Læknablaðið - 15.11.1958, Blaðsíða 35
L Æ K NABLAÐIÐ
103
þessum námsferli var doktors-
ritgerð, er hann varði við Kaup-
mannahafnarháskóla i febr.
1931, og fjallaði hún um
„Æthiologiske Undersögelser
over den kirurgiske Tubercu-
lose i Barnealderen“. Það sama
ár var hann skipaður forstöðu-
maður röntgendeildarinnar við
Sct. Elisabeths Ilospital i Kaup-
mannahöfn, og gegndi liann því
embætti til dauðadags. Jafn-
framt starfi sínu á sjúkrahús-
inu, stundaði hann almennar
lækningar i Kaupmannahöfn,
eða nánar tiltekið frá 1920.
Hann var í stjórn „Hins íslenzka
fræðafélags1 í Kaupmannahöfn
og hréfafélagi í „Vísindafélagi
lslendinga“.
Sama árið og Halldór lauk
emhættisprófi sínu, kvæntist
liann danskri konu, Julie Wulff-
Seback, ættaðri frá Svendborg
á Fjóni. Eignuðust þau 2 hörn,
pilt og stúlku, sem bæði eru gift
og búsett í Danmörku. Halldór
varð hráðkvaddur á heimili sínu
kvöldið þ. 19. nóv. siðastliðinn.
Við vorum 15 stúdentarnir
sumarið 1909 og þeir síðustu,
er útskrifuðust eftir gömlu
reglugerðinni. Af þessum hóp
voru 8 eða raunar 9, sem hófu
nám í læknisfræði og luku 7
emhættisprófi; 5 frá háskólan-
um hér heima og 2 frá háskól-
anum í Kaupmannaliöfn. Er
mér nær að halda, að þessi stú-
dentaárgangur okkar muni hafa
hæsta hundraðstölu lækna allra
árganga fyrr og síðar.
Halldór var góður námsmað-
ur, eins og hann átti kyn til,
samvizkusamur og vandur að
virðingu sinni. Hann var vel lát-
inn bæði af samstarfsmönnum
sínum og sjúklingum, og áttu
landar hans hauk í horni þar
sem hann var með ýmiskonar
fyrirgreiðslu. Það var ánægju-
legt að koma á heimili hans,
og lét ég aldrei undir liöfuð
leggjast að koma þar við, er
ég var á ferð um Kaupmanna-
höfn eða hafði þar viðdvöl.
Hann var fríður sýnum, frekar
liár vexti og vel á sig kominn
að öllu leyti, virðulegur í allri
framkomu, en vingjarnlegur í
viðmóti.
Það er alltaf mikill skaði fyrir
okkar fámennu þjóð, þegar vel
menntaðir og góðir starfsmenn
kjósa heldur að starfa í fram-
andi landi að námi loknu, en
þó er því ekki að neita, að það
vekur hjá okkur ánægju og
gleði, þegar landar okkar eru
góðir fulltrúar lands síns meðal
annara þjóða. Halldór heitinn
var einn i þeim hóp.
Bjarni Snæbjörnsson.