Læknablaðið - 15.11.1958, Blaðsíða 40
108
LÆKN ABLAÐ IÐ
anus eða 0,2 pr. 100.000 íbúa.
Á stríðsárunum dóu þar 1500
manns af völdum tetanus, en
í hernum 2.
Sjúkdómseinkenni.
Þeim hefur að mestu verið
lýst aS framan. En krampar
geta verið staðbundnir og þá á
þeim útlim, sem sýktur er. Hitt
mun þó algengara, að um alls-
herjar krampa sé að ræða. Tris-
mus er venjulega fyrsta ein-
kennið, síðan kyngingarörðug-
leikar og laryngospasmus, epi-
stothonus, stífur og eymslalaus
kviður, stíft andlit (risus sar-
donicus) og klonisk krampa-
köst við minnstu ertingu. Sjúkl.
missa ekki meðvitund og erand-
leg líðan þeirra þvi slæm.
Aðrir sjúkdómar, sem þarf
að greina frá, eru parotitis og
tannrótarbólga i byrjun. Ekki
er að treysta á sýklarannsókn,
því að sýkillinn ræktast aðeins
í helming tilfella.
Meðgöngutími. — Batahorfur.
Meðgöngutími (inkubation)
er mjög mislangur — allt frá
24 klst. og upp í marga mán-
uði. Er þá reiknað með tíman-
um frá því sjúkl. slasast og
þar til klinisk einkenni koma
fram. Hafi sjúkl. fengið anti-
toxin-innspýtingu lengist tím-
inn og verður vart minni en 11
dagar. Batahorfur fara mjög
eftir þessu. Ian Aird telur
(1949), að mortaliletið sé þann-
ig:
meðgöngutími styttri en 10
dagar -—■ mortalitet . . 70%
meðgöngut. 11—21 dagur
— mortalitet ......... 35%
meðgöngut. lengri en 3
vikur — mortalitet . . 15%
Þetta mun þó liafa lagazt eitt-
livað nú síðustu árin með til-
komu fleiri svæfingalækna,
antibiotica o. f 1., ásamt aukn-
um og bættum sjúkrabúskosti,
en sjúkl. þessir þurfa mjög
mikla hjúkrun og eftirlit.
Meðferð.
Þar sem ekki er hægt að ná
burtu toxini, sem hefur bund-
izt mænunni, en það tekur um
3—4 vikur fvrir líkamann sjálf-
an að vinna bug á því, þá má
segja, að meðferðin sé sympto-
matisk og skiptist í 3 kafla:
1. Neutralisera þarf það toxin,
sem ennþá er ekki fastbund-
ið og liindra frekari fram-
leiðslu þess.
2. Hindra krampa.
3. Hindra lungnabólgu og aðra
viðbótarsj úkdóma.
1) Nauðsynlegt er að gefa
strax stóra skammta af anti-
toxini. Eftir ofnæmispróf fyrir
serumi, er gefið 50.000 ein. í æð
og 50.000 ein. í vöðva. Gefur
það vörn í 5—6 vikur. Allir
munu nú hættir að gefa serum
intrathecalt vegna ertingar. —
Sumir gefa 5.000—10.000 ein.
í kringum sárið. — Mj ög