summa 140
Sjúkdómssaga hefur verið
vandlega rakin um alla þessa
sjúklinga. Eins og taflan gefur
til kynna, eru verkir í kviðar-
holi langsamlega algengasta
frumeinkenni, ennfremur at-
liyglisvert, að óreglulegar hlæð-
ingar eru i mörgum tilfellum
fyrsla einkenni, einkum blæð-
ingar eftir að tíðir liætta.
Vil ég í þessu sambandi geta
þess, að dr. Gorton hefur um
nokkurra ára skeið skorið upp
um 60 konur, sem fengu blæð-
ingar meira en tveim árum eftir
að tiðir hættu. Höfðu þær all-
ar þetta eina einkenni, og ekk-
ert athugavert var finnanlegt
við venjulega „gynekologiska“
rannsókn. Reyndust tvær hafa
byrjandi krabbamein i öðrum
eggjastokknum, og ennfremur
fjórar aðrar hafa fibroma í
sama líffæri, sem við smásjár-
rannsókn sýndu miklar mitosae
og atypiae í frumudeilingu, og
dæmd voru forstig krabbameins
af læknum meinafræðideildar-
innar. Auk þess höfðu nokkrar
til viðbótar lítil góðkvnja æxli.
Eru niðurstöður þessar mjög at-
hyglisverðar, og hvetja til mik-
illar árvekni varðandi konur
með þetta einkenni.
Verkir þeir í kviðarholi, sem
um getur, geta verið af ýmsum
tegundum. Þeir geta verið væg-
ir, dreifðir um allt kviðarhol
eða staðbundnir. Þeir geta verið
mjög sterkir og varað stutt eða
varað lengi. I mörgum tilfellum
höfðu sjúklingarnir oft leitað
læknis eða legið einu sinni eða
oftar í sjúkrahúsum og verið
rannsakaðir á margan hátt.
Röntgenmyndir teknar af öllum
meltingarveginum, gallblöðru
og nýrum, en þvi miður hafði
ofl verið látið undir höfuð leggj-
ast að gera „gynekologiska“
rannsókn, einkum í þeim tilfell-
um, þar sem verkirnir voru
staðsettir í efri hluta kviðarhols.
Höfðu margar lcvenna þessara
liaft sj úkdómgreininguna, neu-
rasthenia, um langt skeið.