Læknablaðið - 15.11.1958, Síða 39
LÆKNABLAÐIÐ
107
þykir þó, að hvort tveggja sé.
En sé toxinið komið til mæn-
unnar, þá er það fastbundið og
eyðist aðeins við efnaskipti
frumanna þar. Eigi antitoxin-
gjöf að bera árangur, þarf hún
að neutralisera toxinið áður en
það berst til mænunnar. Talið
er, að það taki um 4 vikur fyr-
ir líkamann að „evða“ toxin-
inu úr mænunni, en að sjálf-
sögðu er það misjafnt eftir
því, hve mikið hefur horizt
þangað. Það er því mjög mikil-
vægt, að gefa antitoxin strax
eftir öll slvs, sem gætu valdið
tetanus-sýkingu, og svo aftur í
mjög stórum skömmtum, komi
einkenni fram.
Önæmisaðgerðir og tíðni.
Það hefur verið venja viða
um lönd, að gefa tetanus-
antitoxin (TAT), 1500 ein. sub-
cutant um leið og fvrsta aðgerð
fer fram, en síðan aftur eftir
eina viku, sé sárið ekki gróið.
Má það kallast passiv ónæmis-
aðgerð.
Fvrir síðustu styrjöld, og þó
mest i henni, var tekið að nota
Tetanus-toxoid (TT) til aktívra
ónæmisaðgerða. — Gefinn var
0,5—1 ml. með 6—12 vikna
millibili 3svar sinnum, en síðar
var gefinn viðbótar („booster")
skammtur af toxoid, ef slys bar
að liöndum. — Þetta gefur
miklu hærri titer af serum-
anti-toxini og varanlegri, held-
ur en passiv antitoxingjöf, sem
oft hefur ln'ugðizt að nokkru
leyti.
Frá því í fyrri heimsstyrjöld
hefur 0,1 ein. af antitoxini i ml.
i serum verið talinn gefa full-
nægjandi vörn. Eftir innspýt-
ingu á 1500 ein. antitoxins, fengu
Stafford el al. eftirfarandi titer:
eftir 24 klst. 0,1 ein./ml.
— 7 — 0,1 ein./ml.
— 4 daga 0,15-0,25 ein./ml.
Eftir „booster“skammt af TT.
0,5 ml. fengu þeir hjá aktívt ó-
næniu fólki 0,05 ein./ml. í byrj-
un, sem hækkaði upp í 0,1—0,3
ein./ml. á 4—5 dögum og siðan
hratt upp í 10 ein./ml. á 14 dög-
um.
Hið síðarnefnda gefur því
miklu hetri vörn. Og tíðni sjúk-
dómsins er sláandi sönnun á-
hrifa ónæmisaðgerða. f síðasta
striði komu aðeins 5 tilfelli af
tetanus fyrir í Bandaríkjaher
á fólki, sem hafði fengið ónæm-
isaðgerðir og svo „booster“-
skammt, en i 1914—1918 strið-
inu var tiðnin í hrezka hernum:
9 tilfelli af hverjum 1000 særð-
um, sem lækkaði niður í 1%0,
þegar farið var að gefa antitox-
in. Þá voru 2385 tilfelli í hrezka
liernum með 1011 dauðsföllum.
Þýzku hermennirnir voru ekki
varðir svona og var mikið um
tetanus hjá þeim, t. d. komu 53
þýzkir hermenn úr einumfanga-
búðum með tetanus á einum
mánuði.
í Bandaríkjunum deyja ár-
lega milli 5—600 manns af tet-