Læknablaðið - 15.11.1958, Side 17
LÆKNABLAÐIÐ
89
um, hélt nákvæmar skýrslur o.
fl., sem liefur svo orðið öðrum
til eftirbreytni og fyrirmyndar.
Hann var í mörg ár læknir
íþróttamanna og lögregluþjóna
og vann þau störf af alúð og
samvizkusemi, eins og önnur
störf sín.
Hann kappkostaði að fylgjast
vel með öllum nýjungum í
læknisfræðinni, sérstaklega í
sínu fagi, og dvaldi því erlendis
á sjúkrahúsum öðru hvoru í
lengri eða skemmri tíma til
framhaldsmenntunar.
Öskar læknir átti þá eigin-
leika, sem nauðsynlegir eru til
þess að vera góður læknir;
framkoman fáguð og prúð,
stilltur og rólegur, nærgætinn og
glaðlegur, ekki sízt við litlu
sjúklingana, börnin, sem þarfn-
ast svo nákvæmrar umönnunar
og traustvekjandi framkomu
læknisins, sem kemur til að
hjálpa og hugga eins og mildur
faðir eða ástrík móðir.
Skyldurækni og velvild til
allra einkenndu hans líf og starf,
hann var því mjög ástsæll og
vel látinn af sjúklingum sínum,
og þeim þess vegna liarmdauði.
Hann var hár vexti og vel
vaxinn, bjartur vfirlitum, liárið
ljóst og augun hlá, svipurinn
lireinn og mildur, framkoman
öll har vott um fágaðan per-
sónuleika.
Óskar læknir var góðum gáf-
um gæddur, ákveðinn í skoðun-
um, trygglyndur og vinfastur.
Hann kvæntist 1928 Guðrúnu
Sveinsdóttur frá Hrauni á
Skaga, ágætri konu, sem bjó
honum lilýtt og bjart fyrir-
myndarheimili, þar sem hin
gamla, góða íslenzka gestrisni
naut sín í ríkum mæli, enda var
oft gestkvæmt á heimilinu,
hjónin hæði samvalin í því
að gera gestunum stundina
skemmtilega og endurminning-
una hlýja; á slík heimili er gott
að koma. Þau eignuðust eina
dóttur, Auði Helgu.
Af okkur skólabræðrum lians
er hans sárt saknað sem góðs
félaga og læknis, en endurminn-
ingin um góðan drengskapar-
mann mun geymast hjá okkur
meðan ævin endist.
Kr. Sveinsson.
Lækning á lepra rneð
sulfonlyf jum
1 grein um lepra, sem nýlega
birtist í Lancet eftir Sir Leonard
Roger, segir, að notkun sulfonlyfja
sé hin merkasta framför sem orð-
ið hafi lækningu þessa sjúkdóms.
1 austur Nígeríu hefur sulfonlyfið
dapsone, sem er tiltölulega ódýrt
og gefið per os í töflum, gefið jafn-
góða raun og önnur dýrari lyf.
Helztu kostir suulfonlyfjanna eru
hve fljótt þau græða slímhúðarsár
í nefi, koki og barkakýli og hnúta-
sár á húð og draga á þann hátt
fljótt úr smithættu.
Því miður virðast lyfin aftur á
móti vinna seint og illa á þeirri
sýklagerð, sem er innilukt í lokuð-
um leprahnútum. Rannsóknir, sem
gerðar voru 1955 á 800 leprasjúk-